Fréttablaðið - 23.12.2006, Page 54
Nýtt ilmvatn frá reyndum
framleiðanda.
Ilmirnir frá Cacharel hafa um ára-
bil verið mjög vinsælir hjá konum
víða um heim. Nú hefur þessi
framleiðandi sent frá sér nýjan
ilm, en hann er unnin í samstarfi
við konu að nafni Ellen von
Unwerth. Ellen þessi starfaði um
árabil sem fyrirsæta, eða þar til
hún hóf störf sem tískuljósmynd-
ari. Hún ætti því að vita sínu viti
um kvenleika og tísku og því var
hún ráðin sem hirðljósmyndari
við kynningar á þessu nýja ilm-
vatni.
Ilmurinn heitir Noa Perle og
eru gyðjan Venus og perlan, inn-
blásturinn á bak við ilminn. Fresí-
ur og appelsínu extrakt eru meðal
þess sem má greina á þessum ilmi
sem er kvenlegur og fágaður í
senn, en jafnframt léttur og dulúð-
legur. Ilmvatnsglasið er kringlótt
og á botni þess situr lítil eftirlík-
ing af perlu. Einkar fallegt og
kærkomið gjöf fyrir konur sem
kunna að meta vörur frá þessum
þekkta framleiðanda.
Perlan frá Cacharel
Fína fólkið lét sig ekki vanta á tískusýningu
Chanel í Monte Carlo á dögnum.
Tískusýningin fór fram í hinu magnaða nítjándu aldar
óperuhúsi Mónakó. Meðal áhorfenda voru Karólína
prinsessa af Mónakó og dóttir hennar og fyrirsætan
Charlotte Casiraghi. Auk þeirra voru ýmsar smærri
stjörnur á borð við frönsku leikkonuna Anna Mougla-
lis.
Fötin, sem voru hönnuð af Karl Lagerfeld, voru
sígild og smekkleg úr léttu efni. Litirnir voru allt
frá húðlitu og bláu til svarts. Skórnir voru settir
slaufum og sjá mátti endalaust tjull í sköpunarverki
Lagerfelds að þessu sinni.
Konunglegir gestir
Besta jólagjöfin
er góð heilsa
Heilsudrekinn er þitt val
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
jafnvægi fyrir líkama og sál • heilsugjafavörur • gjafabréf