Fréttablaðið - 23.12.2006, Síða 4

Fréttablaðið - 23.12.2006, Síða 4
Sjávarútvegsráðherr- ar Evrópusambandslandanna komu sér í fyrrinótt saman um fiskveiðiheimildir næsta fiskveiði- árs í lögsögu sambandsins. Sókn í þorskstofninn í Norðursjó verð- ur dregin saman um fimmtung, en fiskifræðingar höfðu ráðlagt mun róttækari niðurskurði til að bjarga stofninum frá algeru hruni vegna ofveiði síðustu ára og áratuga. Veiðiheimildir voru líka minnk- aðar í nokkrar aðrar eftirsóttar fisktegundir, en þær voru auknar í aðrar til að bæta útgerðarmönn- um að nokkru leyti upp missinn. Ráðherrarnir höfðu setið á rök- stólum um kvótaútdeilinguna í á þriðja sólarhring þegar niður- staða fékkst loks. Sóknin verður takmörkuð mest á miðunum vest- ur af Skotlandi og í Keltneska haf- inu við Írland. Þorskkvótinn var minnkaður þar um 20 prósent og um 15 prósent í nokkra aðra stofna, að því er Joe Borg, sem fer með sjávarútvegsmál í fram- kvæmdastjórn ESB, greindi frá. Borg hét því að hrinda í fram- kvæmd róttækri áætlun sem miðar að því að bjarga þorskstofn- inum í Norðursjó og öðrum haf- svæðum sem heyra undir fisk- veiðilögsögu ESB. Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til á síð- astliðnum þremur árum í þessu skyni hafa ekki skilað áþreifan- legum árangri. „Þorskstofninn er í slæmu ástandi á öllum miðum ESB,“ sagði hann, en bætti við að nýjustu seiðatalningar bentu til að gera mætti sér vonir um að til betri vegar horfði. Carol Phua, talsmaður alþjóð- legu náttúruverndarsamtak- anna WWF, sagði aðgerðir ESB til verndar fiskistofnum langt frá því að vera nægilegar. „Pól- itísk hrossakaup um kvóta halda áfram, á meðan ástandið í hafinu versnar. Þeir eru að skjóta sig í fótinn,“ sagði hann um niðurstöðu ESB-ráðherranna í ár. Hrun ansjósustofnsins í Biskajaflóa leiddi til þess að sam- staða náðist um að banna veiðar úr honum í bili. Einnig verða síldar- og lönguveiðar dregnar talsvert saman í lögsögu sambandsins. Ráðherrarnir ákváðu enn frem- ur strangari reglur um möskva- stærð og strandveiðar í Miðjarð- arhafi. Þorskveiðar skornar niður um fimmtung Eftir nærri þriggja sólarhringa átakafund komu sjávarútvegsráðherrar ESB sér í gær saman um fiskveiðikvóta næsta árs í lögsögu sambandsins. Sókn í þorsk og fleiri ofveiddar tegundir var minnkuð en þó ekki eins mikið og fiskifræðingar ráðlögðu. Hátíðleg jólagjöf Helga himneska stjarna er ljóðperla Sigurbjörns Einarssonar biskups við lag Steins Kárasonar. Flutt af Schola cantorum og félögum úr kammersveit Hallgrímskirkju. Stjórnandi Hörður Áskelsson. Útsetning Atli Heimir Sveinsson. utningi Hrólfs Sæmundssonar bariton við orgelundirleik Steingríms Þórhallssonar. Kærleikur á hvert heimili. . ng Steinn.is s. 8966824 Benedikt sextándi páfi segir að ársins 2006 verði minnst fyrir þá hættu sem hann segir vera á átökum milli menningar- heima og trúarbragða. Hann hvatti til þess að efnt yrði til frekari samræðna milli kristinna manna og múslima. Hann sagðist hafa sérstakar áhyggjur af átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Páfi sagði þetta í gær þegar hann flutti áramótaræðu sína í Klementínusalnum í Páfagarði og kom þar inn á mörg helstu hugðarefni sín, eins og til dæmis skírlífi presta og andstöðu við hjónabönd samkynhneigðra. Vill