Fréttablaðið - 23.12.2006, Side 82
F
jöldi Bandaríkja-
manna lét gabbast árið
1938 þegar útvarps-
leikritið Innrásin frá
Mars eftir Orson
Welles var frumflutt
og hélt að Marsbúar hefðu fyrir
alvöru lent á jörðinni.
Svipuð voru viðbrögðin í Belgíu
þegar ríkissjónvarpið RTBF til-
kynnti að Flæmingjar hefðu lýst
yfir sjálfstæði. Þúsundir manna
hringdu í örvæntingu í fjölmiðla
og stjórnmálamenn og fjöldi fólks
þusti út á göturnar til að sýna
óánægju sína. Gabbið hafði verið
tvö ár í undirbúningi, en mætti
litlum skilningi þegar ljóstrað var
upp um það.
Mikill stuðningur er við
aðskilnaðaröfl í landinu og var
það markmið aðstandenda frétta-
rinnar að skapa umræðu um
málið. „Ætlun okkar var að kynna
belgískum áhorfendum hversu
miklu máli þetta skiptir fyrir
framtíð Belgíu og að mögulega
muni Belgía ekki vera ríki innan
nokkurra mánaða,“ sagði yfir-
maður RTBF. „Við hræddum þó
greinilega marga, fleiri en við
höfðum ætlað okkur.“
Hinn 20. júlí síðastliðinn átti
alþjóðlegi hoppidagurinn sér stað.
Skipuleggjendur hans sögðu að
600 milljónir manns á vesturhveli
jarðar hygðust hoppa látlaust í
tvær mínútur á slaginu 11.39.13 í
því skyni að færa jörðina af spor-
baug yfir í annan sem myndi
stöðva afleiðingar gróðurhúsa-
áhrifa.
Dagurinn var í raun gjörnings-
listaverk þýska listamannsins
Torsten Lauschmann, en margir
tóku þó hugmyndina alvarlega og
höfðu 600 milljónir manna skráð
sig til leiks, samkvæmt síðunni
www.worldjumpday.org, en það er
um helmingur allra netnotenda
heims. Þessar tölur voru þó lík-
lega falsaðar sem hluti af gabb-
inu.
Vísindamenn hafa bent á að
fjöldahopp af þessu tagi geti ekki
mögulega haft áhrif á sporbaug
jarðar, en aðstandendur verkefn-
isins héldu því fram að vegna
góðrar þátttöku hefði meðalhita-
stig jarðarinnar lækkað lítillega á
hoppidaginn.
Haustið 2005 birtist síða á netinu
þar sem tilkynnt var að leikarinn
góðkunni Christopher Walken ætl-
aði í forsetaframboð í Bandaríkj-
unum haustið 2008. „Landið okkar
góða er á hrikalegri niðurleið,“
var haft eftir Walken á síðunni.
„Við verðum að beina athygli
okkar að því sem er mikilvægt, að
sýna börnunum, borgurunum og
framtíðinni athygli. Það er tími til
kominn að koma Bandaríkjunum
aftur á beinu brautina.“
Walken kom af fjöllum þegar
hann var spurður út í hver stæði
fyrir síðunni í spjallþætti Conan
O‘Brien stuttu seinna. Honum
þótti uppátækið fyndið, en datt
aðspurðum ekkert betra kosninga-
slagorð í hug en „Enga dýragarða!
Ég vil að öll dýrin verði frjáls!“
Í árslok 1969 fór fjöllunum hærra
orðrómur um að Paul McCartney,
bassaleikari Bítlanna, hefði látist
árið 1966. Bítlarnir hefðu þó ekki
látið bugast og einfaldlega skipt
honum út fyrir annan söngvara.
Sá héti William Shears Campbell
og hefði unnið McCartney-eftir-
hermukeppni.
Aðdáendur Bítlanna kepptust
við að lesa í tónlist og plötuumslög
hljómsveitarinnar í leit að vís-
bendingum um lát McCartneys.
Með því að sjóða saman nokkur
textabrot komust þeir að því að
McCartney hefði látist í bílslysi.
Hann hefði ekki tekið eftir rauða
ljósinu af því að hann hefði verið
of upptekinn við að horfa á stöðu-
mælavörðinn Ritu.
Margar vísbendingarnar um
dauða Pauls má finna með því að
spila lög afturábak og er það helst
á plötunum Sgt. Pepper‘s, Magical
Mystery Tour, Hvíta albúminu og
Abbey Road sem vísbendingar er
að finna. McCartney er þó enn
sprelllifandi, þótt hann sé kannski
ekki kátur þessa dagana, enda
nýbúinn að ganga í gegnum erfið-
an skilnað.
