Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 65
 Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Barcelona á Spáni, telur að það sé aðeins tímaspurs- mál hvenær Barcelona hrekkur í sinn gamla góða gír og að leik- menn liðsins geri sér fyllilega grein fyrir því að þeir spili ekki eins og þeir geti best. Þetta segir Eiður í viðtali við heimasíðuna Icons.com. Eiður segir að það sama eigi við um Ronaldinho, en hann hefur ekki náð sömu gæðum í leik sínum í ár eins og á síðustu leiktíð. „Hvernig er Ronaldinho að spila í augnablikinu? Ég veit ekki alveg hverning ég á að svara þessari spurningu þar sem ég þekki Ron- aldinho ekki svo vel. Ég hef spilað við hlið hans í svo stuttan tíma. Hann er hins vegar mjög mikil- vægur okkar liði og er vanur að skora mörg mörk en hann er að vinna í því að finna sitt rétta form.“ Eiður segir að sú gagnrýni sem leikmenn Barcelona hafi fengið á sig undanfarnar vikur eigi rétt á sér. „Það er ekki bara Ronaldinho sem er gagnrýndur heldur allt liðið. Það er líka verið að gagn- rýna mig. Við tökum þessari gagn- rýni en vitum að við eigum eftir að snúa við taflinu innan skamms. Við erum ekki að reyna að afsaka okkur, það hjálpar engum.“ Eiður stiklar á stóru í viðtalinu og segist meðal annars hafa verið í sms-samskiptum við John Terry og Frank Lampard fyrir leikina gegn Chelsea. „Og þá er ekki rætt um fótbolta heldur persónulega hluti, þessi skilaboð eru ákveðin einkahúmor á milli okkar,“ sagði Eiður Smári. Tímaspursmál hvenær við komumst í gang Enska götublaðið Peop- le hélt því fram í gær að Glenn Roeder, knattspyrnustjóri New- castle, ætli sér að gera tilboð í Eið Smára Guðjohnsen þegar leikmannaglugginn opnast að nýju í janúar. Blaðið fullyrðir að Eiður Smári hafi verið nærri því að ganga til liðs við Newcastle í sumar en þegar Barcelona kom til sögunnar hafi ekki verið aftur snúið fyrir íslenska landsliðs- fyrirliðann. Enn fremur heldur blaðið því fram að Eiður Smári hafi tjáð sínum nánustu vinum að honum líki ekki eins vel að vera á Spáni og á Englandi og því hafi hann hug á því að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina ef tækifæri gefst til. Á leið til Newcastle í janúar? Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, segir að Skagamenn hafi engan áhuga á að taka þátt í því sem á gengið hefur á leik- mannamarkaðnum hér heima að undanförnu. Guðjón sagið við heimasíðu ÍA í gær að tilboðin sem önnur félög hafi boðið leikmönnum séu langt fyrir ofan það sem ÍA hefur kost á að bjóða. „Við ræddum við tvo af þeim leikmönnum sem gengu til liðs við önnur lið í síðustu viku og sýndu þeir okkur áhuga, meðal annars vegna þess að aðstaða til æfinga er hvergi betri. Síðan hófst samkeppnin frá öðrum liðum og tilboð þeirra voru langt fyrir utan þess verðlagsramma sem við setjum okkur.“ Guðjón kveðst þó ekki ætla að leggja árar í bát. „Það þarf enginn að vera í vafa um að við munum styrkja okkur fyrir komandi átök í Landsbankadeild- inni næsta sumar og við erum nú þegar með nokkur járn í eldinum hér heima og erlendis,“ sagði Guðjón við heimasíðu ÍA. Tökum ekki þátt í verðstríði Áhugi erlendra fjárfesta á enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham kann að hafa minnkað töluvert í gær þegar Sebastian Coe, formaður Ólympíunefndar London-borgar, útilokaði þann möguleika að lið West Ham fengi að leika heimaleiki sína á glæsilegum leikvangi sem byggður verður fyrir ÓL í London 2012. Eins og kunnugt er hefur Eggert Magnússon, formaður KSÍ, verið í viðræðum um kaup á meirihluta í West Ham síðustu vikur. Möguleikinn á að flytja heimavöllinn á Ólympíuleik- vanginn þótti vera eitt helsta aðdráttarafl West Ham fyrir mögulega fjárfesta en núverandi heimavöllur, Upton Park, yrði þá hugsanlega seldur fyrir umtals- verðar fjárhæðir. Coe sagði í gær að ef West Ham vildi fá afnot af leikvanginum þyrfti félagið að leggja 100 millj. punda í framkvæmdina. Þess má geta að Eggert hefur boðið 75 millj. punda í félagið svo að eðli málsins samkvæmt munu slíkar fjárhæðir ekki koma til greina fyrir félag eins og West Ham. Fær ekki afnot af ÓL-leikvangi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.