Fréttablaðið - 23.12.2006, Page 95
LOKAÐ Í DAG ÞORLÁKSMESSU
Óskum Landsmönnum Öllum Gleðilegra Jóla
opnum aftur annan í jólum
Nánari upplýsingar um sýningartíma má finna á WWW.SAMbio.is
„Ég er komin með staðinn og vinn-
an þar inni er byrjuð, en annars
tekur allt svona svo langan tíma,“
segir Inga Friðjónsdóttir um nýjan
tónleikastað sem hún hefur í hyggju
að opna. Staðurinn verður staðsettur
í Hafnarstræti, þar sem áður var
staður að nafni Rökkurbarinn. Í
næsta nágrenni er skemmti-
staðurinn Gaukur á stöng,
sem lokar á næstunni og
þurfa því þeir tónlistarunn-
endur sem vanið hafa ferðir
sínar á þessar slóðir ekki
að örvænta. Inga undir-
strikar að framkvæmdir
staðarins séu nýfarn-
ar af stað og því lítið
hægt að fara út í
smáatriði hvað varð-
ar framtíðar rekstur
hans. „Þetta verður
þó ekki neinn
sveitaballastaður,
heldur bara það helsta
sem er að ske“ segir Inga
örugg og bætir því við að
framsækin tónlist verði
helst á boðstólnum. Inga
er alls ekki ókunnug
rekstri staða sem þess-
um, en lengi vel átti hún
helming í skemmtistaðn-
um Sirkus við Klappar-
stíg. Þegar Gaukurinn
og Grand Rokk loka, verður fram-
boð tónleikastaða í Reykjavík engan
veginn nægilegt til þess að svara
eftirspurn. Staðurinn sem þessi
verður því kærkominn í íslenskt
tónlistarlíf og fagna tónlistarmenn
opnun hans. En að opna stað tekur
tíma eins og allt annað og býst Inga
við því að staðurinn verði ekki klár
í fyrsta lagi fyrr en í apríl eða maí á
komandi ári.
Enginn sveitaballastaður
Sjöunda og síðasta bókin
um galdrastrákinn Harry
Potter mun heita Harry
Potter and the Deathly
Hallows. Þykir titillinn vísa
í myrkt umfjöllunarefni
lokabókarinnar. Enn á eftir
að finna íslenskan titil á
bókina.
Höfundurinn J.K. Rowling hefur
þegar viðurkennt að tvær persón-
ur muni deyja í bókinni og hafa
einhverjir talið að önnur þeirra
verði sjálfur Harry Potter.
Aðdáendur Potter gátu tekið þátt í
leik á heimasíðu Rowling til að
komast að bókatitlinum. Orðrómur
hafði verið uppi um hina ýmsu
titla, þar á meðal Harry Potter and
the Graveyard of Memories, en
Rowling vísaði þeim öllum á bug.
Talið er að bókin komi út á ensku
næsta sumar og kemur hún
væntanlega út í íslenskri þýðingu
um haustið. Má búast við því að
hún njóti mikilla vinsælda eins og
fyrri bækurnar um galdrastrák-
inn og ævintýri hans.
Í nýlegu viðtali sagðist Rowling
vera farin að skrifa á kaffi-
húsum á nýjan leik, rétt
eins og hún gerði fyrir
þrettán árum þegar
hún byrjaði fyrst
að semja bækurn-
ar um Harry Pot-
ter.
Hún hefur
einnig viðurkennt
að hafa dreymt að
hún væri bæði
Potter og sögu-
maður á sama
tíma. Rowling
sagði að margir
hefðu spurt sig í
gegnum árin hvort
hana dreymdi nokkurn
tímann að hún væri í
heimi Potters. „Svarið
var „nei“ þangað
til fyrir skömmu
þegar mig
dreymdi að ég væri á sama tíma
Harry og sögumaðurinn,“ sagði
hún. „Kannski ætti ég að draga úr
koffínneyslunni.“
Rowling bætti því við að hún hefði
séð tuttugu mínútna myndskeið úr
fimmtu kvikmyndinni um Harry
Potter, Harry Potter og Fönixregl-
an, og fannst mikið til koma. Verður
myndin frumsýnd í júlí á næsta
ári.
