Fréttablaðið - 06.11.2006, Síða 6
Kjósum unga konu til áhrifa
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir býður sig fram í 6. sæti i prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, 11. nóvember nk.
Bryndís Ísfold 6. sæti
kynntu þér stefnumá l in á www.bryndisisfo ld.com
Gunnar Svavarsson, verk-
fræðingur og bæjarfulltrúi í Hafn-
arfirði, sigraði í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Suðvesturkjördæmi.
Hann hlaut 1.376 atkvæði í 1. sæti
en 4.996 kusu í opnu prófkjöri
flokksins.
Gunnar segist líta á fimmta
sætið á listanum sem baráttusæti í
kosningunum næsta vor. „Prófkjör-
ið heppnaðist vel og var flokknum
til sóma. Ég er ánægður með þann
mikla stuðning sem ég fékk en fyrst
og fremst er það heillavænlegt
fyrir flokkinn að hafa stillt upp
afburða hæfu fólki til þess að und-
irbúa flokkinn fyrir mikilvægar
kosningar í vor. Ég hef þá trú að
fimmta sætið verði baráttusætið og
ég er viss um að við getum náð því
markmiði.“
Katrín Júlíusdóttir stefndi að 2.
sætinu í prófkjörinu og náði því
örugglega. Hún hlaut 2.268 atkvæði
í 1. til 2. sætið en Þórunn Svein-
bjarnardóttir, sem bauð sig fram í
1. sætið, hlaut 2.353 atkvæði í 1. til
3. sætið.
Hún segist sátt við niðurstöð-
una. „Ég fagna þessari niðurstöðu
og lít á hana sem ákveðinn móralsk-
an sigur fyrir mig. Ég fékk góða
kosningu í fyrsta sætið og er þakk-
lát fyrir stuðninginn sem ég fékk í
kjördæminu. Ég hef fulla trú á því
að Samfylkingin geti náð góðum
árangri í kosningunum næsta vor
með þennan vel mannaða lista.“
Mikil spenna var á kjörstað en
kosingavaka Samfylkingarinnar
fór fram á Fjörukránni í Hafnar-
firði. Samtals munaði 46 atkvæðum
á Gunnari og Þórunni í efsta sætið
en vegna sterkrar stöðu Katrínar í
2. sæti féll Þórunn niður í þriðja
sætið.
Eftir fyrstu tölur, sem tilkynnt-
ar voru eftir talningu 1.500
atkvæða, hafði Gunnar forystuna,
Katrín var í öðru sæti og Þórunn
því þriðja. Þegar næstu tölur voru
tilkynntar, er 2.200 atkvæði höfðu
verið talin, höfðu Þórunn og Gunn-
ar sætaskipti en það snerist við
þegar tilkynnt var um niðurstöð-
una eftir talningu allra atkvæða.
Guðmundur Steingrímsson, sem
bauð sig fram í fjórða sætið, var
afar ánægður með niðurstöðuna.
„Þessi niðurstaða er stór sigur fyrir
mig og mínar pólitísku hugsjónir.
Það kom mér á óvart hversu mik-
inn hljómgrunn mínar hugmyndir
fengu hjá félagshyggjufólki alls
staðar í kjördæminu. Ég er sann-
færður um að Samfylkingin getur
náð góðum árangri í kosningunum
næsta vor og ég er þegar farinn að
Valdimar Leó Friðriksson
alþingismaður var ekki á meðal
átta efstu frambjóðendanna í próf-
kjörinu. Hann var ekki tilbúinn til
þess að tjá sig um niðurstöðuna
þegar Fréttablaðið leitaði til hans
en sagðist ætla að halda áfram pól-
itísku starfi. „Ég er ekki hættur í
pólitík,“ var það eina sem Valdimar
sagði.
Gunnar leiðir lista
Samfylkingarinnar
Gunnar Svavarsson leiðir lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi en
hann fékk 46 atkvæðum meira en Þórunn Sveinbjarnardóttir í 1. sætið. Af-
burða hæft fólk á listanum sem getur náð góðum árangri segir Gunnar.
Ert þú flughrædd(ur)?
Hefur þú kosið í prófkjöri í ár?
Ekki liggur enn ljóst
fyrir hver staðgengill dr.
Guðfinnu Bjarnadóttur, rektors
við Háskólann í Reykjavík,
verður. Eins og fram hefur
komið fer Guðfinna í launalaust
leyfi vegna framboðs fyrir
alþingiskosningar næsta vor.
Bjarni Ármannsson, bankastjóri
og formaður Háskólaráðs, vildi
ekkert segja um málið að svo
stöddu. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins verður nýr rektor
ráðinn í lok mánaðarins. Guð-
finna hefur gegnt starfi rektors
frá því Háskólinn í Reykjavík
var stofnaður árið 1998.
Rektor ráðinn í
lok mánaðarins
Rúmlega tvítugur karl-
maður var á föstudaginn dæmdur
til tólf mánaða fangelsisvistar í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að
stinga annan mann fimm sinnum.
Þar af eru níu mánuðir dómsins
skilorðsbundnir.
Mönnunum tveimur hafði lent
saman inni á skemmtistaðnum
Gauki á Stöng í mars á þessu ári.
Þeim átökum lauk með því að fórn-
arlambinu var vísað út af skemmti-
staðnum. Hinn ákærði fylgdi eftir
stuttu síðar og veittist þá fórnar-
lambið að honum að nýju. Slags-
málin leiddust inn í sund á bak við
nærliggjandi veitingastað og er
talið að ákærði hafi stungið mann-
inn þar fimm sinnum með litlum
vasahnífi. Fórnarlambið hlaut fjög-
ur stungusár á baki og eitt í síðu.
Stungurnar ristu þó grunnt og mað-
urinn var útskrifaður af spítala
daginn eftir.
Í niðurstöðu héraðsdóms kom
fram að hinn ákærði hefði verið
undir áhrifum fíkniefna þegar hann
framdi brot sitt. Hann hafi sýnt
mikla iðrun frá því að atburðurinn
átti sér stað og sýnt vilja til að taka
sig á. Hann hefði meðal annars látið
af fíkniefnaneyslu, væri kominn í
sambúð og hefði leitað sér aðstoðar
geðlæknis. Þá væri það honum til
refsilækkunar að afleiðingar árás-
arinnar voru ekki alvarlegar.
Auk fangelsisdómsins var mað-
urinn dæmdur til að greiða fórnar-
lambi sínu á fjórða hundrað þúsund
krónur í skaðabætur.
Stakk mann fimm sinnum