Fréttablaðið - 06.11.2006, Page 2
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
NISSAN ALMERA LUXURY
Nýskr. 11.00 - Beinskiptur - Ekinn 97 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð á
ður: 74
0.000
-
Tilboð
:
550.00
0.-
Sigurður, flýgur fiskikarið í
Sandgerði?
Sigurður Snævarr borgarhagfræðing-
ur segir hvorki borgaryfirvöld í Reykjavík né
viðskiptaráðgjöf Par X IBM kannast við verðmæta-
mat á Landsvirkjun upp á 91,2 milljarða króna.
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í
borgarstjórn, segir borgarstjórn hafa samþykkt að
selja Landsvirkjun á allt að fimmtán milljarða
lægra verði en verðmat hefði gefið tilefni til.
Sigurður segir þetta rangt hjá Degi og ekki í
takt við það mat sem stuðst hefði verið við þegar
borgaryfirvöld áttu í samningum við íslenska ríkið
um verð á Landsvirkjun. „Ef Landsvirkjun hefur
verið metin á rúmlega 90 milljarða króna í tíð R-
listans, þá spyr maður sig hvers vegna ákveðið var
að selja ekki hlutinn. Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
fyrrverandi borgarstjóri, segir Landsvirkjun hafa
verið metna á 56 milljarða, þegar slitnaði upp úr
viðræðunum, og ástæðan fyrir því að hún vitnar til
þeirrar tölu er sú að það er rétt tala,“ segir
Sigurður.
Sigurður segir ýmis verð hafa verið reiknuð út á
grundvelli breytilegra forsenda, þegar unnið var að
verðmati á Landsvirkjun, en ekki sé hægt að bera
saman óskyld verðmöt þegar horft sé til heildar-
verðmats á fyrirtækinu. „Ég get mér þess til, þó ég
kannist ekki við þetta verðmat sem vitnað hefur
verið til, að stuðst sé við mat sem ekki byggi á
réttum forsendum og sé því ekki samanburðarhæft
við verðið sem hluturinn seldist á.“
Fulltrúar Félags grunn-
skólakennara og Launanefndar
sveitarfélaga hafa hist á fimm
árangurslausum fundum til að
ræða breyttar forsendur kjara-
samnings kennara vegna greinar
16.1 í kjarasamningnum.
Í grein 16.1 er gert ráð fyrir að
viðræður verði teknar upp fyrir 1.
september 2006 breytist almenn
efnahags- eða kjaraþróun í þjóð-
félaginu.
Ólafur Loftsson, formaður
Félags grunnskólakennara, segir
að við gerð síðasta kjarasamnings
hafi verið gert ráð fyrir 3–4 pró-
senta verðbólgu en að hún hafi nú
farið yfir þau mörk sem reiknað
var með. „Þá fara aðilar FG fram
á svipaða kjaraleiðréttingu og
aðrir hópar í þjóðfélaginu hafa
fengið.“
Ólafur vildi ekki ræða efnis-
lega hvað Launanefnd sveitarfé-
laga hefði boðið eða hvaða leið-
réttingu FG hefði farið fram á.
Um síðustu mánaðamót ritaði
stjórn kennarafélags Reykjavík-
ur Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni
borgarstjóra bréf þar sem hún
lýsti sig tilbúna til viðræðna
vegna greinar 16.1 í kjarasam-
ingnum.
Vilhjálmur hefur móttekið
bréfið. Hann vísaði því til Launa-
nefndarinnar.
Samningaviðræður í hnút
Eldur kom upp í
íbúð fjölbýlishúss á Akureyri í
gærmorgun. Íbúi hafði gleymt
potti á eldavél og vaknað við væl
reykskynjara. Hann komst út af
sjálfsdáðum. Lögregla og
slökkvilið ræstu íbúðina sem var
þá orðin full af reyk. Eitthver
tjón hlaust af vegna reyksins en
betur fór en á horfðist.
Björgunarsveitir aðstoðuðu
bæði lögreglu og almenning í
tugum atvika sem tengdust
hvassviðrinu sem gekk um
mestallt land.
Eldur kom upp
í fjölbýlishúsi
Saddam Hussein, fyrrver-
andi Íraksforseti, var í gær dæmd-
ur til dauða fyrir glæpi gegn
mannkyni. Dómurinn leiddi til
lykta fyrsta réttarhaldið af mörg-
um yfir einræðisherranum fyrr-
verandi, en það var fyrir ábyrgð
hans á drápum á 148 manns í
bænum Dujail árið 1982. Til dráp-
anna var efnt í hefndarskyni fyrir
tilraun til að ráða Saddam af
dögum, sem rakið var til manna í
Dujail sem voru virkir í and-
spyrnuhreyfingu gegn stjórn
Saddams á sínum tíma.
Er dómurinn var kveðinn upp
hrópaði Saddam „Guð er mikill“.
Dauðadómar voru einnig kveðnir
upp yfir hálfbróður hans og öðrum
manni sem var háttsettur í Íraks-
stjórn á sínum tíma. „Lengi lifi
(íraska) þjóðin og dauði yfir óvin-
um hennar. Lengi lifi hin dýrðlega
þjóð, og dauða yfir óvinum henn-
ar!“ hrópaði Saddam.
