Fréttablaðið - 23.12.2006, Síða 16
Aurskriða féll á þjóð-
vegi númer E6 nærri Munkedal í
suðvesturhluta Svíþjóðar á
miðvikudagskvöld og reif í sundur
400 metra langan kafla vegarins.
Minnst 26 manns voru fluttir á
sjúkrahús en enginn þeirra reynd-
ist alvarlega slasaður. Fjölmargir
bílar eyðilögðust í hamförunum
og unnið var að því í gær og fyrra-
dag að tína þá upp úr aurnum, en
ellefu bifreiðar fóru á kaf í drull-
una.
Jafnframt skemmdust lestar-
teinar í hamförunum.
Þrátíu kílómetra löngum kafla
vegarins var lokað af ótta við frek-
ari aurskriður, og hafa sænsk
samgöngumálayfirvöld tilkynnt
að vinnan við enduruppbygging-
una verði tímafrek. Hingað til
hafa um fimmtán þúsund bílar
farið á degi hverjum eftir vegin-
um, sem liggur eftir vesturströnd
Svíþjóðar og yfir til Noregs.
„Þetta er meginæð umferðar
milli Noregs og Danmerkur, svo
ég held þetta geti reynst sumum
[bílstjórum] þungbært. Þeir neyð-
ast núna til að ferðast eftir minni
vegum,“ sagði Thomas Anders-
son, talsmaður samgöngumála-
ráðuneytis Svíþjóðar. Hann bætti
við að búast mætti við að viðgerð-
in tæki allt að þremur mánuðum.
Miklar rigingar hafa verið á
svæðinu undanfarið og eru þær
taldar hafa valdið skriðunni.
Árið 2006 ætlar
að slá öll met í fjölda innflytj-
enda til Svíþjóðar, því ljóst er að
um hundrað þúsund manns
bætast aðfluttir í íbúafjöldann í
ár.
Fjöldinn í ár er 48 prósentum
meiri en árið 2005.
Flestir innflytjendurnir eru
frá Írak, Póllandi og Serbíu og
Svartfjallalandi, samkvæmt
upplýsingum frá hagstofu
Svíþjóðar.
Jafnframt eru fæðingar í
Svíþjóð fimm prósentum fleiri í
ár en var á síðasta ári, en
dánartíðnin stendur í stað.
Samanlögð áhrif aukinnar
fæðingartíðni og fjölgunar
innflytjenda gera það að
verkum að íbúum landsins
fjölgar um 0,7 prósent og eru
þeir nú orðnir 9,11 milljónir.
Innflytjenda-
met í Svíþjóð
Georgíumenn hafa
fallist á að greiða Rússum frá og
með áramótum sem svarar
rúmlega sextán þúsund krónum
fyrir þúsund rúmmetra af gasi,
að því er rússneska gasorkufyrir-
tækið Gazprom upplýsti í gær.
Þetta er meira en helmingi
meira verð en Georgíumenn hafa
til þessa greitt Rússum fyrir gas.
Georgíustjórn hefur sakað Rússa
um að refsa Georgíumönnum með
því að hækka gasverðið.
Zurab Nogaideli, forsætis-
ráðherra Georgíu, sagði hins
vegar í gær að Georgíumenn
myndu fá megnið af því gasi sem
þeir þurfa frá Aserbaídjan.
Georgía fellst á
verðhækkun
Sjóvá Forvarnahús
hvetur landsmenn til að fara
varlega með kertaskreytingar og
staðsetja þær ekki nálægt eldfimu
efni, til dæmis gardínum, nú þegar
sá árstími fer í hönd, jól, áramót
og þrettándinn, þar sem kerta-
brunum fjölgar.
„Skýringin er væntanlega sú að
kertanotkun er meiri og ekki síður
að skreytingar eru farnar að þorna
og eru eldfimari fyrir bragðið. Það
sem af er desember hafa tólf
kertabrunar verið tilkynntir til
tryggingafélaganna, sem er mun
minna en undanfarin sex ár. Að
meðaltali hafa þeir verið 44 fyrstu
þrjár vikurnar í desember.“
Kerti ekki ná-
lægt gardínum
Erlendir starfs-
menn eru óðum að fljúga utan í
jólafrí. Flestar brottfarir verða frá
flugvellinum á Egilsstöðum á
Þorláksmessu en þá fara átta hundr-
uð til níu hundruð Pólverjar í beint
flug til Póllands. Pólverjarnir
koma aftur til landsins milli jóla
og nýárs eða í byrjun nýja ársins.
Ingólfur Arnarson, flugvallar-
stjóri á Egilsstöðum, segir að dag-
legt flug hafi verið um nokkurra
mánaða skeið frá Egilsstaða-
flugvelli. Um þessar mundir séu
fleiri að fara en koma til Egils-
staða en brottfarir séu þó ekkert
fleiri nú fyrir jólin en venjulega
hefur verið í desember síðustu ár.
Um tólf hundruð til þrettán
hundruð erlendir starfsmenn eru
hjá Bechtel í Reyðarfirði. Björn S.
Lárusson, samskiptastjóri hjá
Bechtel, segir að Bechtel hafi
verið með beinar flugferðir til
Póllands frá Egilsstöðum upp á
síðkastið og stundum fimm ferðir
á dag.
„Það verða hundrað og fimmtíu
starfsmenn við störf, fyrst og
fremst sérfræðingar sem setja inn
vélar og tæki í þær byggingar sem
reistar hafa verið,“ segir hann og
telur að yfirbragðið verði með
rólegra móti á starfssvæði Bechtel
um jól og áramót.
„Fyrsta vélin kemur til Egils-
staða strax eftir áramót og svo eru
aðrir að tínast þangað milli jóla og
nýárs og fram yfir áramót,“ segir
hann.
Ómar R. Valdimarsson, talsmað-
ur Impregilo, segir að tæplega þrjú
hundruð af tæplega ellefu hundruð
starfsmönnum á Kárahnjúkum fari
heim um jólin, flestir Portúgalar,
Kínverjar og Ítalir. Þrettán
fjölskyldur verði á Kárahnjúkum
yfir jólin.
Starfsmenn á höfuðborgarsvæð-
inu eru líka farnir að tínast brott.
Loftur Árnason, framkvæmda-
stjóri Ístaks, áætlar að yfir hundr-
að og fimmtíu erlendir starfsmenn
Ístaks séu að yfirgefa landið þessa
dagana og taki sér heldur lengra
jólafrí en Íslendingarnir. Þeir komi
ekki aftur fyrr en eftir áramót.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir að vélar
félagsins séu yfirleitt fullar og það
sama hafi gilt nú fyrir jólin. Hann
kveðst ekkert geta sagt um það
hvort brottfarir erlendra starfs-
manna séu fleiri en venjulega nú
fyrir jólin.
Útlendingarnir streyma í jólafrí