Fréttablaðið - 06.11.2006, Page 64

Fréttablaðið - 06.11.2006, Page 64
 „Ég er bara nokkuð góður,“ sagði Ólafur þegar Frétta- blaðið ræddi við hann í gær, tæpum sólarhring eftir að hann hafði spilað í alls hálftíma með Ciudad gegn Pick Szeged frá Ung- verjalandi í meistaradeildinni. Ciudad vann tiltölulega auðveldan sigur 32-25 og skoraði Ólafur þrjú mörk. Fyrir nokkrum vikum var Ólafur venjulega hálflamaður svona stuttu eftir leik, reyndar „stokkbólginn og gjörsamlega að drepast“ eins og hann segir sjálf- ur frá, en í gær horfði öðruvísi við. „Ég finn alveg fyrir einhverj- um eymslum en það er alveg eðli- legt. Miðað við allt myndi ég segja að mér liði mjög vel. Öxlin virðist vera að komast í gang á ný og það er mikill léttir. Það var rosalega gott að komast inn á völlinn aftur,“ sagði Ólafur. „Læknarnir komust að því að þetta væru í raun tveir kvillar. Annars vegar slitgigt sem kemur oft hjá mönnum sem hafa verið að kasta tuðru í 15 ár og leið- in til að vinna bug á henni er að hreyfa öxlina. Bólgan í öxlinni sem hefur verið að hrjá mig síð- ustu vikur er að hjaðna og því var einfaldlega ákveðið að kýla á þetta núna, koma öxlinni í gang aftur og reyna að liðka þessa gigt til. Þessi áætlun virðist hafa gengið upp.“ Ólafur segir að læknar Ciudad hafi verið mjög ánægðir með hvernig ástandið var á öxlinni eftir leik, en hann var ekki spraut- aður og fékk ekkert bólgueyðandi fyrir leikinn. „Nei, nei. Það varð að vera ég sjálfur sem spilaði, ekki einhverjar töflur,“ sagði Ólaf- ur, léttur á því eins og venjulega. Hann kveðst ekki hafa verið að hlífa öxlinni neitt sérstaklega í leiknum. „Ég fann alveg fyrir smá eymslum en það háði mér ekkert. Ég held ég að þetta hafi bara verið gamli góði Óli. Tíðindin eru mikil gleðiefni fyrir íslenska landsliðið í hand- bolta því Ólafur fær nú drjúgan tíma til að ná upp leikforminu áður en HM í Þýskalandi hefst eftir um þrjá mánuði. Því fer þó fjarri að Ólafur fái einhverja sérstaka með- ferð hjá þjálfara sínum, Talent Dujshebaev. Sá ætlar honum stórt hlutverk í stórslag spænsku úrvalsdeildarinnar á miðvikudag þegar Ciudad heldur til Pamploma og mætir Portland San Antonio. „Það verður svakalegur leikur tveggja taplausra liða og leikurinn um helgina var ákveðin prófraun á hvort ég væri klár í leikinn á miðvikudag. Ég held að ég hafi sýnt það.“ Landsliðsfyrirliðinn Ólafur Stefánsson spilaði sinn fyrsta leik í nokkrar vikur á laugardag þegar Ciudad Real bar sigurorð af Pick Szeged í meistaradeild Evrópu í handbolta. Ólafur kenndi sér lítils meins í leikn- um og vonar að axlarmeiðslin séu endanlega á bak og burt. Hjálmar Þórarinsson, leikmaður Raith Rovers í Skotlandi, fær mikið hrós frá þjálfara sínum Gary Kirk fyrir frammistöðu sína gegn Cowden- beath á laugardaginn, en Hjálmar skoraði sigurmark liðsins og lagði upp annað í 2-1 sigri. Þetta var fyrsta mark Hjálmars fyrir félagið en hann er í láni hjá Raith frá Hearts. „Ég er himinlifandi fyrir hönd Hjálmars. Hann er ungur strákur sem er langt frá sínu heimalandi en hann stendur sig alveg frábærlega. Hann leggur sig alltaf allan fram og ég er mjög ánægður með hann,“ sagði Kirk á heimasíðu Raith. Hjálmar hefur verið frábær Held ég hafi náð að vekja athygli Sóknarmaðurinn Kjart- an Henry Finnbogason hefur farið mikinn með varaliði Celtic í Skotlandi í síðustu leikjum eftir að hafa jafnað sig á þrálátum meiðslum í rist sem hafa haldið honum frá æfingum og keppni í næstum eitt