Fréttablaðið - 06.11.2006, Side 23

Fréttablaðið - 06.11.2006, Side 23
Granítsmiðjan í Hafnarfirði hefur sérhæft sig í smíði úr graníti og öðrum steintegund- um. „Granít er gott efni á alla slitfleti heimilisins, og hentar vel í eldhús- ið, á baðið, og á sólbekkina til dæmis. Það getur verið margra milljón ára gamalt og er svo sterkt að mikið þarf til að það rispist,“ segir Pétur Daníelsson, fram- kvæmdastjóri Granítsmiðjunnar þegar hann er heimsóttur í stein- ríki sitt. Hjá honum vinna margir við að skera stein, pússa og hand- slípa. „Við sérsmíðum fyrir hvern og einn eftir hans þörfum og leggj- um mikið upp úr vandvirkni, enda lifum við á orðsporinu,“ segir Pétur. Granít myndast djúpt í jörðu á milli jarðlaga, við mikinn hita og þegar það er slípað og pólerað verður yfirborð þess líkast gleri. „Þetta er nýr staðall í dag,“ segir Pétur. „Tók eiginlega við af plast- húðuðu spónaplötunni. Það er hægt að skera á granítplötu og vera með heita potta á henni og eldföst mót því steinninn þolir allt upp í 740 gráðu hita. Þar af leið- andi hentar hann í allt nema arna. Þeir þurfa að þola um eitt þúsund gráðu hita.“ Þó að fyrirtækið heiti Granít- smiðjan þá fást þar margs konar steintegundir þannig að úr miklu er að velja. Pétur segir fyrirtækið vinna náið með arkitektum og eig- endum heimilanna sem þeir smíða inn í. „Við gerum tilboð í verkin, mætum á staðinn og tökum nákvæm mál upp á millimetra,“ segir hann og bætir við að lokum. „Ef fólk hefur ákveðnar hugmynd- ir þá bara reddum við því sem það biður um.“ Steinöldin enn og aftur Vakin er athygli á því að Trésmiðjan Mosfell ehf., er flutt úr Mosfellsbæ. Skrifstofa fyrirtækisins er nú að Miðhrauni 14, 210 Garðabæ og trésmiðjan að Norðurgarði 8 í Sandgerði. KERTO LÍMTRÉ er frá Finnlandi og hefur verið á markaði á Íslandi frá árinu 1981. KERTO LÍMTRÉ er mikið notað sem burðarbitar, einnig í milligólf og þaksperrur þar sem venjulegar sperrur duga ekki. KERTO LÍMTRÉ getur sparað verulega fjármuni í burðarvirki þar sem þaksperrur fara yfir 5 metra í lengd, þá er notað KERTO LÍMTRÉ í stað hefðbundinna þaksperra og losnað við burðarbita og súlur. KERTO LÍMTRÉ, eitt það besta í tré, til nýbygginga og viðhalds. Iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði KERTO LÍMTRÉ býður upp á ýmsa möguleika. TM MOSFELL EHF • MIÐHRAUNI 14 • SÍMI 566 6606 • FAX 566 6619 • MOSFELL@MOSFELL.IS Æfingasvæði NK á Seltjarnarnesi KERTO LÍMTRÉ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.