Fréttablaðið - 06.11.2006, Side 57
Nicole Richie hefur ítrekað neitað
að hún eigi við átröskun að stríða,
jafnvel eftir að tilkynnt var að hún
hefði leitað sér hjálpar vegna
þyngdar sinnar. Nú hefur Lionel
Richie hins vegar sagt að hann
hafi þungar áhyggjur af dóttur
sinni. Að hans sögn var það hann
sem greip í taumana og skikkaði
Nicole til að leita sér hjálpar.
Dropinn sem fyllti mælinn var
jarðarför ömmu Nicole í október,
þar sem mörgum ættingjum henn-
ar brá í brún yfir hversu mögur
hún var orðin.
Lionel greip
í taumana
Salan á nýjustu plötu Bubba,
06.06.06, hefur gengið framar
vonum og er hún núna uppseld hjá
útgefanda eftir aðeins tvær vikur í
sölu.
Frá útgáfudegi plötunnar hefur
hún setið sem fastast í toppsæti
Tónlistans. Búið er að panta veg-
legt magn af plötunni til viðbótar
og er hún væntanleg í verslanir á
mánudag. Einnig hefur DVD-mynd-
diskurinn með Bubba selst vel.
Bubbi verður önnum kafinn á
næstunni við tónleikahald og að
árita plötuna.
Plata Bubba
uppseld
Nýsjálenski leikstjórinn Peter
Jackson hefur ákveðið að fresta
gerð myndarinnar Halo eftir að
kvikmyndaverin Fox og Universal
hættu við að framleiða myndina
vegna mikils kostnaðar.
Jackson, sem sló rækilega í
gegn með þríleiknum Lord of the
Rings, hélt áfram að taka upp
myndina með aðstoð tölvurisans
Microsoft en hefur nú hætt þeim
tökum. „Við erum sannfærð um að
myndin verður
biðarinnar
virði,“ sagði
Jackson.
Myndin er
byggð á
tölvuleikn-
um Halo.
Frestar Halo
Dirty Paper Cup er fyrsta sóló-
plata Hafdísar Huldar sem er
þekktust fyrir að hafa verið
söngkona Gus Gus fyrstu ár
sveitarinnar.
Hún hefur verið að reyna fyrir
sér í Bretlandi undanfarin ár og
söng m.a. um tíma með hinni
ágætu danstónlistarsveit FC
Kahuna. Eitt árið mætti hún á
Airwaves með rokkhljómsveit.
Það fór henni vægast sagt ekki
vel. Nú hefur hún hins vegar
fundið tónlist sem hentar henni
betur.
Á Dirty Paper Cup eru 13 lög,
flest þeirra samin af Hafdísi og
samverkamönnum hennar, en
auk þess er útgáfa af Velvet Und-
erground-laginu Who Loves The
Sun á plötunni og íslenska þjóð-
lagið Sumri hallar.
Tónlistin er frekar rólegt,
mjúkt og áferðarfagurt popp.
Útsetningarnar eru einfaldar,
hljómurinn er flottur og mörg
þessara laga eru fín, t.d. Ski
Jumper, Plastic Halo og
Hometown Hero. Hafdís hefur
fallega rödd og hefur greinilega
vaxið sem söngkona.
Textarnir eru margir krútt-
legir og smástelpulegir, t.d.
Diamonds on my Belly,
Hometown Hero og Happily
Ever After. Og eitt viðlagið
hljómar svona „Ice Cream is
Nice/Monsters are Not“. Annars
staðar eru viðfangsefnin ekki
jafn glaðleg, t.d. í Plastic Halo
þar sem hún syngur „I Hope you
Choke on Your Plastic Halo“.
Dirty Paper Cup er ágætis
plata, en hún er samt svolítið
dæmigerð fyrir ákveðna deild í
poppinu í dag.
Hafdísi hefur farið mikið
fram og hún getur verið ánægð
með þessa fyrstu sólóplötu sína,
en það verður samt seint sagt að
þetta sé mjög frumlegt eða afger-
andi.
Mjúkt og áferðarfagurt hjá Hafdísi Huld
Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus.
Spurðu um KÓPAL.
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi
Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík
Núpur byggingarvöruverslun, Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki
Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi
Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
Erlendur Eiríksson málari:
„Einfaldlega besta málningin sem ég hef notað.“
Lyktarlaus
KÓPAL Glitra
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
A
L
34
75
3
1
0/
20
06