samræður við múslima Árni Mathiesen fjármálaráðherra telur að lækk- un Standard & Poor´s á lánshæfis- einkunn ríkissjóðs gefi ekki til- efni til breytinga á stefnu í ríkisfjármálum. Stjórnvöld hafi greinilega öðruvísi sýn á framtíð- ina en matsfyrirtækið. „Það læðist að manni sá grun- ur að vegna þess hversu hagvöxt- ur hefur verið mikill á undanförn- um árum þá séu menn ekki búnir að átta sig á því að það er spáð sex prósenta samdrætti í þjóðarút- gjöldum á næsta ári. Það jafnast á við það mesta sem við höfum séð síðustu fjörutíu árin.” Í skýrslu S&P er sérstaklega tekið fram að þensluhvetjandi áhrif sem verða til vegna breyt- inga frá upphaflega fjárlaga- frumvarpi nemi yfir þrettán milljörðum króna. Árni bendir á að af þessari upphæð falli níu milljarðar til vegna lækkaðra vörugjalda og virðisaukaskatts á matvælum. Að mati Árna hafi þetta verið rétti tímapunkturinn að láta lækk- un matvælaverðs koma fram. Ekki megi heldur gleyma því að stefnt sé að tíu milljarða afgangi af fjárlögum. Fjármálaráðherra segir það sé nokkuð erfitt að átta sig á þessu mati þar sem aðeins vika sé liðin síðan Moody´s staðfesti sitt mat. „Af þessu matsfyrirtækjum er Standard og Poor´s það sem breyt- ir sínu mati oftast og ekki nema ár síðan þeir breyttu okkar mati til hækkunar.“ Hafa ólíka sýn á framtíðina Miklar truflanir urðu á innanlands- og millilandaflugi vegna veðurs í gær. Fjölmargir flugfarþegar þurftu að bíða klukkustundum saman eftir að komast í flug. Langar raðir mynduðust út úr flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli fyrir þrjú flug sem farin voru til Akureyrar í gær og komust færri að en vildu. Engar vélar fóru eftir klukkan fimm í gær og er spáin tvísýn fyrir daginn í dag. Þá urðu miklar tafir á milli- landaflugi í gær fóru síðustu morgunvélarnar ekki í loftið fyrr en upp úr hádegi. Færri komust í flug en vildu Almannavarnarnefndir í Árnessýslu afléttu í gærmorgun viðbúnaðarástandi í sýslunni vegna flóðahættu. Sjatna fór í Ölfusá í fyrrakvöld en flóðið náði hámarki um klukkan fimm og hafði rennslið þá náð ríflega sexföldu meðalrennsli árinnar. Búið er dæla vatni úr nokkrum húsum sem flætt hafði inn í. Ljóst þykir að gríðarmiklar skemmdir hafi orðið á girðingum og ýmsum öðrum mannvirkjum í uppsveitum sýslunnar, auk þess sem hey hefur spillst eða flotið burt. Vegir eru víða skemmdir, en Vegagerðin vann að viðgerðum á þeim í gær og vonaðist til að ná að ljúka þeim fyrir daginn í dag. Skriðuhætta í Eyjafirði er þá liðin hjá. Tekið að sjatna í flóðunum Fjárhagstoð Reykja- víkurborgar hækkar um 8,8 prósent frá og með næstu áramótum. Fjárhagsaðstoð til einstaklinga eldri en átján ára hækkar úr 87.615 krónum í 95.325 og aðstoð til hjóna og fólks í skráðri sambúð úr 140.184 krónum í 152.520 krónur á mánuði. Hækkunin er í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð til framfærslu en grunnfjárhæð hennar ber að endurskoða árlega í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar. Hækkunin var samþykkt á fundi borgarráðs í gær. Einstaklingar fá 95.325 á mánuði © GRAPHIC NEWS Norður- sjór Biskajaflói Keltneska hafið Vestur-Skot- landsmið ÍRL. HOLL. DANM. SVÍÞJÓÐ NOREGUR BRETLAND ÞÝSKAL. BELGÍA FRAKKLAND SPÁNN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.