Fréttablaðið - 23.12.2006, Síða 1
Smáauglýsingasími550 5000
Auglýsingasími Allt550 5880
Þú
Sennilega trúa ekki margir því að hægt sé að reka versluneingöngu með jólaskraut. Sig-ríður María Birgisdóttir, annareigenda Jólahússins við Skóla-vörðustíg, er sjálfsagt á allt öðrumáli.
þeir standa fyrir utan og bíða eftir
að við opnum á morgnana.“ Þó að
sumarviðskiptin séu mest við
ferðamenn í leit að fallegu íslensku
jólaskrauti er þó farið að færast í
aukana að Íslendingar komi í leit
að skrauti yfir sumartímann. „Við
erum með helling f
ir í söfnun og fólk talar um að
kaupa einn á ári, maður verður nú
kominn á ellilífeyri þegar það
verður komið. Þetta eru nú þrett-
án sveinar, Grýla, Leppalúði og
kötturinn þannig að ef b jár á
Vöruúrvalið í Jólahúsinu er
veglegt og þar er hægt að fá jóla-
skraut frá ýmsum löndum allt frá
Danmörku til Kanada Ísle khandverk
Heldur jólin allt árið
um kring
Amal Tamimi í helgar-
viðtali um flótta sinn
með fimm börn frá
Jerúsalem og nýja lífið á
Íslandi, Ingvi Hrafn Jóns-
son um nýju sjónvarps-
stöðina sína, Í svörtum
fötum gerir upp leiðar-
lok sín, farið í saumana á
ákærunum í olíumálinu
mikla og allt um fallega
borðsiði fyrir jólaboðin.
Flytur jólakveðjuna til
Íslendinga
Nafn komið á síðustu
Harry Potter-bókina
Tæplega sex
hundruð kíló af skötu fóru yfir
afgreiðsluborðið hjá Hólmgeiri
Einarssyni í Fiskisögu þar sem
örtröð myndaðist í gær. Stærsti
skötuátsdagur ársins er í dag á
Þorláksmessu.
„Lyktin er yndisleg. Fólkið
kemur meðvitað um hana á
þessum árstíma og sækir í lyktina
til að losna við kvefið.“ Spurður
um fleiri eiginleika skötunnar
sagðist Hólmgeir nokkuð viss um
að hún yki kyngetuna.
Skötuunnendur sem lögðu leið
sína í Fiskisögu í gær voru á
ýmsum aldri en enginn undir
þrítugu, að sögn Hólmgeirs, og
hugðust flestir bjóða til skötu-
veislu í dag.
Læknar kvef og
eykur kyngetu
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Gleðil
ega há
tíð
1
dagur til jóla!
Opið til 23
Gjafabréf - harður pakki en samt mjúkur
Íslendingur á þrítugs-
aldri liggur mikið slasaður á
sjúkrahúsi í Árósum í Danmörku
eftir að hafa fallið af svölum íbúð-
ar sinnar og lent á steyptri stétt.
Fallið var um tólf metrar.
Slysið átti sér stað síðastliðinn
sunnudag. Tildrög þess eru ekki
ljós. Maðurinn féll af svölum íbúðar-
innar, sem er á fjórðu hæð í fjölbýlis-
húsi. Hann slasaðist mikið við fallið
og telja læknar á sjúkrahúsinu það
vera hreint kraftaverk að hann
skuli vera á lífi, að sögn föður hans
sem dvelur nú ytra við sjúkrabeð
sonar síns ásamt fjölskyldu.
Ungi maðurinn slasaðist mikið
þegar hann lenti á stéttinni.
Höfuðið og hryggjarsúlan sluppu
ósködduð, en önnur meiðsl eru
alvarleg, meðal annars innvortis.