Bækurnar um Potter hafa
selst í milljónum eintaka um
heim allan og hafa verið þýdd-
ar yfir á 63 tungumál.
Væntanlegur er á
markað lygamælir
fyrir farsíma, en sá
mælir stress í rödd
þess sem er hringt í.
Nú þegar geta þeir sem
nota forritið Skype til
símtala nálgast lygamæl-
inn á netinu án endurgjalds,
en Skype gerir fólki kleift
að hringja í hvort annað yfir
netið. Lygamælirinn notast við
sömu tækni og þeir lygamælar
sem löggæslustofnanir í Banda-
ríkjunum nota við að yfirheyra
glæpamenn, en um leið og sá sem
prófaður er fer að ljúga verða öll
ljós rauð. Mælinn má nálgast á
heimasíðu Skype, en þar er líka
hægt að sjá hvernig mælirinn
bregst við orðum Bill Clinton,
þegar hann sagði bandarísku
þjóðinni að hann hefði ekki
stundað kynlíf með Monicu
Lewinsky. Talið er að grun-
semdafullar eiginkonur
muni nýta sér þessa
tækni hvað mest, en
nú geta ótryggir eigin-
menn hvergi flúið.
Lygamælar í símum
Rokkkóngurinn sjálfur, Bubbi
Morthens, tók á móti gullplötum
fyrir tónleikaplötu og mynddisk
sinn, 06.06.06, á útvarpsstöðinni
Bylgjunni í gær. Jónatan Garðars-
son afhenti honum plöturnar í
beinni útsendingu og var Bubbi
vitaskuld hæstánægður með þessa
góðu sölu.
Alls hafa platan og mynd-
diskurinn selst í rúmum 17.500
eintökum sem kemur í sjálfu sér
ekki á óvart miðað við aðsóknina á
afmælistónleika Bubba í Laugar-
dalshöll. Seldist upp á þá á skömm-
um tíma og var mikil stemning í
Höllinni eins og sjá má á mynd-
disknum. Söng Bubbi þar öll sín
bestu lög við frábærar undirtektir
tónleikagesta.
Bubbi fékk gull
Á nýafstaðinni jólamessu Voga-
skóla flutti kór skólans lag eftir
fjóra nemendur úr tíunda bekk.
Þeir Tómas Hrafn Ágústsson,
Magnús Ingvar Ágústsson, Davíð
Stefánsson og Sigurður Ingi
Einarsson mynda hljómsveitina
Fúx-Frá sem hefur nú verið starf-
rækt í eina fjóra mánuði. „Við
sömdum lagið eiginlega fyrir
okkur, en fengum svo þá hugmynd
að fá kórinn með okkur í þetta,“
sagði Tómas, en strákarnir semja
allt sitt efni sjálfir. Tómas sagði
það þó hafa verið dálítið frábrugð-
ið því sem þeir eiga að venjast að
semja fyrir kórinn, því venjulega
er melódískt rokk á efnisskránni.
„Þetta var kórstjóranum, henni
Ágústu, að þakka líka. Við bjugg-
um til laglínuna alveg sjálfir, en
hún hjálpaði okkur svolítið við að
koma kórnum inn í þetta, með
röddun og þannig lagað,“ sagði
Tómas.
Hljómsveitarmeðlimir Fúx-Frá
hafa allir verið lengi í tónlist. „Við
höfum verið að spila í svona fjög-
ur ár. Trommarinn okkar hefur
verið lengst í þessu, í heil sex, sjö
ár, held ég,“ sagði Tómas. Jóla-
messan var frumraun strákanna í
Vogaskóla, en þeir hafa áður komið
fram í félagsmiðstöðinni Þrótt-
heimum. „Annars höfum við bara
verið að reyna að redda okkur
giggum,“ sagði Tómas, sem sagði
Íslendinga alveg mega eiga von á
því að heyra frá Fúx-Frá í framtíð-
inni. „Það verður samt ekki kóra-
tónlist, nema við fáum aftur svona
hugdettu,“ sagði hann.
Sömdu lag fyrir kór