og hálft ár. Kjartan Henry byrj- aði inn á í síð- asta leik vara- liðsins, í fyrsta sinn í langan tíma, en í tveimur leikjum þar á undan hafði hann komið inn á sem varamaður í síðari hálfleik. Í leik gegn Dund- ee í lok október kom Kjartan Henry inn á þegar stundarfjórð- ungur var eftir og gerði hann sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk í lokakaflanum í 2-0 sigri. Sú frammistaða varð til þess að Gordon Strachan, stjóri liðsins, hrósaði honum sérstaklega. „Strachan kom inn í klefa eftir leikinn og sagði mér að ég hefði staðið mig vel. Hann sagði mér að vera áfram þolinmóður, því það tekur alltaf sinn tíma að komast í gang eftir svona erfið meiðsli,“ sagði Kjartan Henry við Fréttablaðið í gær, en Strachan mætir undantekning- arlaust á leiki varaliðsins og má því segja að það sé mjög góður vettvangur til að sanna sig. „Ég er að komast í hörkuform og held að ég hafi náð að vekja athygli með frammistöðu minni upp á síðkastið. Draumurinn væri að komast í hóp hjá aðallið- inu á tímabilinu og mestu mögu- leikarnir á því eru í bikarleikj- unum,“ segir Kjartan, sem augljóslega stefnir hátt. „Það þýðir lítið að vera í þessu ef maður setur ekki há markmið. Ég tel að það sé raunhæft fyrir mig að spila fyrir aðalliðið í ár og auðvitað stefni ég á það,“ segir Kjartan Henry. NBA-deildin fór af stað í síðustu viku og lofar tímabilið góðu miðað við fyrstu leikina. Í fyrrinótt átti risinn Yao Ming sannkallaðan stórleik fyrir Houston Rockets og skoraði 36 stig þegar liðið vann sinn fyrsta leik á tímabilinu er það lagði Dall- as Mavericks 107-76. „Til að eiga möguleika í þessari keppni þarf maður að hafa frábæra leikmenn sem leggja sig alla fram og spila eins og þeir geta best. Yao gerði það svo sannarlega í þessum leik,“ sagði Jeff Van Gundy, þjálfari Houston. Liðið hefur leikið tvo leiki til þessa en það tapaði sínum fyrsta leik. Dallas fer illa af stað og hefur tapað báðum leikjum sínum. Stuðningsmenn Utah Jazz eru kátir þessa dagana enda hefur liðið átt sannkallaða óskabyrjun í NBA-deildinni og unnið alla þrjá leiki sína. Eftir að hafa unnið Phoenix á útivelli á föstudag sýndi liðið engin þreytumerki á heima- velli sínum gegn Golden State Warriors í fyrrinótt. Mehmet Okur skoraði 21 stig og var stigahæstur í liði Utah sem lagði Golden State 106-82, þá skoraði Carlos Boozer sautján stig og hjálpaði Utah að landa sigri. „Aðalmunurinn á liðinu ef miðað er við síðustu ár er sá að breiddin hjá okkur er orðin mun meiri. Ef einhver spilar ekki nægi- lega vel þá getur þjálfarinn tekið hann af velli og sett annan leik- mann inn á án þess að gæðin í leik okkar minnki. Þannig fá menn meiri hvíld og liðið verður allt betra,“ sagði Boozer eftir sigur- inn. Golden State hefur unnið einn af fyrstu þremur leikjum sínum. Meðal annarra úrslita í fyrri- nótt má nefna að Los Angeles Clippers vann nauman sigur á Phoenix Suns 114-108. Góð frammistaða í lokaleikhlutanum gerði það að verkum að Clippers náði sigri en þá lék liðið hraðan bolta og vann átta stiga sigur í leikhlutanum. „Þessi sigur sýndi góðan kar- akter hjá liðinu og við gerðum fullt af góðum hlutum,“ sagði Mike Dunleavy, þjálfari Clippers sem hefur unnið tvo af þremur fyrstu leikjum sínum. Gilbert Arenas hjá Washington skoraði alls 44 stig þegar hans menn unnu Boston 124-117. Utah byrjar tímabilið af miklum krafti Náðum ekki að halda haus til loka leiks

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.