Fréttablaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 44
SIRKUS29.12.06
8 viðtalið
Þegar farið er yfir árið 2006 er margt sem
stendur upp úr. Að mati Sirkuss voru það þó
félagarnir Björgólfur Guðmundsson og
Eggert Magnússon sem hljóta nafnbótina
menn ársins. Báðir hafa mikið látið að sér
kveða og toppuðu svo allt saman með
kaupum sínum á einu fornfrægasta knatt-
spyrnuliði Englands. Þeir kynntust fyrir 40
árum og hafa brallað margt saman. Þessi jól
sá Björgólfur um Waldorfsalatið á sínu heimili
á meðan Eggert sá um fótboltaliðið sem þeir
keyptu saman. Þeir bera mikla virðingu hvor
fyrir öðrum og ætla sér á toppinn með West
Ham. Þegar Sirkus ræddi við félagana var
Eggert nokkuð upptekinn við hrókeringar á
leikmannamarkaðnum en Björgólfur var hins
vegar brattur og sagðist hafa borðað og lesið
mikið yfir jólin.
„Ég hef haft það svo gott að ég er bara
stressaður yfir því að þurfa að fara aftur í
vinnuna,“ sagði Björgólfur þegar Sirkus náði
af honum tali. „Ég borðaði kalkún og mjög
góða deserta sem ég hef verið að klára. Ég
læt alltaf búa til nokkra skammta þannig að
hægt sé að grípa í þetta þegar sulturinn er
alveg að drepa mann.“
Björgólfur viðurkennir án þess að hika að
hann sé ekki mikið í eldhúsinu sjálfur. Konan
sé betri og hann þori ekki í þá samkeppni.
„Ég fer aldrei í samkeppni nema ég sé
öruggur um að vinna. Reyndar sá ég um
Waldorfsalatið og fékk bara mikið hrós fyrir.
Held samt að það hafi aðallega verið þegar
fólk vissi að ég hefði gert það,“ segir
Björgólfur og hlær.
Björgólfur segir alla fjölskylduna hittast á
jólunum og eyða nokkrum tíma saman. En
hefur hann strengt einhver áramótaheit?
„Ég er nú eiginlega alveg hættur því enda
hefur þetta gefist illa. Maður er samt aðeins
að reyna að bæta sig. Ég reyki fullmikið af
vindlum og þyrfti að hætta því en mig langar
bara ekkert til þess. Það eru aðrir í kringum
mig sem leggja svolítið hart að mér en maður
á aldrei að strengja áramótaheit sem maður
hefur ekki trú á sjálfur.“
Björgólfur er ánægður með árið 2006 og
segir það hafa gefist vel bæði í viðskiptum og
í fótboltanum. „Það er alltaf eitthvað að
bætast við og nú er maður farinn að vinna 18
tíma á sólarhring sem er bara gott. Ég næ
allavega utan um þetta.“
Hann er einnig bjartsýnn á næsta ár. „Mér
finnst ég bara vera ungur maður á uppleið og
það leggst sérstaklega vel í mig.“
Björgólfur hefur verið duglegur við að láta
drauma sína rætast en er eitthvað sem hann
á eftir að gera sem er á döfinni?
„Ég mun bara efla það sem ég hef verið að
gera. Ég hef haft það tækifæri að styðja
menningu og listir. Ég tel knattspyrnu til
menningar og lista og við höfum verið iðnir
við að styrkja það. Þetta gefur manni mikið og
skilar okkur sem erum í viðskiptum miklu. Það
þarf líka að tryggja það að West Ham verði
Englandsmeistari sem er þó fullmikið á einu
ári en það er stefnan. Svo er ég búinn að
ganga frá því að KR verði meistari á næsta
ári. Þá þarf maður ekki að hafa áhyggjur í
tveimur löndum og það er mikill léttir,“ segir
Björgólfur og hlær.
En hvað myndi Björgólfur gera ef KR myndi
mæta West Ham í Evrópukeppninni?
„Þetta er rosaleg spurning og vandræðamál.
En ætli ég myndi ekki veðja á þann sem ég
treysti að kæmist lengra. Síðan myndi ég ekki
hafa mig mikið í frammi á leiknum og vera
rólegur eins og ég héldi með báðum liðum,
voðalega diplómatískur.“
Fengu barnabörnin öll West Ham-treyjur?
„Já, ég verð nú að játa það að sumir fengu
svoleiðis. Það var samt eitthvað kvartað yfir því
að ég væri búinn að gefa KR-búninga. En það
er sumar og vetur og svo þarf að þvo búning-
ana öðru hvoru og þá er hægt að skipta.“
Björgólfur segist aldrei hafa átt neitt uppá-
haldslið í ensku knattspyrnunni fram að
þessu. „Við KR-ingar höfum alltaf verið miklir
Liverpoolmenn og Newcastle líka en ég hef
ekki verið alræmdur með neinu liði og verið
afslappaður þar til ég fann minn tón.“
Björgólfur lítur á West Ham sem skemmtilegt
fótboltaævintýri sem gaman er að byggja upp
og taka þátt í. „Það er svo margt í þessu fyrir
utan fótboltann og þetta er mikill rekstur.
Eigum við ekki bara að segja að þetta sé allur
pakkinn.“
Eggert var staddur í London þegar Sirkus
náði af honum tali. Þar var hann um jólin.
Hvernig líkaði þér það?
