Fréttablaðið - 23.12.2006, Síða 2
Guðmundur Jónsson, forstöðumaður
meðferðarheimilisins Byrgisins, hefur verður kærð-
ur af 24 ára konu fyrir kynferðisbrot og að misnota
aðstöðu sína er hún var í meðferð á Byrginu. Þetta
staðfestu Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn og
Sigurbjörn Víðir Eggertsson rannsóknarlögreglu-
maður í gær.
Þá er hann einnig kærður fyrir að draga að sér fé
frá konunni en hún segir hann hafa haft af sér fjórar
milljónir króna eins og fram kom í viðtali við kon-
una í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 á fimmtudags-
kvöld.
Tekin var skýrsla af konunni í gær en líklegt er
að lögreglan á Selfossi og lögreglan í Reykjavík
muni vinna í sameiningu að rannsókn málsins.
Sagðist konan í þættinum hafa átt í ástarsam-
bandi við Guðmund frá 18. nóvember 2004 en hún
var þá í meðferð á Byrginu. Stóð það yfir í rúm tvö
ár.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, segir nauð-
synlegt að upplýsa um það hvort Guðmundur Jóns-
son hafi misnotað stöðu sína sem forstöðumaður
Byrgisins en meðferð þar byggir öðru fremur á
trúarlegum grunni. „Það er alveg sama hvernig á
þetta er litið, málið er á allan hátt hræðilegt. Þessar
ásakanir eru það alvarlegar að það verður að fara
fram nákvæm skoðun á þessu máli. Mér fannst
umfjöllunin í sjónvarpi [þáttur Kompáss] fara út
fyrir öll velsæmismörk en það er annað mál og létt-
vægara. Ef þessar ásakanir reynast sannar þá þarf
að horfa til þess hversu alvarlegt það er að misbeita
stöðu sinni undir trúarlegu yfirvarpi. Það er algjör-
lega ólíðandi.“
Hilmar Baldursson, lögmaður Guðmundar, sagði
kæru á hendur 365 miðlum hafa verið lagða fram
vegna umfjöllunar Kompáss. Hann sagði málið nú
vera komið í eðlilegan farveg. „Það er svolítið ein-
kennilegt að hægt sé að fara upp á fréttastofu Stöðv-
ar 2 og ausa úr skálum reiði sinnar yfir nafngreinda
menn án þess að það sé stutt með haldbærum sönn-
unum sem mark er á takandi. Hins vegar er málið
nú komið í eðlilegan farveg og verður ekki rekið í
fjölmiðlum af okkar hálfu.“
Konan lagði fram ýmis gögn er kæran var lögð
fram hjá lögreglunni í Reykjavík. Meðal annars
myndbandsupptökur, tölvupósta og önnur gögn um
er vörðuðu fjármál.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Guð-
mund Jónsson í gær.
Guðmundur kærður
fyrir kynferðisbrot
Guðmundur Jónsson hefur verið kærður fyrir að misnota stöðu sína sem for-
stöðumaður Byrgisins. Ólíðandi ef ásakanir um misbeitingu undir trúarlegu yfir-
varpi reynast réttar, segir biskup. Ekki fjölmiðlamál, segir lögmaður Guðmundar.
Jakobína, ertu smeyk við reyk?
„Lagalegur réttur vímu-
efnasjúklinga er ekki nægilega
tryggður. Því er hægt að fara illa
með sjúklinga án þess að brjóta
lög,“ segir Þórarinn Tyrfingsson,
yfirlæknir hjá meðferðarstofn-
uninni SÁÁ. „Sjúklingar okkar
eru mjög áhrifagjarnir og líta
upp til þeirra sem eru að aðstoða
þá og meðhöndla.“
Í almennum hegningarlögum
segir að ef umsjónarmaður eða
starfsmaður í fangelsi, á geð-
sjúkrahúsi, vistheimili, uppeldis-
stofnun eða annarri slíkri stofn-
un hefur samræði eða önnur
kynferðismök við vistmann á
stofnuninni varðar það fangelsi
allt að fjórum árum.
Þórarinn segir að ekkert sé
beinlínis í lögum um þá sem séu
haldnir vímuefnavanda. „Það er
kannski vegna þess að fólk gerir
sér ekki grein fyrir því hvað dóm-
greind þeirra er skert fyrst eftir
að þeir hætta í neyslunni. En nýj-
ustu rannsóknir hafa sýnt það að
þeir eru gríðarlega áhrifagjarnir
og jafnvel játa á sig glæpi og
annað sem ekki er fótur fyrir.“
Engar reglur eða lög eru til
um að stofnanir setji sér siða-
reglur og þeim því í sjálfsvald
sett hvort og þá hvers konar siða-
reglur þær setji sér. Þá ber stofn-
unum engin skylda til að tilkynna
brot á siðareglum til yfirvalda
nema um saknæmt athæfi sé að
ræða.
Þórarinn segir að í seinni tíð
hafi menn farið að tala um að
þörf sé á strangari og formlegri
siðareglum.
Greinargerð sem Magnús
Stefánsson félagsmálaráðherra
óskaði eftir frá stjórn Byrgisins
barst ráðuneytinu í gær. Hún
verður tekin til skoðunar á á
þriðjudaginn.
