Fréttablaðið - 23.12.2006, Side 92
Carmel Sloane, 29 ára málari frá
Ástralíu, heldur því fram að hún
sé laundóttir Mels Gibson og fer
nú fram á DNA-próf til að sanna
mál sitt. Mamma Sloane, Mari-
lyn, segist hafa hitt Gibson þegar
hún var á puttaferðalagi um
Ástralíu áður en að hann varð
frægur. Gibson gaf henni far, og
aðeins meira, því eftir ástarnótt
í aftursætinu komst Marilyn að
því að hún var ólétt. Marilyn
ekki að setja sig í samband við
leikarann fyrr en árið 1995,
þegar hún komst að því að hann
hefði keypt sér hús í Ástralíu.
Hún náði þá ekki til hans áður en
hann var floginn aftur til Banda-
ríkjanna, og segist ekki hafa vilj-
að valda vandræðum, hún hafi
bara viljað láta hann vita af
Carmel.
Carmel segist ekki sækjast
eftir peningum frá leikaranum,
heldur vilji hún bara hitta mann-
inn sem hún hafi alltaf vitað að
sé faðir sinn. Eins vilji hún kynna
Gibson fyrir syni sínum, en það
er mál manna að stráksi líkist
óstaðfestum afa sínum töluvert.
Carmel hefur séð hverja einustu
mynd sem Gibson hefur leikið í,
og segist óska þess að hann við-
urkenni að þau séu skyld. Helst
af öllu vilji hún þó fá úr því skor-
ið hvort sagan sé sönn eða ekki.
Enn hafa engin viðbrögð bor-
ist úr herbúðum Gibsons, en
honum verður gert skylt að gang-
ast undir DNA-próf viðurkenni
hann ekki faðernið. Gibson hefur
verið giftur konu sinni í 26 ár og
er því að minnsta kosti ekki
sekur um framhjáhald.
Laundóttir Gibsons vill DNA-próf
Tónlistarmaðurinn Birgir
Örn Steinarsson, eða Biggi,
hélt tónleika í Hljómalind á
dögunum til að kynna sína
fyrstu sólóplötu, Id.
Biggi, sem er búsettur í London,
var einn með kassagítarinn á tón-
leikunum og spilaði lögin af plöt-
unni í sinni nöktustu mynd. Spilaði
hann einnig eldri lög með hljóm-
sveitinni Maus og náði upp nota-
legri stemningu á þessum litla tón-
leikastað. Biggi stefnir að því að
halda útgáfutónleika með hljóm-
sveit sinni á næsta ári.
Rapparinn 50 Cent greinir frá því
í nýlegu viðtali að hann hafi aðeins
verið 12 ára gamall þegar hann
stundaði kynlíf í fyrsta skipti. Í
dag er rapparinn þekktur kvenna-
maður og hikar ekki við að grobba
sig um það í lögum sínum, en í við-
talinu viðurkennir hann að hafa
verið glórulaus um hvað ætti að
gera í fyrsta skiptið. „Ég var 12
ára gamall og hún hefur verið 22
ára, og ekkert sérstaklega sæt. Ég
vissi ekkert hvað ég átti að gera
svo ég fylgdi henni í einu og öllu,“
segir 50 Cent um sína fyrstu kyn-
lífsreynslu.
Byrjaði ungur
Kim Porter, kona rapparans og
tískujöfursins P.Diddy eignaðist
tvíburadætur í vikunni. Fyrir á
rapparinn tvö börn, 12 ára gamlan
son úr fyrra hjónabandi og annan
átta ára gutta með Porter. Diddy
hefur ákveðið að skíra telpurnar
eftir ömmum sínum, eða Lila Star
og Jessie Smalls. P.Diddy hefur
lengi sagt að hann sé mikill fjöl-
skyldumaður og að hann vanti
bara stelpu í krakkaskarann og þá
sé allt klárt. Nú hefur hann aldeil-
is verið bænheyrður og mun vænt-
anlega hafa það unaðslegt í faðmi
fjölskyldunnar um jólin.
Eignaðist
tvíbura
Talið er að leikarinn Johnny Depp
muni koma fram á tónlistarverð-
laununum Brit Awards á næsta
ári. Depp mun
stíga á svið til að
afhenda rokk-
sveitinni Oasis
heiðursverðlaun
fyrir framlag
hennar til tónlist-
arheimsins.
Depp og Noel
Gallagher,
aðallagahöfund-
ur Oasis, hafa verið góðir vinir
síðan þeir hittust fyrst í gegnum
þáverandi kærustur sínar, Meg
Matthews og Kate Moss.
Á meðal þeirra sem munu troða
upp á Brit-verðlaununum eru Take
That, The Scissor Sisters og Amy
Winehouse.
Depp á Brit-
verðlaunum
Jimmy Chamberlin, trommari
hinnar endurreistu The Smashing
Pumpkins, segir að sveitin sé búin
að taka upp fjögur ný lög fyrir
næstu plötu sína.
„Við höfum verið upptekin við
að búa til hljóðrænt landslag með
hafsjó af gítar og helling af bassa,“
sagði Chamberlin. Fregnir herma
að hljómsveitin ætli að spila á
nokkrum tónlistarhátíðinum
næsta sumar til að kynna nýju
plötuna, sem hefur verið beðið
með mikilli eftirvæntingu af rokk-
urum um heim allan.
Fjögur lög
tilbúin