Fréttablaðið - 23.12.2006, Qupperneq 56
Tímaritið People birti nýlega
lista fyrir fimm helstu tísku-
slysin, en athygli vekur að kon-
urnar á listanum eiga sameig-
inlegt að vera yfirleitt flottar í
tauinu. Lýsingu blaðamanna
People hefur hér verið snarað
yfir á okkar ástkæra ylhýra.
Í guðs bænum látiði Beyoncé vita
að Jane Fonde vilji fá Barbarellu
búninginn sinn frá 1968 aftur. Stíl-
istinn hennar á ekki gott í vænd-
um.
Þótt það borgi sig ekki alltaf að
fara öruggu leiðina í fatavali hefði
Eva Mendes átt að halda sig við
það sem hún þekkir best, þegar
hún mætti svona til fara á gala-
balli Amerísku búningastofnunar-
innar. Hver veit, kannski taldi hún
sig verða á meðal sýningargrip-
anna?
Eva Longoria var vissulega í
jólaskapi þegar hún eldaði þakk-
argjörðarmat í sjónvarpsþættin-
um Good Morning America, en
það var kannski óþarfi að ganga
svo langt að klæðast að hætti píla-
gríma.
Guð einn má vita hvað Keiru
Knightley gekk til þegar hún dró
þetta út úr fataskápnum heima hjá
sér. Kannski var hún að leita að
baðfötum en fann bara þetta dul-
arfulla pils (eða gardínu, við erum
ekki viss) sem hún dró upp um sig
með þessu forláta belti.
Mischa Barton er ekki með það,
íklædd bleiu og karlmanns hlýra-
bol, og lendir á botninum á listan-
um yfir verstu tískuslysin að mati
People. Fær þó hálft prik fyrir að
þora að láta sjá sig svona á
almannafæri.
Notaðu vikuna fyrir áramót til þess að
slaka á og gera þig sæta.
Eftir allt stressið fyrir jólin er fátt betra en að
liggja uppi í rúmi, lesa góðar bækur, maula
mandarínur og láta þreytuna líða úr líkaman-
um. Það er kannski eins gott því skammt
undan eru áramótin og hvern langar að vera
með bauga undir augum og herptar axlir þegar
ein stærsta veisla ársins rennur upp? Vikuna
milli jóla og nýárs er upplagt að nota til að
fegra útlitið og það þarf ekki að vera
flókið. Flest allt heppnast betur sé
það undirbúið með góðum fyrirvara
og þá gildir einu hvort um er að ræða
matarboð, ferðalag eða fallegt útlit.
Sofðu út (en ekki hvað?). Mundu að fá
þér léttmeti á borð við mandarínur
yfir miðjan daginn, gættu hófs í
veislum og farðu svo í heitt bað fyrir
háttinn og gefðu þér tíma til að sinna
fótunum. Nuddaðu þá upp úr grófum
kornamaska, klipptu neglur og pússaðu
yfirborð þeirra og settu svo glært nagla-
lakk á þær í lokin. Áður en þú ferð uppí
rúm skaltu reyna að gera nokkrar kvið-
æfingar því hvaða konu langar til að hafa
bumbu undir sparikjólnum? Það er vel
hægt að herða kviðvöðvana á einni viku.
Svo sefurðu líka betur eftir léttar æfingar.
Annar í jólum og þú byrjar daginn á hressandi
gönguferð. Hún fær blóðið til að streyma og
enn brennir þú einhverjum af þessum hátíð-
legu hitaeiningum. Gerðu
teygjuæfingar og fáðu
þér veglegan morgun-
verð, en hann gerir það
að verkum að þú átt
eftir að vera mettari
yfir daginn og gæta
meira hófs í veislum
dagsins.