„Ja, lífið er bara fótbolti núna, það er ekkert
annað. Nú er hávertíð knattspyrnunnar og
maður verður að vera þar. Og ég sé ekkert
eftir því.“
Eru erfiðir tímar fram undan?
„Það eru mikilvægir leikir núna. Við erum í
erfiðleikum því við erum í stöðu í deildinni
sem við viljum ekki vera í. Svo þegar markað-
urinn verður opnaður í janúar verðum við að
reyna að gera eitthvað.“
Hvernig er enska pressan að fara með þig?
„Enska pressan er í fínu lagi. Hún er agressív
en sýnir okkur mikinn áhuga og það skiptir
knattspyrnuna miklu máli. Allur þessi
fjölmiðlaáhugi þarna úti skiptir máli fyrir
vinsældir íþróttarinnar. Maður tekur þeim því
bara eins og þeir eru og vinnur með þeim.“
Stjórnarformenn ensku liðanna eru stórstjörn-
ur á Englandi og má segja að Eggert hafi
orðið frægur á einni nóttu og hefur mikið verið
skrifað um Eggert í pressunni.
„Já, þeir hafa kallað mig The Biscuit Baron og
The Eggman. Það er búið að vera mikið
fjölmiðlaævintýri um mig og minn bakgrunn á
síðustu mánuðum en maður tekur því bara
eins og öðru.“
Er þetta besta starf sem þú gætir óskað þér?
„Já, lífið er svo mikið ævintýri. Lífið er bara
þannig að það bjóðast stundum tækifæri og
ef maður er svo heppinn að geta gripið þau
og gert eitthvað úr þeim þá eru ævintýrin
stöðugt að gerast. Þetta er algjört ævintýri
fyrir fótboltakarl eins og mig. Að lifa og
hrærast í þessum bolta hér úti eru bara
forréttindi,“ segir Eggert.
En hvernig metur hann viðbrögð stuðnings-
manna West Ham við kaupum Íslending-
anna? „Ég finn mikið traust í garð okkar
Björgólfs. Þeir voru náttúrulega bara heppnir
að fá okkur. Ég fer ekkert undan því að segja
það. Það sem stóð þeim til boða á undan
okkur var að mínu mati ekki gæfulegt fyrir
þennan klúbb. Þeir fá í staðinn fótboltamenn
sem vilja gera veg þessa klúbbs sem mestan.
Á hinn bóginn var um að ræða umboðsmenn
sem voru að mínu mati að hugsa um eigin
hag. Mér finnst líka mikilvægt að stuðnings-
menn West Ham viti að samband okkar
Björgólfs byggir á fullkomnum vinskap og
trúnaði.
Það er mikið um þessa umboðsmenn í boltan-
um. Allt of mikið að mínu mati. Þetta eru
afætur á fótboltann að mínu mati og taka allt
of mikinn pening úr íþróttinni.“
Hvað gerist núna á næstu dögum?
„Við erum á fullu að leita að leikmönnum til að
styrkja okkur. Við ætlum okkur að bæta stöðu
West Ham því það kemur ekki til greina að
falla. Það er eitthvað sem er ekki í plönunum
hjá okkur.“
WEST HAM-KÓNGARNIR BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON OG EGGERT MAGNÚSSON
Bestu vinir og ætla ekki að falla
Björgólfur um Eggert
„Við erum búnir að vera vinir í yfir 40 ár og
starfað saman í ýmsum félagasamtökum.
Meðal annars vorum við saman í fyrstu
stjórn SÁÁ og stofnendur þar. Ég hefði
aldrei farið út í þetta West Ham dæmi ef
Eggert hefði ekki verið með mér í þessu.
Ég tel að hann hafi alla þá hæfileika sem
þarf til að gegna þessu starfi og það er
enginn sem ég þekki sem hefur eins mikil
sambönd í knattspyrnuheiminum. Við
höfum bæði verið grallarar saman og svo
líka ákveðið að vera ekki grallarar. Hann er
einbeittur og skjótur að taka ákvarðanir og
lætur hlutina ekkert vefjast fyrir sér heldur
keyrir á hlutina. Sumum finnst hann
kannski dálítið einráður en í því starfi sem
hann er í núna tel ég það vera kost.“
Eggert um Björgólf
„Björgólfur er eins og ég, búinn að vera
fótboltakall allt sitt líf. Og hefur stutt
rækilega við bakið á íslenskri knattspyrnu
um langa hríð. Hann var formaður í KR og
ég í Val. Það eru náttúrulega höfuðfjendur
í fótboltanum heima. En við erum búnir að
vera vinir í langan langan tíma. Og þegar
þetta tækifæri kom upp gat ég ekki fundið
betri „partner“ í þetta. Bæði fótboltaáhug-
inn og félagsskapurinn eru þar til staðar.
Það verður að vera ákveðinn trúnaður í
gangi í svona fyrirtækjum.
Því þó að þetta sé að sjálfsögðu stórfyrir-
tæki þá er þetta að sjálfsögðu líka
tilfinningafyritæki. Þetta snýst um tilfinning-
ar. Og það er það sem gerir þetta líka oft á
tíðum flókið.
Við tölum saman á hverjum degi eins og
við höfum lengi gert. Og þannig mun það
verða. Það gefur mér púst að fá skoðanir
hans og líka að geta komið frá mér því
sem á mér liggur.”