Fréttablaðið - 23.12.2006, Síða 102
Undanfarna daga hafa borgarbúar
flykkst í miðbæinn. Sumir kaupa
jólagjafir og aðrir njóta stemning-
arinnar og skoða jólaskreyting-
arnar. Marga hefur þó rekið í
rogastans þegar að Tjörninni er
komið, en risavaxin kerti hafa þar
komið í stað ljósastaura.
„Þetta á að hafa róandi áhrif á
fólk, svona eins og kertaljósin.
Þetta er ekki eitthvað öskrandi,
æpandi, blikkandi nútímajóla-
skraut,“ sagði Örn Alexandersson,
en hann er einn fimm meðlima í
hópnum Norðan Bál sem stendur
fyrir jólakertunum. „Þetta er bara
svolítið stærra í sniðum,“ bætti
hann við, en það er Orkuveitan
sem tók hugmynd hópsins upp á
arma sína.
Norðan Bál hefur staðið fyrir
ýmsum uppákomum sem flestar
hafa verið frekar stórar í sniðum.
Hópurinn hefur til dæmis klætt
ljósastaura í miðbænum í
túlipanaskrúð á Vetrarhátíðum, sá
um opnunaratriði síðustu Vetrar-
hátíðar og reisti stærstu brúðu
sem reist hefur verið á Íslandi á
Ljósanótt í haust. Örn sagði Norð-
an Bál þó ekki einbeita sér að
stærðinni. „Þetta hefur bara æxl-
ast svona, en það er ekki allt stórt
sem við gerum,“ sagði hann. Örn
hafði ekki fengið viðbrögð við
risakertunum þegar Fréttablaðið
talaði við hann, en þau hafa nú
verið uppi í tæpar tvær vikur. „Ég
held reyndar að fæstir viti að
þetta sé eftir okkur,“ sagði hann
og hló.
Risavaxin jólakerti við Tjörnina
„Það sem ég kynntist fyrir utan
myndavélarnar var mér ekki að
skapi,“ segir Hafsteinn Þór Auð-
unsson, sem vakti mikla athygli í
síðasta X-Factor þætti þegar hann
lýsti því yfir að eitthvað væri
bogið við þáttinn og gerð hans.
„Mér fannst aðaldómarinn í
mínum hópi vingast meira
við suma keppendur en
aðra,“ útskýrir hann. „Varð
vitni að klíkuskap þegar
slökknaði á mynda-
vélunum,“ bætir
hann við. „Ég vil
ekki vera að kasta rýrð á aðra
keppendur í þættinum eða segja
hverjir áttu hlut að máli en menn
geta sagt sér sjálfir um hvaða
dómara er rætt,“ segir Hafsteinn
en í hópi hans voru einstaklingar
undir leiðsögn Elínborgar Hall-
dórsdóttur, betur þekktrar
sem Ellýjar í Q4Y.
Hafsteinn viðurkenndi
að ef hann hefði komist
áfram eða ekki verið með
þeim síðustu til að vera
sendir heim hefðu þessi orð
aldrei verið látin falla.
„Ég var bara pirraður og
ósáttur með málalyktir,“
útskýrir hann en dregur
hins vegar fullyrðingu
sína um klíkuskap í X-
Factor ekki til baka. Hann sagðist
aftur á móti vita vel af því að í
einu laganna hefði honum ekki
tekist nægjanlega vel upp. „Mér
fannst það hins vegar ekki
nægjanlega góð ástæða til að láta
henda mér út,“ segir hann.
Hafsteinn er liðtækt ljóðskáld
og er með ljóðabók í undirbúningi
en er ekki búinn að fastsetja
útgáfudag. „Þetta er allt í vinnslu,
bókin verður á ensku og fjallar um
tilfinningar fólks eins og nafnið
gefur til kynna,“ útskýrir Haf-
steinn en bókin mun að öllum lík-
indum heita Feelings as you know
them If you know them.
Sakar dómara í X-Factor um klíkuskap
Atli Freyr Steinþórsson, þulur hjá
Ríkisútvarpinu, flytur hina hefð-
bundnu jólakveðju annað árið í
röð á slaginu 18 á aðfangadags-
kvöld á Rás 1. Mikil ábyrgð hvíli á
herðum hans, enda gildi strangar
reglur um kveðjuna.
„Ég hef góða tilfinningu fyrir
þessu,“ segir Atli Freyr, sem
stundar nám við Háskóla Íslands
samhliða starfi sínu sem þulur.
„Í fyrra átti ég líka jólavaktina
og þá sveif hátíðin mjög yfir vötn-
um. Útvarpshúsið er nánast mann-
laust á aðfangadagskvöld, þar eru
þulur, tæknimenn Rásar 1 og 2 og
húsvörður og það var hátíð hjá
okkur, menn tókust í hendur og
klöppuðu hver öðrum á öxlina. Það
er gaman ef hlustendur finna fyrir
þessum hátíðleika hjá okkur,“
segir Atli.
Miklar og strangar reglur gilda
um flutning jólakveðjunnar,
aðdraganda hennar og eftirmál.
„Dagskráin á aðfangadagskvöld
er í föstum skorðum. Að lokinni
hátíðartónlist hér um bil stundar-
fjórðungi fyrir sex er gert hlé og
útsending Útvarpsins liggur niðri
þar til nákvæmlega fjórum mínút-
um fyrir klukkan 18,“ segir Atli.
„Þá hefst hátíðarhringing Dóm-
kirkjunnar og klukkan 17:59:57
hefur þulur yfir kallmerki stöðv-
arinnar, „Útvarp Reykjavík,
Útvarp Reykjavík“ og býður gleði-
leg jól um leið og kvöldsett verður
og heilagt klukkan 18:00:00. Þá
hefst beint útvarp frá aftansöng í
Dómkirkjunni í Reykjavík,“ segir
Atli.
Aðspurður segir Atli að honum
hafi aldrei dottið í hug að breyta
jólakveðjunni. „Ríkisútvarpið
snýst um hefð, það er í senn æva-
fornt og spánnýtt, það er stöðugur
punktur sem engin ástæða er til að
stroka yfir. Jólakveðjan á aðfanga-
dagskvöld er eitt af því sem ekki
er ástæða til að breyta,“ segir
Atli.
Jólamessan hefur verið send út
á samtengdum rásum Ríkisút-
varpsins í fjöldamörg ár, en í ár
verður breyting á. Jólamessan
verður aðeins send út á Rás 1, en á
Rás 2 leikur Svanhildur Jakobs-
dóttir íslensk jólalög.
Atli segist aðspurður vera mik-
ill jólamaður. „Ég á segulbands-
spólu þar sem Helgi S. Ólafsson
leikur jólasálma á gamalt pípuorgel
Hvammstangakirkju. Stundum er
þessi spóla komin í tækið í bílnum
í október.“
...fá Bubbi og frítt föruneyti
hans, sem leggja leið sína á
Litla-Hraun á morgun til að
létta föngunum lund, en þetta er
23. heimsókn Bubba á Hraunið í
þeim tilgangi.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5