Fréttablaðið - 23.12.2006, Side 24
Alþingi braut gegn sjálfstæði dóm-
stóla með lögum sem felldu úr
gildi ákvörðun Kjaradóms um
launahækkun til kjörinna fulltrúa
og dómara. Dómur
þess efnis var kveð-
inn upp í Héraðsdómi
Reykjavíkur á þriðju-
dag. Guðjón St.
Marteinsson dómari
við þann sama
Héraðsdóm Reykja-
víkur höfðaði dóms-
málið en hann vildi
ekki una lögunum.
Var það enda mat
hans að þau færu
gegn stjórnarskránni.
Þar sem fátítt er
að mál sem þetta sé
höfðað og enn fátíð-
ara að dómarar fari í
dómsmál er Guðjón
St. Marteinsson
maður vikunnar.
Eins og algengt er
um dómara berst
Guðjón lítið á í sam-
félaginu og hans verð-
ur aðeins vart á opin-
berum vettvangi
þegar hann fellir
dóma í málum sem
þykja fréttnæm.
Guðjón fæddist í
Reykjavík í júlí 1953.
Hann er elstur
þriggja bræðra, sonur
Guðrúnar Hjartar-
dóttur fyrrverandi
skrifstofumanns og
Marteins Björns
Skagfjörð Guðjóns-
sonar járnsmíða-
meistara. Eiginkona
Guðjóns er Edda Guð-
geirsdóttir íþrótta-
kennari og eiga þau
þrjú börn.
Guðjón lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Tjörnina
1975 og lögfræðiprófi frá Háskóla
Íslands 1981. Fyrstu árin eftir
lagaprófið starfaði hann sem full-
trúi hjá Tollgæslustjóra, Saka-
dómi og Lögreglustjóranum í
Reykjavík en 1989 varð hann dóm-
ari við Sakadóm Reykjavíkur og
svo Héraðsdóm Reykjavíkur.
Viðmælendum Fréttablaðsins
ber saman um að mannkostir
Guðjóns séu miklir, sama hvort
þeir koma úr röðum samstarfs-
manna við dóminn, sækjenda eða
verjenda. Sanngjarn og réttsýnn
voru orð sem flestir völdu honum.
Guðjón þykir ekki sérlega refsi-
glaður dómari en í því felst að
dómar hans eru alla jafna ekki
mjög þungir.
Guðjón er sagður vinna hratt
og fyrir vikið er hann afkastamik-
ill. Hann er óþolinmóður en hin
hliðin á þeim peningi er sú að
hann á það til að vera fljótfær.
Guðjón á gott með að ná til fólks
og birtist það glögglega í sam-
skiptum hans við vitni í
dómssalnum.
Guðjón St. Marteins-
son þykir skemmtileg-
ur maður og það er oft
fjör í kringum hann.
„Ansi ertu vel
búinn,“ sagði Guðjón
við Ástþór Magnússon
friðarsinna þegar hann
kom fyrir Héraðsdóm
íklæddur jólasveina-
búningi í desember
2002. Í frétt Morgun-
blaðsins af málinu sagði
að Guðjón hefði svarað
aðspurður að ekkert
meinaði mönnum að
klæðast slíkum búningi
í dómssal, allra síst í
desember.
Guðjón er afar
áhugasamur um fót-
bolta og spilar sjálfur
reglulega með hinum
nafntogaða félagsskap
Lunch United. Þar eru
innanborðs margir
þjóðkunnir menn og má
nefna Jón Steinar
Gunnlaugsson, Þórólf
Árnason, Sigmund Erni
Rúnarsson, Ásgeir
Sigurvinsson og Frið-
rik Þór Friðriksson. Á
yngri árum lék Guðjón
bæði handbolta og fót-
bolta með Fram og þótti
nokkuð liðtækur. Hann
er framherji í fótbolt-
anum og þykir hafa
góðan vinstri fót.
Guðjón fylgist líka
grannt með ensku
knattspyrnunni og í
hans huga er aðeins eitt knatt-
spyrnulið í Manchester - Manchest-
er City. Þarf hann stundum að þola
háðsglósur vegna þess frá félög-
um sínum enda hefur City staðið í
skugga nágrannaliðsins United
um áratugaskeið.
Guðjón hefur einnig gaman af
að veiða og á sér mikinn og góðan
vin í hundinum sínum Skugga.