Hann hefur gengist undir þrjár
stórar aðgerðir á undanförnum
dögum og tóku tvær fyrstu um sjö
klukkustundir. Síðasta aðgerðin
var gerð í fyrradag og tók hún níu
klukkustundir. Manninum hefur
verið haldið sofandi í öndunarvél
frá því að hann kom á sjúkrahúsið
á sunnudag. Faðir hans segir að
líðan hans sé stöðug og eftir atvik-
um. Hann sé þó enn í lífshættu.
Hann taldi, þegar Fréttablaðið
ræddi við hann síðdegis í gær, að
trúlega yrði prófað að vekja son
hans síðdegis.
Danska lögreglan rannsakar til-
drög þess að maðurinn féll niður
af svölunum.
Féll 12 metra niður af svölum
Mikill viðsnúningur
varð til hins verra á gjaldeyris- og
hlutabréfamarkaði í gær eftir að
matsfyrirtækið Standard & Poor´s
greindi frá því að það hefði lækkað
lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir
langtímaskuldbindingar í erlendri
mynt úr AA- í A+ og fyrir skamm-
tímaskuldbindingar í erlendri
mynt í A-1 úr A-1+. S&P lækkaði
einnig lánshæfiseinkunnir Íbúða-
lánasjóðs og Landsvirkjunar.
Krónan féll um 2,9 prósent eftir
að hafa styrkst um eitt prósent
áður en fréttirnar bárust. Fór
gengisvísitalan yfir 130 í fyrsta
skipti í langan tíma. Hlutabréf
lækkuðu einnig í verði; mest bréf í
bönkum og fjármálafyrirtækjum.
Jafnframt lækkaði S&P láns-
hæfiseinkunn fyrir langtímaskuld-
bindingar í íslenskum krónum en
einkunn fyrir skammtímaskuld-
bindingar var staðfest.
Lækkunin skýrist af minnkandi
aðhaldi í ríkisfjármálum í aðdrag-
anda þingkosninga sem mun valda
þenslu og beinir S&P spjótum
sínum að nýlegum lækkunum á
matvælaskatti. „Þensluhvetjandi
ríkisfjármál og spenna á vinnu-
markaði skapa hættu á að verð-
bólguþrýstingur magnist enn.
Þetta gæti leitt til frekari vaxta-
hækkana, en fyrir vikið yrði aðlög-
unarkerfið sársaukafyllra,“ segir í
skýrslu S&P.
„Óheppilegt og óvænt, sérstak-
lega í ljósi þess að matsfyrirtækið
Moody‘s gefur okkur hæstu
einkunn,“ segir Geir Haarde for-
sætisráðherra. „Ég tel að þeir [S&P]
séu ekki á réttu róli með þetta mat
sitt.“ Um þau varnaðarorð sem
komu fram í síðustu skýrslu S&P í
sumar segir Geir: „Það var auðvit-
að brugðist við þeim. Við gripum
hér til sérstakra aðgerða í sumar.
Við hægðum á öllum framkvæmd-
um þar til ljóst var að óhætt var að
hleypa þeim af stað á nýjan leik.“
Geir segir að ekki verið hvikað frá
núverandi stefnu. „Krónan er ekki
að hrynja.“
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
segir að þessi breyting komi honum
örlítið á óvart, enda hafi ríkið ekki
verið talið vera í neinni lánsfjár-
þörf og verið að greiða niður skuld-
ir. Seðlabankinn spáir því ekki að
vextir muni hækka frekar, þótt
ekkert sé hægt að útiloka í þeim
efnum. „Við teljum að það þurfi þá
mikil og vaxandi ótíðindi til að
vextir hækki frekar.“
Glitnir er eini bankinn sem er
með lánshæfismat frá S & P og var
það staðfest.
Kosningaslaki rýrir láns-
hæfismat íslenska ríkisins
Krónan féll kröftuglega í kjölfar frétta um lækkun S&P á lánshæfiseinkunnum ríkissjóðs. Þensluhvetjandi
aðgerðir í ríkisfjármálum eru á skjön við peningamálastefnuna.