Fréttablaðið - 23.12.2006, Qupperneq 19
Allt virðist stefna í að japanski
bílaframleiðandinn Toyota taki
fram úr bandaríska bílaframleið-
andanum General Motors sem
stærsta fyrirtækið á þessu sviði á
næsta ári. Toyota ætlar að gefa í á
nýju ári og auka framleiðslu á
nýjum bílum um 4 prósent sem
jafngildir því að fyrirtækið búi til
9,42 milljónir bíla á árinu.
Til samanburðar áætl-
ar General Motors að
framleiða tæpar 9,2
milljónir bíla á næsta
ári. Greiningaraðilar
gera hins vegar ekki
ráð fyrir að þær áætl-
anir standist enda
búast þeir við sam-
drætti frekar en aukn-
ingu. Ástæðan liggur í því að bíla-
framleiðandinn bandaríski hefur
átt við taprekstur að stríða og
ætlar að loka nokkrum verksmiðj-
um á næstunni auk þess sem
30.000 manns verður sagt upp.
Aðrir bandarískir bílaframleið-
endur hafa átt við rekstrarvanda
að stríða og gripið til svip-
aðra
aðgerða.
Ólíkt General Motors ætlar
Toyota, sem skaust fram úr Ford í
bílaframleiðslu sem næststærsti
bílaframleiðandi heims fyrir
þremur árum, að reisa sex nýjar
framleiðslulínur um heim allan
fyrir lok þessa áratugar og fram-
leiða umhverfisvæna bíla í aukn-
um mæli.
Bandaríska dagblaðið The New
York Times býst við að Toyota geti
farið fram úr General Motors
snemma á næsta ári.
Toyota tekur fram úr GM
Stjórnvöld í Afríkuríkinu eiga í
viðræðum við Kínastjórn um töku
allt að tveggja milljarða dala eða
140 milljarða króna láns. Með lán-
tökunni er vonast til að hægt verði
að blása lífi í fremur dapurt efna-
hagslíf Simbabve.
Gangi lántakan í gegn mun
þetta vera stærsta erlenda lánið
sem stjórnvöld í Simbabve hafa
tryggt sér. Mestur hluti þess verð-
ur nýttur til að berjast við verð-
bólguna, sem mælist talsvert yfir
1.000 prósentum, auk þess sem
drjúgur hluti þess verður nýttur
til kaupa á matvælum, en þau eru
af skornum skammti.
Afríkuríkið er gríðarlega
skuldsett og segja stjórnmála-
skýrendur að um sé að kenna
bágri efnahagsstjórn Roberts
Mugabe, forseta
landsins. Stjórn-
völd hafa átt í
erfiðleikum með
greiðslu af
lánum banka-
stofnana en
Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn
varaði við því
fyrr í vikunni að
efnahagsástand
landsins gæti
versnað enn fre-
kakar.
Stjórnmálaskýrendur segja
Kínverja hafa á síðustu misserum
reynt að bæta samband sitt við
Afríku og héldu í þeim tilgangi
leiðtogafund Afríkuríkja fyrir
skömmu.
Mugabe horfir til Kína
Flestir greinendur telja líkur á að
heimsmarkaðsverð á hráolíu muni
hækka í næstu viku vegna aðgerða
OPEC, samtaka olíuútflutnings-
ríkja, til að stemma stigu við verð-
lækkunum á olíu á seinni hluta árs
og minnka umframbirgðir af olíu
helstu hagkerfa, samkvæmt
Bloomberg í gær.
Fréttaveitan segir 16 grein-
endur af 42 telja líkur á að olíu-
verð hækki, 13 að verðið fari niður
en jafn margir búast við óbreyttu
verði eða lítilli breytingu. Þá telja
nokkrir þeirra að hráolíuverðið
geti farið allt upp í 70 dali á tunnu
á næsta ári, sem er nálægt því
sögulega meti sem olíuverðið fór í
um miðjan júlí í sumar.
Bloomberg les
í olíuverðið
Svo virðist sem farsímafyrirtæki
séu að undirbúa baráttu um ind-
verska farsímafyrirtækið Hutchi-
son Essar, fjórða stærsta farsíma-
fyrirtæki Indlands.
Breski farsímarisinn Vodafone
staðfesti í gær að það væri að
þreifa fyrir sér og sagðist tilbúið
að greiða allt að 13,5 milljarða
dala eða 944 milljarða íslenskra
króna fyrir farsímafélagið, sem er
í eigu eins ríkasta manns Asíu.
Þá sagði bandaríski fjárfest-
ingasjóðurinn og indverska fjar-
skiptafyrirtækið Reliance Comm-
unications sömuleiðis að þau væru
að leita eftir allt að 15 milljörðum
dala eða rúmum milljarði króna til
að fjármagna tilboð í það. Þá munu
fjarskiptafélögin Maxis í Malasíu
og egypska félagið Orascom Tele-
com sömuleiðis hafa áhuga á ind-
verska félaginu.
Barátta far-
símarisa hafin
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
3
55
11
1
2/
06
Sölutímabil er til 24. des. 2006 kl. 18:00. Bókunartímabil er til og með 26. jan. 2007. Ferðatímabil er frá 10. jan.-31. maí 2007 á alla staði nema Gautaborg, Bergen, Halifax sem er til 15. júní.
Tilboðið gildir til allra áfangastaða nema Orlando og Salzburg. Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags. Takmarkað sætaframboð. Sjá nánari skilmála á www.icelandair.is
Þessar ferðir gefa 3.000 til 12.400 Vildarpunkta. Jólapakkarnir fást líka á söluskrifstofum Icelandair og í Fjarsölu í síma 50 50 100.
GEFÐU FRÍ Í JÓLAGJÖF
Evrópa 24.900 kr.*
Bandaríkin 34.900 kr.*
Saga Class Evrópa 49.900 kr.*
Saga Class Bandaríkin 54.900 kr.*
Einungis fyrir handhafa
Vildarkorta VISA og Icelandair.
Evrópa 29.900 punktar**
Bandaríkin 43.900 punktar**
**Greiða verður flugvallarskatta (Evrópa 8.200 kr., USA 13.200 kr.)*Skattar eru innifaldir í verði.
Komdu virkilega á óvart um þessi jól. Flugferð með Icelandair til Evrópu eða
Bandaríkjanna er besti jólapakkinn í ár.
+ Pantaðu jólapakkann á www.icelandair.is
20% barnaafsláttur gildir í almennu farrými.
Safnaðu
Vildarpunktum