Sanngjarn og réttsýnn með
ólæknandi fótboltadellu
Hugtakið vörumerking þjóða er tiltölulega nýtt en kemur æ
oftar upp í umræðunni þegar þjóðir
horfast í augu við, í flestum tilfell-
um, vandamál af ýmsum toga. Mun
bíómyndin Borat hafa víðtækar og
alvarlegar afleiðingar fyrir landið
Kasakstan eða mun hún koma land-
inu á kortið? Er eitthvað vit í að
eiga viðskipti við fólk í Nígeríu?
Eru Finnar of hlédrægir til að ná
árangri á alþjóðavettvangi? Eru
Svisslendingar leiðinlegir? Eru
Íslendingar víkingar sem borða illa
lyktandi hákarl í öll mál og skola
niður með brennivíni?
Ímynd þjóðar er margslungin
og erfitt að kljást við neikvæða
eiginleika orðsporsins og hlægi-
legar staðalímyndir. Fæstar þjóðir
vilja kannast við persónuna sem
aðrir sjá í þeim sem þjóð, en í því
orðspori geta þó legið tækifæri.
Við tengjum jafnframt jákvæða
eiginleika við þjóðir og erum þess
flest fullviss að Þjóðverjar séu
heimsins bestu verkfræðingar og
skipuleggjendur, bestu kokkarnir
komi frá Frakklandi og frumkvöðl-
arnir og bestu sjómennirnir frá
Íslandi.
Það eru ekki allir á eitt sáttir um
nauðsyn og tilgang þessara nýju
hugmynda og
hvort það sé
yfirleitt hægt að
vörumerkja
þjóð. Ég skipa
afstöðu manna í
þrjá hópa; Als-
innar (Absolu-
tists), Krúnus-
innar (Royalists)
og Hófsamir
(Moderates), og
mun rétt tæpa á afstöðu þess fyrst
nefnda.
Alsinninn sér þjóðina sem fyrir-
bæri sem lýtur sömu lögmálum og
vara, þjónusta eða fyrirtæki. Þjóð-
ina er hægt að staðsetja og vöru-
merkja á sama hátt og nota til þess
tól markaðsfræðinnar. Alsinninn
telur að þjóð sé í eðli sínu háð breyt-
ingum og valdhafar og þegnar hafi
öldum saman reynt að staðsetja sig
meðal þjóða samfélagsins. Hann
spyr: Hvað var slagorð frönsku
byltingarinnar, „frelsi, jafnrétti,
bræðralag“ eða slagorð byltingar -
sinna í Bandaríkjunum, „líf, frelsi
og leitin að hamingju“ annað en til-
raun til að skapa þjóðinni sess á
meðal þjóða og staðsetja nýja aflið
gagnvart gamla stjórnskipulaginu?
Er einhver munur á milli slagorð-
anna „Iceland Naturally“ eða „Viet-
nam Value“ og „Brimborg - Örugg-
ur staður til að vera á?“ Alsinninn
telur að svo sé ekki.
Það er þó reginmunur þar á og
felst meðal annars í stjórnun vöru-
merkisins (brand management).
Stjórnunin felst í skipulagningu og
stýringu skilaboða, gæðum, fram-
leiðslu o.s.frv. á því sem vörumerk-
ið stendur fyrir í samanburði við
önnur vörumerki milli vöruflokka
og markaða. Þjóð er margslungið
fyrirbæri og verður ekki stýrt á
sama hátt og vöru eða þjónustu.
Hún getur verið eins mismunandi
og einstaklingarnir eru margir ef
svo má segja. Það kemur hins vegar
ekki í veg fyrir að hægt sé nota orð-
spor þjóðar til framdráttar vörum,
þjónustu eða fyrirtækjum viðkom-
andi þjóðar. Það er jafnframt mikil-
vægt að átta sig á að einkenni þjóð-
arinnar eru mismunandi milli
markaða og landa og engin ein þjóð
sér aðra í sama ljósi.
Megintilgangurinn með vöru-
merkingu þjóðar er sá að auka á
hagsæld þjóðarinnar með því að
styðja við og styrkja vörumerki
hennar. Það er hægt með því að
vernda orðspor þjóðarinnar með
aðferðum vörumerkingar og kynna
og halda fram jákvæðum eiginleik-
um sem markaðir tengja við þjóð-
ina og/eða landið og hægt er að yfir-
færa á vörumerki á viðkomandi
markaði.
Höfundur er viðskiptafulltrúi
Íslands fyrir Norður-Ameríku.
Vörumerking þjóða
Opið í dag: 10:00-22:00
á morgun 10:00-20:00