Fréttablaðið - 23.12.2006, Side 84
Velkomin Elsa! Eins og þú kannski
veist þá er bílprófið í tveimur
hlutum, annars vegar er
bóklegt próf og hinsvegar
er verklegt próf.
Ég
skil.
Hefurðu
eitthvað keyrt
áður?
Já eitthvað
keyrði ég
nú þegar ég
var yngri í
sveitinni.
Glæsilegt,
og gekk það
ekki vel?
Já, það ætti
auðvitað að
vera góður
undirbúningur
en í raun gekk það
alveg hrikalega.
Jæja þá skulum
við bara byrja á
grunninum, hérna
niðri eru ..
Fingurna
af fitunni,
dónakall!
Slæmar
fréttir
strákar.
Foreldrar mínir
ætla að innrétta
kjallarann sem
skrifstofu þannig
að við getum ekki
æft hér lengur.
Og þess utan er ég orðinn
leiður á hljósmveitinni, ég
er hættur!
Allt í lagi.
Þetta er engin
ástæða til að örvænta,
við höfum séð það
svartara!
Það sem skiptir máli er
að við höldum saman í
gegnum þetta.
Herra dómari, ég verð
að óska eftir stuttu
hléi, svo virðist sem
kveiknað hafi í buxum
skjólstæðings míns af
einhverri dularfullri
ástæðu!
Hvar er skálin mín!?!
Hún er hér, og lítur út
fyrir að vera tóm.
Erum við að fara
að eignast annað
barn?
Jamm. Þrjú
börn!
Samkvæmt
mínum
útreikningum.
Ég er
svo
glöð.
Ég
líka
Bara að barni fylgi
stærra húsnæði.
Já það gæti orðið
nokkuð þröngt
um okkur.
Ég er svo heppin að
vera búin að koma
öllum nauðsynja-
vörum í hús fyrir
jólin og þarf því
lítið annað að gera
í dag en ekki
neitt. Ég er strax
farin að slaka á
og gleyma því að til
sé nokkuð sem heitir
vinnustaður. Ég er búin að fá mér
jólabjór og er eitt aulabros
eyrnanna á milli. Enda er ég í fríi,
jólafríi.
Ég hélt í fyrradag að ég myndi
ekki hafa þetta. Ég fór nefnilega í
Bónus, sem er hættulegur staður
svona rétt fyrir jól. Ég gaf mér
nokkrar sekúndur í að anda og
blása áður en ég greip mér gula
körfu í hönd og hélt inn á ólgandi
stríðssvæði úttaugaðra húsmæðra,
ráðvilltra eiginmanna og yfir-
spenntra barna. Marineraður víg-
völlur jólanna. Gular innkaupa-
körfur stefndu á mig úr öllum
áttum, taugatrekktur húsbóndi
fálmaði skelfingu lostinn eftir
bestu mandarínunum og ógnvekj-
andi konur í miðri matseld gáfu
mér illt auga þegar ég nálgaðist
mjólkurkælinn, enda rjóminn
alveg að klárast. Ég skipti um
ham. „Ég skal komast héðan út
lifandi. Ég skal ná rjómanum!“
hugsaði ég og tók á sprettinn með
gulu kerruna í eftirdragi sem ískr-
aði hærra og hærra eftir því sem
fráir fætur mínir báru mig hraðar
og hraðar í átt að rjómanum sem
beið mín bakvið skæruliða-
húsmæðurnar. „You can´t take
away my freedom!“ ómaði í huga
mínum og mér fannst ég svífa yfir
pulsurekkann með blaktandi hárið
í golu kjötkælisins, og viti menn,
ég náði rjómanum. Og ég komst út
lifandi. Ég er alveg með þetta.
Þannig að nú mega jólin koma
fyrir mér. Ég er sátt, ég á rjóma,
og ég á bjór og hvað þarf maður
meira um jólin?
Ég er búin að bíða eftir þessum
degi allan desembermánuð. Frí.
Ég ætla að segja það aftur. Frí.
Fallegt þetta orð, frí. Líka
skemmtilegt hvernig það rímar
við víííííí.
Góðar jólastundir.
ÁSKRIFTARSÍMI 550 5060 | WWW.VISIR.IS
JÓLABLAÐIÐ
KOMIÐ ÚT!
MÁLUM BÆINN RAUÐAN
ÆVINTÝRIÐ
Í ENGLABORG
LAGT Á HÁTÍÐARBORÐIÐ
100 HUGMYNDIR
FYRIR JÓLABÖRNIN