Fréttablaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 52
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
stelpubögg með
Siggu Dögg
Ágamlársdag þá ligg ég yfir Kryddsíldinni og dunda mér við
listagerð, einn listi er fyrir hlutina sem
ég hef áorkað á liðnu ári og annar fyrir
markmið nýs árs. Ég strengi tvö til þrjú
áramótaheit sem flest snúast um hluti
eins og að taka fleiri myndir og nota
tannþráð hverju kvöldi. Raunhæft,
einfalt og auðframkvæmanlegt.
Gamlársdagur snýst um að kveðja fortíðina og leggja drögin að
framtíðinni.
Þessi dagur er eins konar jafnvægispunktur á vegasalti.
Gamla árið er ekki alveg búið og það
nýja ekki enn komið. Þetta er því minn
uppgjörsdagur. Ég geri einn leynilegan
lista til viðbótar. Ég fer yfir hluti sem
hefðu mátt fara betur og gjörðir og orð
sem gætu hafa sært. Ég fer með litla
afsökunarbeiðni í hjartanu og lofa sjálfri
mér að segja það við viðkomandi næst
þegar ég hitti hann. Þetta er því hálfgert
karma-uppgjör.
Það sem ég hef áorkað fer í debet og leynilistinn fer í kredit.
Ég athuga hvort bókhaldið stemmi ekki örugglega því þá get ég farið
með góðri samvisku út að skemmta
mér um kvöldið. Það hefur þó komið
fyrir að ég skuldi. Í slíkum tilfellum þá
hef ég haldið í þá trú að með nýársdegi
þá þurrkist bókhaldið út og ég fái að
byrja á nýju óskrifuðu blaði. Engin skuld
og engin inneign.
Karma-uppgjör er því á ársgrund-velli, engin sjö ára ógæfa fyrir
brotinn spegil, allt endurnýjast á
miðnætti á gamlárskvöld.
V inur minn sagði einu sinni við mig: „Þú verður að kyssa
einhvern á gamlárs, annars verður þú
ekki ástfangin næsta árið“. Þessu trúi
ég bókstaflega svo til að byrja að safna
í debetdálkinn minn þá set ég mér það
markmið 31. desember að fara í sleik.
Þrátt fyrir miklar umræður um ofmetin
teiti þá get ég samt ekki bara sprengt
flugeldana með fjölskyldunni og farið
svo heim að sofa. Þessi setning vinar
míns hangir yfir mér líkt og hræðileg
örlög eða dómur um einmanaleika. Mér
finnst ég skulda karmanu mínu að fara
út að skemmta mér og leita að
sleiknum. Það skiptir ekki máli við
hvern, strákurinn er ekki aðalatriðið hér
heldur sjálfur kossinn.
Þetta er ekki ólíkt eplinu hennar Öskubusku, óþægindi í hálsinum
og hjartanu sem aðeins koss getur
læknað.
B iblían og karma eru sammála um að það sé sælla að gefa en að
þiggja. Það er einnig oftast þannig að
sá sem gefur fær eitthvað í staðinn.
Þú daðrar og einhver daðrar til baka. Ég kyssi hann og hann...
Þetta er leikur með bjúgverpil, þú færð
til baka það sem þú sendir frá þér.
Langmikilvægasta áramótaspakmælið
er því án efa: „Þú uppskerð eins og þú
sáir“.
Byrjum nýja árið á því að senda góða strauma út í heiminn og
færa inn í debetdálkinn....
G leðilegt nýtt ár.
Gamlárs-
sleikur...