Fréttablaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 32
Skipverjum á njósnaskipi sleppt
Þetta er 240 hestafla bíll og
hann segir ekki ha? þegar
ég stíg á bensíngjöfina.
Frænka okkar,
Óla S. Þorleifsdóttir
Hrafnistu, Vífilsstöðum, Garðabæ,
Áður Dalalandi 4, Reykjavík,
andaðist á Vífilsstöðum miðvikudaginn 20. desember.
Minningarathöfn fer fram frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 28. desember kl. 15.00.
Aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Þórður Þorgeirsson
Staðarseli 3, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudaginn
27. desember kl. 13.00.
Inga Magdalena Árnadóttir
Árni Þórðarson
Inga Jytte Þórðardóttir Ólafur Már Ólafsson
Birgitta Svava, Steinar Þór, Þórunn Inga og Þorgeir.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
Kristjönu Margrétar
Sigurðardóttur,
Granaskjóli 12, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við þeim ættingjum og vinum
sem heimsóttu hana í veikindum hennar og starfsfólki á
Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun. Við óskum
ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Guðmundur Pétursson Þórunn Kristjánsdóttir
Ingibjörg Pétursdóttir Einar Gylfi Jónsson
Sigurður Pétursson Hansína Hrönn Jóhannesdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hildur Emilía Pálsson
Hjúkrunarheimilinu Eir, áður Stigahlíð 4
lést að kvöldi 19. desember. Jarðarförin auglýst síðar.
Stefánía Stefánsdóttir Björn Valgeirsson
Anna Guðnadóttir
Stefán H. Stefánsson Jórunn Magnúsdóttir
Kittý Stefánsdóttir Ólafur Ólafsson
Hrafnhildur Stefánsdóttir Valur S. Ásgeirsson
ömmu og langömmubörn.
Útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Sigríðar Fannýjar
Ásgeirsdóttur
frá Lækjarbakka, Skagaströnd,
fer fram frá Hólaneskirkju, Skagaströnd,
mmtudaginn 28. des. kl. 14.
Ása Jóhannsdóttir
Pétur Steinar Jóhannsson Guðrún Víglundsdóttir
Gissur Rafn Jóhannsson Gyða Þórðardóttir
Gylfi Njáll Jóhannsson Guðrún Ólafsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Maðurinn minn,
Gunnar Guðmundsson
lést á sjúkrahúsinu Egilsstöðum 17. desember.
Jarðarför fer fram í Djúpavogskirkju föstudaginn
29. desember kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda
Þórdís Guðjónsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Ingvar Breiðfjörð
lést á heimili sínu, Skólastíg 16, Stykkishólmi,
þriðjudaginn 19. desember. Útför hans fer fram frá
Stykkishólmskirkju föstudaginn 29. desember kl. 14.
Helga Magðalena Guðmundsdóttir
Skúli Guðmundur Ingvarsson Brynja Harðardóttir
Páll Kristinn Ingvarsson Kolbrún Jónsdóttir
Atli Már Ingvarsson Sesselja Eysteinsdóttir
Hrefna Jónsdóttir Gunnar Ólafsson
Barnabörn og barnabarnabörn
Þeir eru ófáir sem halda fast í þann sið
að snæða skötu á Þorláksmessu. Sigmar
B. Hauksson er einn þeirra, en hann
sótti skötuveislur á Naustinu í tuttugu
og tvö ár, þar til að veitingastaðnum var
lokað. „Þetta var alltaf sami hópurinn.
Við sátum við kóngaborðið á Naustinu,
þar sem erlendir þjóðhöfðingjar og kon-
ungar og drottningar Norðurlandanna
höfðu setið í veislum. Það greip okkur
mikið vonleysi þegar staðnum var lokað
í fyrra,“ sagði Sigmar.
Sigmar er ættaður af Vestfjörðum,
en skötuhefðin er talin eiga ættir sínar
að rekja þangað. „Heima hjá mér var
skatan étin af og til yfir veturinn, ekki
bara á Þorláksmessu,“ sagði Sigmar,
sem gerir slíkt hið sama í dag. „Konan
mín er líka Vestfirðingur og mikið fyrir
skötu. Við fáum okkur til dæmis smá
skötubita í hádeginu á gamlársdag. Það
er mjög gott ef maður er að vaka lengi
fram eftir og drekka mikið, þá er maður
alveg galvaskur daginn eftir,“ sagði
Sigmar. Hann hefur jafnframt tröllatrú
á mætti skötunnar.
„Fyrir nokkrum árum heyrði ég
erindi um skötu sem Halldór Hermanns-
son flutti á ráðstefnu um séreinkenni
Vestfirðinga. Hann sagði, og ég er alveg
sammála honum, að fólk sem borðaði
skötu færi að tala tungum. Ég hef sagt
það við erlenda vini mína að maður
verði svolítið „high“ af henni,“ sagði
Sigmar. Hann hefur einnig heyrt sögur
af því að skata fái læknað ýmiss konar
magakvilla. „Hallur kaupmaður, sem
var með Svalbarða á Framnesvegi, sagði
mér að það hefði komið til hans talsvert
af fólki með magasár og magabólgur
sem engin meðul hefðu læknað. Svo
fékk það sér skötu, og hákarl þess á
milli, og varð eins og nýtt,“ sagði Sigmar,
sem hefur lengi velt því fyrir sér að
benda Kára Stefánssyni á lækningamátt
skötunnar. „Ég hitti hann stundum í
ræktinni, ég hef bara gleymt að minnast
á þetta við hann,“ sagði hann graf-
alvarlegur.
Í fyrra reyndu Sigmar og félagar
hans fyrir sér með skötuveislu í heima-
húsi, en hann segir það ævintýri ekki
hafa gengið nógu vel. Í ár ætlar hópur-
inn því að leggja leið sína á veitingahúsið
Lauga-Ás. „Við bindum gríðarlegar
vonir við þann stað, þar eru miklir
fagmenn sem kunna þetta,“ sagði
Sigmar, sem að vonum finnst ómissandi
að bragða skötu á Þorláksmessu. „Það er
mjög skemmtilegur siður, eins og að fá
sér saltkjöt og baunir á sprengidag. Mér
finnst mjög gaman að við eigum þessa
siði og að þetta tilheyri okkar menn-
ingu,“ sagði hann.
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettab-
ladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysin-
gar@frettabladid.is eða hringja í
síma 550 5000.
FÆDDUST ÞENNAN DAG