Fréttablaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 86
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Meira hefur verið rifist undanfar- in misseri um skegg Loga Berg- manns Eiðssonar sjónvarpsmanns en keisarans skegg. Nú hefur Logi tekið sig til og rakað af sér skegg- ið, einmitt þegar sjónvarpsáhorf- endur voru farnir að venjast því. „Ég held nú að áhorfendum sé nokkuð sama um skeggið,“ segir fréttamaðurinn góðkunni. „Ég rakaði mig á jóladag og það var bara eitt og annað sem olli því. Meðal annars bein tilmæli frá tengdó og fleirum.“ Logi lét sér upphaflega vaxa skegg í sumar þegar hann var í fæðingarorlofi, við mikla undrun landsmanna. „Allt á sinn tíma, þannig að ég held að þetta sé nú bara fínt. Svavar Örn hárgreiðslu- maður var orðinn þreyttur á þessu og sagði að þetta væri eins og fréttastöð í Mið-Austurlöndum. Hann sagði að raksturinn væri besta jólagjöfin,“ segir Logi. Fréttamaðurinn skegglausi er þó greinilega tvísaga í þessu máli, enda hefur hann ítrekað lýst því yfir við fjölmiðla að hann væri ánægður með skeggið. „Ég hef mér nú ekkert til máls- bóta annað en að ég nennti ekki að halda þessu við,“ segir Logi. „Þetta var bara tilraun, byrjaði óvart og endaði eiginlega bara óvart líka.“ Logi telur að raksturinn marki endalok skeggsins fræga. „Það er ekki eins og þetta hafi verið stór- kostlegur atburður. Ég efast um að ég láti það vaxa aftur. Allir sem skipta mig máli eru nú bara sáttir við þetta,“ segir Logi. Tengdó neyddi Loga í rakstur „Já, við erum að klára öll samningsatriði núna, en við stefnum á að fara út til hans í mars,“ segir kraftajötunninn, kerfis- fræðingurinn og heimild- armyndagerðarmaðurinn Hjalti Úrsus Árna- son. Hjalti hefur nú ákveðið að ráð- ast í annað kvik- myndaverkefni og gera heim- ildarmynd um bandaríska kraftakarlinn Bill Kazmaier. Bill þessi var lengi helsti keppinautur Jóns Páls og er talinn frumkvöð- ull á sviði aflrauna. „Hann var fyrstur allra til þess að lyfta 1100 kílóum árið 1980, langt á undan sínum samtímamönn- um. Svo var hann líka fyrstur til þess að taka 300 kg í bekkpressu án þess að vera í bekk- pressubol,“ segir Hjalti um Bill sem hefur margt annað afrekað. Þar á meðal hefur hann spilað amerískan ruðning með lið- inu Greenbay Packers og stundað fjölbragðaglímu. „Skemmtilegasta metið hans er heimsmet hans í gúbbífiskaáti, en hann át um 500 stykki en sá sem lenti í öðru sæti át um 30,“ segir Hjalti og hlær. Heimildarmynd Hjalta, Ekkert mál, um Jón Pál Sigmarsson er fyrsta heimildar- myndin sem hann gerir en hún vann Edduverðlaunin fyrr í vetur. „Þetta eru sömu tengiliðirnir sem við notumst við og við búum því vel eftir að hafa gert myndina um Jón.“ Ekkert mál hefur nú selst í yfir fimm þúsund eintökum á DVD. Hjalti ítrekar að myndin sé enn bara í startholunum og því ekkert ákveðið um frumsýningardag eða slíkt. Myndin er þó fyrst og fremst ætluð á alþjóðamarkað og verður því á ensku. „Auðvitað verður svo gerð útgáfa á íslensku, en Íslend- ingar hafa bæði áhuga og ástríðu fyrir svona löguðu.“ Gerir aðra heimildarmynd um kraftajötunn … fær rapparinn Poetrix, Sævar Daníel Kolandavelu, sem fékk Bubba Morthens til að syngja í einu lagi á vænt- anlegri plötu sinni og heillaði kónginn upp úr skónum með hæfileikum sínum. „Ætli ég sé ekki enn þá barn innra með mér, hef bara ekki náð þroska á þessu sviði,“ segir Einar Ólafs- son, sprengjukóngur og flugelda- sali. Einar er einn þeirra fjöl- mörgu fullfrísku karlmanna sem breytast í smástráka með flugelda þegar síðasti dagur ársins rennur upp. „Ég hef haft gaman af þessu frá unga aldri og sá áhugi hefur ekkert dvínað,“ bætir hann við. Flugeldasalar opnuðu í gær og má reikna með mik- illi aðsókn Íslendinga í flug- elda þetta árið enda er sprengjuæðið sem rennur á þjóðina fyrir löngu orðið heimsþekkt fyrir- bæri. Samkvæmt síðustu tölum er talið að Íslendingar sprengi í kringum 550 þúsund flugelda en þegar hafa verið flutt inn 990 tonn af hvers kyns sprengi- efni. Einar tekur virkan þátt í þessari hefð, rekur flugeldasölu á Suðurlandsbrautinni auk þess sem hann er með pústþjónustu í Kópavogi. Einar ætti einnig að vera lands- mönnum að góðu kunn- ur fyrir framkomu sína á yngri árum en hann söng lagið Ég vil ganga minn veg sem sló eftir- minnilega í gegn fyrir nokkrum áratugum. Einar var staddur í flugeldaverslun sinni á Suðurlandsbraut þegar Frétta- blaðið náði tali af honum og ekki var annað að heyra á flugeldasal- anum en að hann væri spenntur fyrir gamlárskvöldinu. „Ég hef verið að dunda mér við það að læra að setja saman flug- eldasýningar og hef undanfarin ár stjórnað svokallaði Stjörnumessu- sýningu sem er haldin fyrstu helg- ina í desember,“ segir Einar sem jafnframt hefur gaman af að sprengja flugelda fyrir sjálfan sig. „Það fer þó allt eftir því hversu þreyttur ég er eftir allan erilinn,“ útskýrir hann og segist ekki hafa hugmynd um hvað það kostar sem hann sprengir upp. „Ég hef enga tölu á því enda hef ég bara óskaplega gaman af þessu.“ Einar er hvergi nærri hættur að syngja þótt ekki hafi mikið fyrir honum farið á opinberum vett- vangi. Hann er ásamt bróður sínum meðlimur í hljómsveitinni Gigg sem spilar reglulega í lof- gjörðinni hjá Krossinum í Kópa- vogi. „Þar sprengjum við sannkall- aða tónlistarflugelda,“ segir Einar Ólafsson. Upplýsingar, viðburðir, afþreying og fréttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.