Fréttablaðið - 23.12.2006, Síða 104
Ég geri fastlega ráð fyrir því að núna, að morgni Þorláksmessu,
séu hundruð Íslendinga, aðallega
karlmenn, í panikkasti út af gjöf-
um. Einkum og sér í lagi hafa þeir
einstaklingar misst svefn í nótt
sem standa frammi fyrir því verk-
efni að gefa kærustum sínum í
fyrsta skipti gjöf. Stressið er skilj-
anlegt. Svona lagað getur nefnilega
algerlega misheppnast. Ég heyrði
fyrir skömmu af strák sem gaf
kærustu sinni kjól, sem hann hélt
að væri flottur. Hún hætti með
honum daginn eftir.
hef lært bæði af gjöfum sem
ég hef gefið og gjöfum sem ég hef
fengið, að það er ekki endilega
gjöfin sjálf sem skiptir máli held-
ur hugurinn sem fylgir. Fyrsta
gjöfin sem ég gaf, sem krakki –
upp á eigin spýtur – var fölgult
símaborð úr plasti sem ég gaf
foreldrum mínum. Ég keypti það í
Magasín í Kópavogi. Tók strætó
sjálfur og allt. Þau voru vissulega
þakklát og ég man hvað ég var
spenntur þegar mamma og pabbi
settu borðið upp í eldhúsinu og
tylltu símanum á það. En svo var
undrunin ekki minni þegar síma-
borðið var allt í einu horfið tveim-
ur dögum síðar. „Hvar er borðið?“
spurði ég stóreygður og opin-
mynntur í náttfötunum. Það var
fátt um svör. „Jólasveinninn tók
það,“ umlaði einhver.
gefa oft það sem þeim
sjálfum þykir flott. Í því liggur
ákveðin kómísk fegurð. Ég veit um
eina litla systur sem gaf bróður
sínum á unglingsaldri dollu af
marglitum perlum til að strauja.
Unglingurinn var ekki sáttur. Hún
var hins vegar alsæl. Í þeirri fjöl-
skyldu kallast svona gjafir perlu-
gjafir. Ég verð að viðurkenna að
ég gef oft perlugjafir. Til dæmis
gef ég mjög oft bækur, sem mig
langar til að lesa (og viðtakendum
vonandi líka). Í febrúar-mars fer
ég svo rúntinn og fæ þær lánaðar.
gjafir sem
ég hef fengið eru nokkrar. Einu
sinni fékk ég frá einni og sömu
manneskjunni bæði allt of stóra
skyrtu og allt of litlar buxur. Hér
stóð viðkomandi í þeirri trú að ég
væri í laginu eins og persóna í The
Incredibles. Um síðustu jól fékk
ég svo frá þremur aðilum þrjár
allt of stórar peysur, keyptar í
útlöndum. Þær eru uppi í skáp,
mér til áminningar um það að ég
er greinilega almennt talinn þó
nokkuð feitari/þreknari en ég er.
En hér er það hugurinn sem gildir.
Ég er viss um að eftir nokkur jól,
með öllum þeim smákökum sem
þeim fylgja, mun ég passa í þær.
er að minnsta kosti kristal-
tært: Ég neita staðfastlega að taka
þátt í þeim leik að fá einfaldlega
miða frá fólki, eins og sumir fá,
þar sem stendur hvað viðkomandi
– einkum kærustur – vilja fá í jóla-
gjöf. Mér yrði verulega misboðið
ef það myndi gerast. Ekki bara
yrði það túlkað af mér sem full-
komin vantrú á mína jólagjafa-
hæfileika, heldur væri spennan og
fegurðin þar með horfin. Fyndnar
og misgáfulegar gjafir eru
ófrávíkjanlegur hluti af anda
jólanna. Í mótmælaskyni myndi ég
ekki hika við að gefa viðkomandi
fölgult símaborð úr plasti.
Gjafir
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
.2
00
6
ww
w.
IK
EA
.is
590,-
Morgunmatur frá kl. 9:00 - 11:00
mánudaga til laugardaga
Opið Þorláksmessu 10-23
Lokað aðfangadag
Lokað jóladag
Lokað annan í jólum
Opið 27. desember 10-20
Hangikjöt
með kartöflum, uppstúf,
rauðkáli og grænum baunum
Opið til 23:00
í kvöld
IKEA Restaurant & Café
495,-
FLER kertasett. Inniheldur 1 kertadisk Ø8 cm
2 kertastjaka Ø6 H4,6 cm, 4 kerti H19 cm,
1 kubbakerti H7,5 cm, 8 sprittkerti
BETTAN púðaver
72x72 cm marglitt 695,-
INNER púði 72x72 cm 995,-
MYLONIT borðlampi
12x31 cm ýmsir litir 695,-
PJATTERYDmyndir brönugras
3 stk. 56x56 cm 6.990,-
POLARVIDE teppi
130x170 cm ýmsir litir 495,-
PJATTERYDmynd
túlipani 53x53 cm 2.990,-
ISIG rammar 2 stk.
13x18 cm rautt 290,-
KAFFE kaffipressa
1 l ryðfrítt stál 995,-
REKTANGEL vasi
H22 cm gler 495,-
DRAGON kaffiskeiðar 6 stk.
H11 cm ryðfrítt stál 395,-
FINLIRmyndastandur
f/12 myndir 15x10 cm 1.290,-
MISTEL sængurverasett
150x200/50x60 cm 690,-
FRUKOST bolli 30 cl dökkblár 295,-
FRUKOST undirskál 23x18 cm dökkblá 295,-
ISIG kubbakertasett
5 stk. ýmsir litir 490,-