Sagan segir að fljúgandi furðu-
hlutur hafi brotlent árið 1947 í
nágrenni við bæinn Roswell í Nýju
Mexíkó í Bandaríkjunum. Stjórn-
völd höfnuðu þessu og sögðu að
fyrirbærið hefði verið veðurloft-
belgur sem hrapaði. Þetta er ein af
mörgum ráðgátum um geimverur
sem áhugamenn um allan heim
hafa rýnt í.
Myndatökumaðurinn Ray Sant-
illi skaust fram á sjónarsviðið árið
1995 þegar hann sýndi myndband
af vísindamönnum að kryfja það
sem leit út fyrir að vera geimvera
frá öðrum hnetti. Hann sagði að
myndatökumaður úr bandaríska
hernum hefði tekið myndbandið
upp í tjaldi stuttu eftir Roswell
atvikið.
Árið 2006 viðurkenndi Santilli
reyndar að myndbandið væri fals-
að, en hélt því þó statt og stöðugt
fram að það væri endurgerð á
öðru myndbandi sem hann hafði
séð árið 1990, en týndist stuttu
seinna. Einnig væru nokkrir
rammar úr myndbandinu teknir
úr því myndbandi. Þetta hefur þó
ekki fengist sannað.
Í apríl árið 1983 keypti þýska
tímaritið Stern brot af texta sem
voru talin vera dagbækur Adolfs
Hitler, leiðtoga nasista og einræð-
isherra Þýskalands, frá árinu 1932
til dauðadags hans árið 1945.
Tímaritið borgaði tíu milljónir
þýskra marka fyrir textann og við
skoðun töldu fjölmargir virtir
sagnfræðingar hann vera ekta.
Blaðamaðurinn Gerd Heide-
mann sagðist hafa uppgötvað dag-
bækurnar og að þær hafi fundist í
flugvél sem hrapaði nálægt Dresd-
en árið 1945.
Allt þetta reyndist tómur upp-
spuni. Innan nokkurra vikna kom
í ljós að dagbækurnar voru illa
vandaðar falsanir, skrifaðar á
nútímapappír með nýrri gerð
bleks og fullar af sagnfræðileg-
um rangindum. Meðal annars
stóð skammstöfunin FH á for-
síðunni, en ekki AH, og hafði
falsarinn greinilega ekki þekkt
vel til gamaldags þýsks leturs.
Texti bókanna var að mestu feng-
inn beint upp úr gömlum ræðum
Hitlers.
Tímaritið beið mikinn álits-
hnekki vegna málsins og neyddust
ritstjórar þess til að segja af sér.
Sagnfræðingarnir sem höfðu farið
yfir handritin fengu einnig skömm
í hattinn, en upp komst um falsar-
ann bíræfna og fékk hann fjög-
urra og hálfs árs fangelsisdóm
fyrir uppátækið.
Á árunum 2000 og 2001 tóku að
birtast færslur á umræðuvefjum
áhugamanna um tímaflakk frá
manni að nafni John Titor. Sá sagð-
ist vera hermaður frá árinu 2036
sem hefði ferðast aftur í tímann til
að ná í IBM 5100 tölvu sem ríkis-
stjórnin þurfti til að stilla tölvur
framtíðarinnar.
Í skrifum sínum sagði Titor frá
atburðum framtíðarinnar og lýsti
því yfir að þriðja heimsstyrjöldin
væri í nánd, en hún á víst að hefj-
ast árið 2015 með kjarnorkuátök-
um í Mið-Austurlöndum. Hann
sagði einnig að upp úr árinu 2004
yrði mikil óöld í Bandaríkjunum
sem yrði til þess að borgarastríð
brytist út í kringum forsetakosn-
ingarnar 2008.
Titor vildi lítið gefa upp um
hvernig tímavélin hans virkaði,
en sagði að Ólympíuleikarnir
árið 2004 yrðu þeir seinustu sem
yrðu nokkurn tímann haldnir. Sú
spá brást þegar Vetrarólympíu-
leikarnir fóru fram í febrúar síð-
astliðnum með glæsibrag. Ekk-
ert hefur spurst til Titors síðan
2001.
Gabb, blöff og allt í plati
Á dögunum tilkynnti belgíska ríkissjónvarpið að flæmski hluti landsmanna Belgíu hefði lýst yfir sjálfstæði og hygðist stofna eigið
ríki. Fréttin olli uppþoti og reiði í landinu, en í ljós kom að hún var einungis vel undirbúið gabb. Steindór Grétar Jónsson skoðaði
fleiri göbb, framkvæmd í gróðavon eða gríni, sem hafa valdið heilabrotum gegnum tíðina.