Fréttablaðið - 23.12.2006, Síða 94
Það er ekkert nýtt við The
Information, níundu stúdíóplötu
Becks. Hann hefur verið kallaður
kamelljón innan tónlistarbransans
enda hafa flestar plötur hans farið
í allt aðra átt en hann hafði áður
fengist við. Nú virðist sem Beck sé
kominn hringinn. The Information
er flott plata enda er á henni að
finna brot af flestu því besta sem
hann hefur gert. Beck er bara ekki
eins spennandi og hann var.
Fyrstu fjögur lögin eru frábær-
lega vel heppnuð, sér í lagi Strange
Apparation sem er eflaust eitt af
allra bestu lögum Becks frá
upphafi. Byrjunarkafli plötunnar
minnir á allt það besta sem hann
sýndi á Odelay, flott sömpl, flottir
taktar og yndislegar poppmelódíur.
Þetta heldur áfram í lögum eins og
Nausea, We Dance Alone og No
Complains en þegar líður á plötuna
fer honum að fatast flugið. Þá ger-
ast lögin bæði myrkari og tilrauna-
kenndari. Áhrif upptökustjórans,
Nigels Godrich, eru auðheyrð á
seinni helmingi The Information,
hér minnir margt á nýlega sóló-
plötu Thoms Yorke sem hann vann
að. Það er ekkert nýtt að Beck
skjóti inn nokkrum tilraunakennd-
um lögum á plötur sínar. Að þessu
sinni ganga þau bara ekki eins vel
upp og þau hafa gert áður. Auk
þess er seinni hluti plötunnar allt
of langur, þeir félagar hefðu skilað
af sér mun betra verki ef þeir
hefðu verið grimmari í niður-
skurðinum.
Það er engin ástæða til að afskrifa
Beck þó þessi plata hans valdi
nokkrum vonbrigðum. Hann getur
enn samið frábær popplög og gerir
það hér. Því miður skýtur hann yfir
markið í tilraunastarfseminni að
þessu sinni.
Kominn hringinn
Rapparinn Eminem hefur skilið í
annað sinn við æskuást sína Kim
Mathers, aðeins ári eftir að þau
giftust á nýjan leik.
Ákváðu þau að skipta eignum
sínum samkvæmt eigin samkomu-
lagi og munu þau hafa sameigin-
legt forræði yfir dóttur sinni,
hinni tíu ára Hailie Jade Scott.
Að sögn dómarans í málinu
gerðu Eminem og Kim sér grein
fyrir því að skilnaðurinn væri
endanlegur og voru þau yfirveguð
í dómsalnum.
Eminem og Kim giftust í annað
sinn þann 14. janúar. Sótti rappar-
inn um skilnað aðeins tæpum
þremur mánuðum síðar, eða 5.
apríl. Þau giftust fyrst árið 1999
en skildu 2001.
Eminiem, sem heitir réttu nafni
Marshall Bruce Mathers III, hefur
unnið níu Grammy-verðlaun á
ferli sínum, þar á meðal þrenn
fyrir bestu rappplöturnar: The
Slim Shady LP, The Marshall
Mathers LP og The Eminem Show.
Hann vann einnig Óskarinn fyrir
lag sitt Lose Yourself úr myndinni
8 Mile.
Eminem skilinn
Fyrir rúmum sex árum
reyndi bandaríski leikstjór-
inn Terry Gilliam að festa
á filmu sögu Miguel De
Cervantes um hug-
prúða riddarann Don
Kíkóta en nánast allt
fór úrskeiðis.
Terry Gilliam lýsti því hins
vegar yfir í fjölmiðlum nýverið
að hann gæti vel hugsað sér að
fara aftur á stað með myndina.
Gilliam hafði fengið Johnny Depp
og Jean Rochefort til að leika fyrir
sig en eftir að flóð og hvers kyns
veikindi settu strik í reikninginn
urðu kvikmyndagerðarmennirnir
frá að hverfa þó að leikmyndir og
handrit væru fyrir hendi. Fjár-
magnið var einfaldlega uppurið og
gott betur en það. Reyndar varð til
heimildarmynd um þessa „stór-
mynd“ sem bar hið skemmtilega
heiti Lost In La
Mancha en
þar var þess-
ari misheppn-
uðu til-
raun
gerð
góð skil.
Slíkt varð fjárhagslegt tap Gilliam
að hann tók upp samband við
Weinstein-bræðurna, Bob og
Harvey, fyrir sína næstu mynd,
The Brothers Grimm. Þetta olli
aðdáendum Gilliam nokkru hugar-
angri og mörgum fannst sem
hann væri að svíkja sjálfan
sig með þessu skrefi enda
væri hann þar með komin
í öruggan faðm kvik-
myndaiðnaðarins.
Gilliam lýsti því síðan yfir í
samtali við fjölmiðla að kvik-
myndin The Man Who Killed
Don Quixote gæti eftir allt
saman orðið að raunveruleika,
aftur. „Ég hef fengið upplýsingar
um að handrit að myndinni gæti
orðið klárt um jólin,“ sagði Gilli-
am. „Reyndar hef ég heyrt þann
orðróm á hverju ári undanfarin
sex ár en að þessu sinni er ég
nokkuð bjartsýnn,“ bætti leik-
stjórinn við en hann er ef til vill
hvað þekktastur fyrir afrek sín
með Monty Python-flokknum og
kvikmyndir á borð við Brazil,
Time Bandits og Fisher King.
„Vandamálið er hins vegar hvenær
Johnny Depp er tilbúinn og hvort
ég verði á lífi þá,“ sagði Gilliam.