Þarf að horfa til þess
hversu alvarlegt það er
að misbeita stöðu sinni undir trú-
arlegu yfirvarpi. Það er algjörlega
ólíðandi.
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
CADILLAC ESCALADE
Nýskr. 01.06 - Sjálfskiptur - Ekinn 12 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
8.200
.000.
-
Mjög slæmt veður var víða
á landinu í nótt og er útlit fyrir
áframhaldandi vonskuveður fram
eftir degi norðanlands. Veðrið
skánar til muna sunnan- og
suðvestanlands eftir hádegi og er
útlit fyrir fínt veður til jólagjafa-
kaupa á flestum stöðum landsins í
kvöld, að sögn Sigurðar Þ.
Ragnarssonar veðurfræðings.
Á morgun, aðfangadag, verður
líklega rigning og strekkingsvind-
ur á öllu landinu fyrir hádegi en
hæglætisveður þegar fer að
nálgast jólamatinn. Hiti verður á
bilinu 7 til 13 stig, sem Sigurður
segir óvenjulega hlýtt á þessum
árstíma.
Viðrar vel til
jólagjafakaupa
Harðir bardagar
geisa nú í Sómalíu milli hermanna
stjórnarinnar, sem nýtur stuðn-
ings frá Eþíópíu, og liðsmanna
múslímahreyfingar sem vill taka
völdin í landinu.
Stjórnarherinn segist hafa fellt
600 múslima, en sveitir múslima
segjast hafa fellt 400 stjórnarliða.
Þær tölur hafa þó ekki verið
staðfestar.
Múslimar hafa einnig beint
spjótum sínum að hermönnum frá
Eþíópíu og vilja hrekja þá úr
landi. Í gær sendi Eþíópíustjórn
síðan frá sér yfirlýsingu þar sem
hún sagði þolinmæði sína vera á
þrotum.
Hundruð fallin
Minningarathöfn um Jan
Nordskov Larsen, danska
sjóliðann sem lést er skipverjar á
danska varðskipinu Triton
freistuðu þess að bjarga áhöfn
flutningaskipsins Wilson Muuga,
fór fram um borð í Triton í gær.
Sjö skipverjar af Triton sluppu
ómeiddir þegar björgunarbáti
þeirra hvolfdi í miklu brimi
skammt frá strandstað flutninga-
skipsins Wilson Muuga sunnan
við Sandgerði skammt frá
Hvalsnesi. Jan Nordskov
drukknaði áður en þyrlu Land-
helgisgæslunnar tókst á ná
honum upp úr sjónum við erfiðar
aðstæður.
Minntust sjólið-
ans sem lést
Bandaríkjastjórn
notar fé eyrnamerkt þróunarlönd-
unum til að múta þeim löndum
sem hafa kosningarétt í öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna. Fá
þessar þjóðir 59 prósentum meira
fé á ári frá Bandaríkjunum meðan
þær hafa sæti í ráðinu, segir í
frétt breska blaðsins Guardian.
Þetta kemur fram í nákvæmri
greiningu Ilyana Kuziemko og
Eric Werker, vísindamanna við
Harvard-háskólann, á gögnum
sem ná fimmtíu ár aftur.
Hjálparstofnanir brugðust illa
við fréttunum. „Hjálpin ætti að
fara til þeirra sem á henni þurfa
að halda,“ hefur blaðið eftir
Duncan Green hjá Oxfam.
Sögð beita mút-
um í öryggisráði
Ekkert bendir til þess að
rangar ákvarðanir hafi leitt til
þess að hinn 25 ára gamli Jan
Nordskov Larsen, danskur skip-
verji á danska varðskipinu Triton,
lést við björgunaraðgerð skammt
frá strandstað flutningaskipsins
Wilson Muuga við Hvalsnes.
Þetta staðfesti Klaus Randrup,
yfirmaður upplýsingamála hjá
danska sjóhernum, í samtali við
Fréttablaðið í gær. Starfsmenn
rannsóknardeildar sjóhersins hafa
að undanförnu yfirheyrt skipverja
á Triton og einnig skipstjórann Ulf
Michael Berthelsen.
„Það hefur ekkert komið fram
sem bendir til þess að rangar
ákvarðanir hafi leitt til slyssins.
Fyrst og fremst var um erfiðar
aðstæður að ræða sem voru
ófyrirsjáanlegar. Mótorar björg-
unarbátsins gáfu sig og það olli því
að báturinn var stjórnlaus í miklu
brimi sem endaði með því að
honum hvolfdi,“ sagði Randrup.
Rannsóknardeild lögreglunnar
í Keflavík hefur undanfarna daga
yfirheyrt skipverja á Wilson
Muuga. Ekki hefur enn fengist
skýr niðurstaða á hvað olli því að
sjálfstýring skipsins bilaði. Lög-
reglumenn og sérfræðingar hafa
farið um borð í skipið og yfirfarið
vélar þess en niðurstöður þeirrar
skoðunar liggja ekki fyrir.
Rannsóknarnefnd sjóslysa
vinnur enn að yfirheyrslum vegna
strandsins en þeirri vinnu er ekki
lokið ennþá.
Ekkert óeðlilegt komið í ljós