Fréttablaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 2
Tveir menn sættu
yfirheyrslum hjá lögreglunni í
Reykjavík í gær, eftir að þeir
höfðu veist að tveimur lögreglu-
þjónum við skyldustörf og veitt
öðrum þeirra högg á barkakýlið.
Mönnunum var sleppt síðdegis í
gær eftir yfirheyrslurnar.
Það var um fimmleytið í fyrri-
nótt sem lögreglan var kvödd að
húsi í vesturbænum í Reykjavík
vegna hávaða sem stafaði af flug-
eldaskotum. Einn íbúanna í
umræddu húsi var þá með ógn-
andi tilburði við aðra íbúa, senni-
lega þá sem hann taldi að hringt
hefðu á lögreglu. Lögreglumenn-
irnir hófu að skakka leikinn, en
þá bar að annan mann sem gekk í
lið með hinum fyrrnefnda. Annar
þeirra sló til lögreglumannanna
og kom í framhaldinu til átaka
sem leiddu til þess að annar lög-
reglumannanna fékk högg beint á
barkann og meiddist nokkuð.
Þrátt fyrir það tókst að færa
mennina í fangaklefa, þar sem
þeir voru látnir dúsa yfir nóttina.
Lögreglumennirnir fóru á slysa-
deild til skoðunar, en hvorugur
mun vera frá starfi þrátt fyrir
atburðinn.
Ófriðarseggirnir tveir hafa
ekki komið við sögu lögreglu
áður, en Bakkus var með þeim í
för.
Ekki verður boðað til
sérstaks fundar í samgöngu-
nefnd Alþingis vegna þeirrar
stöðu sem nú er uppi í flugsam-
göngum, en Jón Bjarnason,
þingmaður Vinstri grænna, hafði
óskað eftir því.
Guðmundur Hallvarðsson,
formaður samgöngunefndar og
varaformaðurinn, Hjálmar
Árnason, telja að ekki sé ástæða
til að grípa til aðgerða. „Það var
búið að ákveða að vera með fund í
annarri viku janúar og við
höldum okkur við það. Málið er
afgreitt frá þinginu og við
blöndum okkur ekkert inn í það,“
sagði Guðmundur í gær.
Enginn fundur í
samgöngunefnd
Póst- og fjarskiptastofn-
un hefur auglýst eftir fyrirtækj-
um sem reka vilja hér á landi
þriðju kynslóðar farsímakerfi, en
þau byggja á svonefndum UMTS-
staðli. Stofnunin gerir ráð fyrir að
úthluta tíðnisviðum fyrir netin í
byrjun apríl til allt að fjögurra
bjóðenda.
Í UMTS-farsímakerfi er sendi-
hraði stóraukinn og því möguleg
margvísleg ný þjónusta svo sem
sjónvarpssendingar í síma, eða
annað gagnastreymi. Nýja tæknin
er önnur en GSM-staðallinn sem
fólk þekkir í dag og kallar á nýjan
farsímakost.
Fyrirtæki sem sækjast eftir
tíðnisviðum verða að uppfylla
ákveðin skilyrði, svo sem að eiga
að minnsta kosti 400 milljónir
króna í eigið fé. Að auki fylgir
kvöð um útbreiðslu þjónustunnar
á landsvísu.
„Útboðið er byggt á lögum um
þriðju kynslóð farsíma þar sem
fegurðarsamkeppnisformið var
sett upp,“ segir Hrafnkell V. Gísla-
son, forstjóri Póst- og fjarskipta-
stofnunarinnar. Í lögunum eru
einnig ákvæði um lágmarksþjón-
ustu en útbreiðsla verður að ná til
að minnsta kosti 60 prósenta á höf-
uðborgarsvæðinu og svo á vestur-,
norður-, og suðurhluta landsins.
„Þetta er nokkuð stíf krafa en við
settum það upp á nokkru árabili
þannig að þetta gerist ekki allt í
einni svipan,“ bætir hann við. Fjar-
skiptafyrirtækin hafa þannig, í
fjórum skrefum, fimm og hálft ár
til að vinna sig upp í fulla þjón-
ustu.
Vitað er um þrjú fyrirtæki sem
lýst hafa opinberlega áhuga á
rekstri þriðju kynslóðar farsíma-
þjónustu, fjarskiptafélag Novators
í eigu Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, Símann og svo Vodafone.
Novator hefur eitt fengið svokallað
tilraunaleyfi til reksturs þriðju
kynslóðar nets. Tilraunaleyfi er
hins vegar ekki forsenda úthlutun-
ar. „Þau eru bara aðferð stofnunar-
innar til að koma til móts við mark-
aðsaðila sem prófa vilja einhverja
tækni,“ segir Hrafnkell og bætir
við að þau séu nánast alltaf veitt.
Berist fleiri en fjögur tilboð
getur verið að úthlutun tíðnisvið-
anna taki aðeins lengri tíma en
stefnt er að því þá þarf að raða til-
boðunum upp í goggunarröð eftir
nánari samanburð. Að öðrum kosti
nægir að bjóðendur uppfylli
grunnskilyrðin sem sett eru um
rekstur þriðjukynslóðar netsins.
Samkeppni hafin um
þriðju kynslóð farsíma
Tíðnisviðum þriðju kynslóðar farsímakerfa verður úthlutað í vor. Stóraukinn
hraði og ný þjónusta við farsímanotendur eru á næsta leiti. Að minnsta kosti
þrír stefna á uppbyggingu þriðju kynslóðar nets. Fjögur leyfi eru í boði.