Keyptu sjálfbrúnkandi
krem, kornakrem fyrir and-
lit og líkama, latex hanska,
raka-maska fyrir andlitið og
nuddhanska sem örva blóðrásina og fjarlægja
dauðar húðfrumur. Mikið framboð er af sjálf-
brúnkandi kremum sem flest eru góð, en
óhætt er að mæla með froðu frá Clinique
á líkamann og bæði líkams- og andlits-
kremum frá Shiseido.
Farðu í gufubað, heitu pottana og kald-
ar sturtur. Þetta örvar blóðrásina og
gefur húðinni fallegan ljóma. Mundu
líka að drekka vel af vatni yfir daginn.
Plokkun, litun, handsnyrting
og annað í þeim dúr er eitt-
hvað sem er heppilegt að
gera þennan dag. Sértu ekki
búin að finna áramótadressið
er ekki seinna vænna en að
hendast í búðir til að finna
það. Í Debenhams er starf-
andi stílisti sem getur aðstoð-
að við fatavalið og það er
eflaust gott að nýta sér það til
að vera alveg viss um að góðu
hliðarnar fái að njóta sín. Einnig er
gott að benda á að í mörgum verslun-
um er hægt að kaupa svokallaðar
„aðhaldsbuxur“ en það eru undirföt
sem grenna líkamann og geta minnkað
ummálið um nær eina stærð. Frá Oro-
blu koma góðar undirbuxur af þessu tagi
og í öllum betri undirfataverslunum er
úrval af þessum fatnaði.
Notaðu rakamaska á andlitið fyrir
svefninn og drekktu vatn!
Eftir vinnu er upplagt að skella
sér aftur í laugarnar og slaka á í
heita pottinum og gufunni. Í
sturtunni skaltu bursta húð-
ina á líkamanum og nota
kornakrem til að fjar-
lægja dauðar húð-
frumur, því þannig
undirbýrðu
húðina fyrir
brúnkukremið
sem þú setur
á þig um
kvöldið.
Þegar maður
ber á sig brúnkukrem er mikilvægt að hafa
það í huga að kremið dreifist mjög jafnt á
líkamann. Notaðu hanska við verkið
svo að hendurnar verði ekki flekkótt-
ar. Gættu þess að bera mjög lítið yfir
hné og olnboga. Láttu kremið þorna
áður en þú ferð í rúmið, skelltu þér í
sturtu um morguninn og berðu á þig
líkamskrem að lokum til að brúnk-
an njóti sín betur.
Drekktu grænt te til að losa lík-
amann við auka vatnssöfnun, borð-
aðu morgunverð og hlustaðu á góða
tónlist um leið og þú mátar sparifötin
og velur fylgihlutina. Finndu út hvaða
förðun hentar klæðnaðinum, til dæmis
með því að skoða myndir í tískublöð-
um. Prófaðu förðunina í dag svo þú sért
viss um að taka ekki neinar kjánalegar
„áhættur“ rétt áður en veislan byrjar.
Þá er síðasti dagur ársins runninn upp.
Sofðu nú eins lengi út og þig langar til, en þó
ekki svo lengi að þú fáir höfuðverk. Farðu á
fætur og berðu á þig góðan andlitsmaska áður
en þú skellir þér í sturtu. Gönguferðir eru allt-
af góðar eins og áður segir, og eins mælum við
með því að þú drekkir vel af vatni því fátt er
betra fyrir útlitið og heilsuna en næg
vatnsdrykkja. Hafðu vatnsbrúsa við
hendina allan daginn.
Áður en þú farðar þig er mjög mikil-
vægt að bera gott rakakrem á andlitið
og hálsinn. Því næst kemur hyljari á
bletti, svo farði, þar næst málarðu
augun (ef eitthvað smitast undir
augun má strjúka það af og bæta á
farðann).
Ljúktu verkinu með sólar-
púðri eða kinnalit og maskar-
ann skaltu setja á alveg í
lokin. Smelltu þér í spari-
fötin og þá er ekkert eftir
en að njóta sín og láta
ljósið skína í áramóta-
veislunni!
Sætasta stelpan í veislunni
Tískuslys stjarnanna