Nouri al-Maliki, forsætisráð-
herra Íraksstjórnar, sem er sjía-
múslimi, lýsti dómunum sem dómi
sögunnar yfir heilu sögulegu
tímabili. „Þetta er dómur yfir
heilu myrku tímabili sem á sér
ekki hliðstæðu í sögu Íraks,“ sagði
hann. Réttarhaldið stóð yfir í níu
mánuði og lauk fyrir meira en
þremur mánuðum, en í millitíð-
inni er hafið annað réttarhald yfir
Saddam og fleiri sakborningum,
og snýst um fjöldamorð á Kúr-
dum með efnavopnum á níunda
áratugnum.
Sumir lýstu áhyggjum af því
að dauðadómarnir kynnu að verka
sem olía á eld átaka stríðandi fylk-
inga trúar- og þjóðernishópa í
Írak. Strax í gær brutust út átök í
hverfi súnnía í norðurhluta Bag-
dad. Annars staðar í höfuðborg-
inni skutu menn upp í loftið til að
fagna dóminum.
„Þessi ríkisstjórn verður ábyrg
fyrir afleiðingunum, dauða þeirra
hundruða, þúsunda eða jafnvel
hundruða þúsunda manna, hverra
blóði verður úthellt,“ sagði Salih
al-Mutlaq, stjórnmálaleiðtogi
súnní-múslima, í samtali við sjón-
varpsfréttastöðina al-Arabiya.
Á götum Dujail, þar sem um
84.000 manns búa, flestir sjíar,
brutust út mikil fagnaðarlæti.
Myndir af einræðisherranum
fyrrverandi voru brenndar og
,mikið skotið upp í loftið.
Dauðadómarnir fara sjálfkrafa
í áfrýjunarferli. Níu manna sér-
skipaður áfrýjunardómstóll hefur
ótakmarkaðan tíma til að fara yfir
dóminn.
Verði dómarnir staðfestir verð-
ur að framfylgja þeim innan 30
daga frá þeim úrskurði.
Talsmaður Evrópusambands-
ins hvatti til þess í gær að dauða-
dómunum yrði ekki framfylgt en
talsmaður Hvíta hússins sagði
Bandaríkjastjórn þess fullvissa
að Bandaríkjaher muni, í félagi
við írösk yfirvöld, geta ráðið nið-
urlögum átaka sem fylgja kunni í
kjölfar dómsins.
Saddam Hussein
dæmdur til dauða
Dauðadómi sem í gær var kveðinn upp yfir Saddam Hussein misjafnlega tekið.
Fögnuður í röðum íraskra sjía-múslima sem stjórn Saddams ofsótti, en tals-
menn súnnía spáðu blóðbaði sem yrði á ábyrgð núverandi ríkisstjórnar.
Lekinn í gegnum
Kárahnjúkastíflu er margfalt
minni heldur en reiknað var með í
upphaflegum áætlunum, segir
Sigurður Arnalds, talsmaður
Landsvirkjunar vegna Kára-
hnjúkavirkjunar.
„Lekinn er sáralítill og mælist
innan við 10 lítrar á sekúndu. Við
bjuggumst alveg eins við því að
lekinn gæti orðið margfalt meiri
en þetta og mælst í hundruðum
lítra. Þetta sýnir að frágangurinn á
stíflunni er fyrsta flokks.“
Nánast enginn
leki við stífluna
Prófkjör framsóknar-
manna í Suðurkjördæmi fer
fram 20. janúar 2007. Þetta var
ákveðið á kjördæmaþingi
framsóknarmanna í Suðurkjör-
dæmi sem haldið var nú um
helgina.
Kosið verður um sex efstu
sæti framboðslistans og er sú
kosning bindandi.
Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra sækist eftir fyrsta
sæti listans. Þá sækjast Hjálmar
Árnason, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins, Bjarni
Harðarson, Eygló Þóra Harðar-
dóttir og Björn B. Blöndal eftir
framboði í annað sætið.
Prófkjör verður
haldið í janúar
Kjósendur í
Miðameríkuríkinu Níkaragva biðu
í gær í löngum biðröðum eftir að
fá að kjósa í forsetakosningum,
sem Daniel Ortega, gamla
sandínistaleiðtoganum sem
stjórnaði landinu megnið af níunda
áratugnum, var spáð góðu gengi í.
Aðeins var talinn leika vafi á
hvort Ortega fengi strax í fyrri
umferð kosninganna nægilegt
fylgisforskot til þess að ekki þyrfti
að koma til úrslitaumferðar þar
sem kosið yrði milli hans og þess
frambjóðanda sem næstflest
atkvæði hlýtur. Í síðustu skoðana-
könnunum fyrir kosningarnar var
Eduardo Montealegre, Harvard-
menntaður auðmaður, eini
maðurinn sem komst nálægt
Ortega í fylgi. Úrslitin eiga að
verða ljós í dag.
Ortega í forystu
Talning atkvæða í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi, sem fara átti
fram í gær, var frestað til
klukkan tvö í dag þar sem
kjörgögn bárust ekki frá Vest-
mannaeyjum til lands vegna
veðurs. Alls kusu um 1.100 manns
í Vestmannaeyjum.
Yfirkjörstjórn Samfylkingarinn-
ar í Suðurkjördæmi ákvað á fundi
sínum um sjö leytið í gærkvöld að
fresta talningunni þar sem telja
þarf öll atkvæðin á sama stað,
samkvæmt reglum flokksins.
Alls kusu 5.146 í prófkjörinu
sem að sögn Kristins M. Bárðar-
sonar, formanns kjördæmisráðs
Samfylkingarinnar, var meira en
„bjartsýnustu menn þorðu að
vona“.
Talning fer
fram í dag