Ungi Íslendingurinn
sem féll um 12 metra niður af
svölum íbúðar sinnar í Árósum í
Danmörku er enn í lífshættu, að
sögn föður hans.
Atvikið átti sér stað sunnudag-
inn 17. desember, en tildrög þess
eru óljós. Ungi maðurinn féll um
12 metra niður af svölunum og
lenti á steyptri stétt. Að sögn
föður hans nýtur hann einstakrar
umönnunar á sjúkrahúsinu í
Árósum. Maðurinn er kominnn til
meðvitundar, en þarf enn að vera
í öndunarvél af og til. Faðir hans
segir að líðan hans sé slæm, en
heldur horfi þó til betri vegar.
Enn í lífshættu
Lokið var við að dæla olíu úr síðu-
tönkunum á flutningaskipinu Wilson Muuga í
Hvalsnesfjöru í Sandgerði síðdegis í gær. Olía er
enn eftir í lestum skipsins. Kristján Geirsson,
fagstjóri hjá Umhverfisstofnun, segir að bráða-
hættan sé að mestu frá. Lestirnar verði tæmdar á
nýju ári.
„Eftir í skipinu situr olía í lestinni sem var
pumpað úr botntönkunum. Við þurfum annan
mannskap og annan búnað til að ná henni. Nú
verður mannskapurinn og búnaðurinn fluttur í land
og aðeins pústað,“ segir Kristján.
Átta menn voru um borð í Wilson Muuga í
rúmlega tvo sólarhringa við að dæla úr skipinu og
tókst að dæla áttatíu til áttatíu og fimm tonnum af
svartolíu á land. Hátt í fimmtíu tonn af svartolíu úr
botntönkunum og dísilolíu virðast hafa farið í
sjóinn. Kristján segir að sest verði yfir reikningana
þegar mennirnir um borð hafi hvílst.
„Við teljum að bráðahættan sé að mestu frá og
það stafi ekki mikil hætta af því sem eftir er. Þetta
er þunnt lag af olíu ofan á í lestinni en lestin er
traust og við teljum enga hættu aðsteðjandi þar.
Mesta málið var að tæma stóru tankana,“ segir
hann. „Við notum næstu daga í að undirbúa okkur
því við teljum ekki þörf á sama asa og áður. Það er
hægt að flytja afganginn í land í minni tönkum með
þyrlu.“
Útboðið er byggt á lög-
um um þriðju kynslóð
farsíma þar sem fegurðarsam-
keppnisformið var sett upp.“
Nýlátinn fyrrver-
andi forseti Bandaríkjanna,
Gerald R. Ford, efaðist mjög um
réttmæti ákvörðunar George W.
Bush, núverandi forseta Banda-
ríkjanna, um innrásina í Írak.
Þetta kom fram í leynilegu
viðtali sem blaðamaður Washing-
ton Post tók við Ford með því
skilyrði að viðtalið yrði ekki birt
fyrr en eftir fráfall Fords.
Viðtalið, sem tekið var í júlí 2004,
var birt í gær, en Ford lést á
þriðjudaginn.
Ford sagðist vera afar
mótfallinn stefnu Bush í Íraks-
málum.
„Ég held ekki að ég hefði farið
í stríð,“ sagði Ford og bætti við að
betra hefði verið að leita friðsam-
legra lausna á málunum þar.
Efaðist um rétt-
mæti innrásar
Dagblaðið-Vísir
útgáfufélag ehf. hefur keypt
útgáfu DV samkvæmt kaupsamn-
ingi við 365 miðla hf. DV mun
koma út í óbreyttri mynd fyrst um
sinn, en útgáfudögum verður fjölg-
að á næsta ári.
Hjálmur ehf., sem er í eigu
Baugs Group hf., á 49 prósenta
hlut í útgáfufélaginu, 365 miðlar
hf. eiga 40 prósenta hlut og
Sigurjón M. Egilsson og Janus
Sigurjónsson eiga 11 prósenta hlut.
Sigurjón M. Egilsson hefur
verið ráðinn ritstjóri DV og verður
engum starfsmönnum sagt upp
vegna eigendaskiptanna.
Frekari breytingar eru
fyrirhugaðar á prentútgáfu hjá 365
miðlum í þeim tilgangi að skerpa
áherslur og auka arðsemi í rekstri
fyrirtækisins. 365 ætlar að
einbeita sér að útgáfu Fréttablaðs-
ins og þeim ritum sem fylgja því.
Fyrirtækið hefur selt tímaritin
Hér & nú og Veggfóður til
útgáfufélagsins Fögrudyra ehf.
Sigurjón verður
ritstjóri DV
Tölvubúnaði var
stolið úr tveimur heimahúsum og
einu fyrirtæki í Reykjavík í
fyrradag. Eldhústækjum var
stolið úr nýbyggingu og þá fór
þjófur inn á veitingastað í
austurbænum og komst undan
með nokkuð af peningum.
Brotist var inn í tvær geymslur,
sumardekk tekin úr annarri en
kjötvörum stolið úr frystikistu í
hinni. Þá var hljómflutningstækj-
um stolið úr bíl.
Þrjár matvöruverslanir urðu
líka fyrir barðinu á þjófum en
þeir höfðu lítið upp úr krafsinu.
Einnig var tilkynnt um bensínþjóf
til lögreglu.
Þjófar þreytast
ekki um jólin
Björgvin, ertu að fara í mútur
fyrst núna?