Fréttablaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 50
14 1 2 3 1 FM957 2 3 Farðu á þetta ...Farðu á þessa... um helgina MÁNI MÆLIR MEÐ „Við byrjuðum með þetta í sumar og það hefur alltaf verið troðfullt hjá okkur og rosalega gaman. Okkur hefur líka fundist vanta skemmtilegt áramótapartí og þetta verður þrusugaman,“ segir Curver Thoroddsen sem stendur fyrir 90´s áramótapartíi með Kiki Ow, vinkonu sinni. „Það er mikill húmor í þessum lögum og þau eru hallærislega skemmtileg. Það kemur mikill nostalgíufílingur í mann þegar maður heyrir þetta og ekki skemmir fyrir að dressa sig aðeins upp.“ Curver segir að fyrir um tíu árum hafi 80´s bylgjan komið aftur en nú sé það 90´s sem hætt er að vera hallærislegt og er komið hringinn. „Í sumar hefur þessi tónlist verið áberandi í auglýsingum og teiknimyndum. Ég hef meira að segja heyrt No Limit á handboltaleikjum. Það geta allir verið sammála um að þessi tónlist er skemmtileg,“ segir Curver sem vonast til að sjá ólíka hópa á NASA á gamlárskvöld. „Við höfum verið að fá til okkar nýbylgjufólk og pönkara. Pælingin er að sameina listaspírutreflana og hitt fólkið á einu kvöldi.“ Curver segir að þessi 90´s bylgja sé ekki bara á Íslandi heldur séu haldin mörg þúsund manna partí í Bretlandi og Þýskalandi. Forsalan er byrjuð á www.nasa.is og hvetur Curver fólk til þess að næla sér í miða sem fyrst. „Við munum telja í fljótlega eftir miðnætti og svo verður bara brjálað stuð. Það má líka alveg segja frá því að þetta er í boði Campari og Thule.“ BRJÁLAÐ 90´S GAMLÁRSPARTÍ CURVER OG KIKI OW Á NASA Það hefur vantað alvöru gamlárspartí 90´S HLJÓMSVEITIR SEM HEYRAST Á NASA 2 Unlimited Prodigy Dr Albarn Haddaway Scatman John Underworld Vanilla Ice House of Pain Bubbleflies Bong Pís of Keik Happy Feet er krúttleg- asta mynd í heimi. Myndin fjallar um mörgæsina Mumble. Mumble kann ekki að syngja og verður það honum til mikils ama, enda finna mörgæsir sér lífstíð- armaka með söng. Útskúfun og einsemd bíða því Mumble sem reynir hvað hann getur að bjarga sér fyrir horn með einstökum danshæfi- leikum. Elijah Wood, Robin Williams og Gwyneth Paltrow fara með aðalhlutverkin. Pottþétt jólamynd. 90´S Curver og Kiki Ow verða með brjálað gamlárspartí á NASA. Jólaleikrit Þjóðleikhússins í ár er Bakkynjur eftir Evrípedes, einn þekktasti harmleikur grísku gull-aldarinnar. Allir alvöru kúltúr-snobbarar munu flykkjast á þessa uppfærslu sem er sögð afar tilkomumikil. Af öllum grísku guðunum er Díónýsos án efa sá hressasti. Í leikritinu kíkir hann í heimsókn til borgarinnar Þebu til að tékka á því hvort allir séu ekki örugglega að stunda brjálaðan ólifnað, sukk og aðra vitleysu. Þeir sem treysta sér ekki geta bókað sig fyrst á námskeið í Þjóðleikhúsinu sem kennir gríska harmleiki. Sniðugt. Dagskráin á gamlárskvöld Þegar mér áskotnaðist boðsmiði á frumsýningu Flags of Our Fathers vissi ég satt að segja ekki mikið um myndina, annað en að hún var að einhverjum hluta tekin upp á Íslandi og Clint Eastwood hefði leikstýrt henni. Ég gerði mér því smávæntingar þar sem hann fékk nú einu sinni Óskarinn fyrir síðustu mynd sína Million Dollar Baby. Myndin fjallar um sex hermenn sem reisa fánastöng á fjalli sem þeir hafa verið að berjast um í einhverja daga. Þeir slysast á ljósmynd þegar þeir eru að því og í kjölfarið kemst þessi mynd í blöðin. Þeir þrír sem lifðu af eru fengnir heim til Bandaríkjanna í einhvers konar auglýsingaherferð og titlaðir sem hetjur. Myndin fer fram og aftur í tíma en það virkaði engan veginn hjá Clint og eftir því sem leið á myndina fannst mér eins og ég væri að sjá sömu atriðin aftur og aftur. Það er nánast enginn söguþráður í myndinni og ég fann enga samúð með persónunum. Um miðbik myndarinnar var ég byrjaður að dotta en þá var ég líka orðinn þreyttur á þessu: „I‘m not a god damn hero!“ tali í fánareisurunum, sérstaklega í Ira Hayes (Adam Beach) sem tókst að lifa af stríðið en dó síðan vegna of mikillar áfengisneyslu. Bandaríski kjánahroll- urinn lét á sér kræla á nokkrum stöðum og ég var hálffeginn þegar myndinni lauk. Þetta er vissulega flott og vönduð mynd en hreyfir bara ekk- ert við manni. Ég vona að japanska útgáfan, Letters from Iwo Jima, verði betri. Ég gef myndinni eina stjörnu sem ég ætla að tileinka öllum íslensku statistunum sem komu að myndinni og fengu lúsarlaun fyrir. Freyr Arnaldsson Kvikmyndagagnrýni Sirkuss Fábrotnir fánareisarar STORM LARGE LADYLIKE „Þetta lag er eiginlega lag sem ég kolféll fyrir þegar þættirnir voru í gangi á sínum tíma, hún er náttúrulega alveg að bræða mann með þessum „slutty“ klæðnaði og frábærri rödd og attitjúti.“ JAMES MORRISON THE PIECES DONT FIT ANYMORE „Þessi kappi kemur verulega á óvart með sinni fyrstu sólóplötu, hann er búinn að henda út þremur lögum á skömm- um tíma núna, og þetta lag er langbesta lagið... án nokkurs vafa.“ KILLERS WHEN YOU WERE YOUNG „Ég eiginlega féll fyrir þessu lagi þegar ég skellti mér til Ameríku um daginn, þá var þetta lag úti um allt, sem og reyndar Killers yfir höfuð. Lagið er náttúrulega bara alveg ÓGEÐSLEGA GOTT.“ BRYNJAR MÁR MÆLIR MEÐ BARINN Það verður elektrópartí á Barnum. DJ Skeletor verður í transi fram á morgun. Mættu snemma svo þú þurfir ekki að bíða í röð í tvo tíma. PRAVDA Hallli og Ingvar verða með pose.is partí á Pravda. Frítt vín fyrir þá sem kaupa sig inn. VIP herbergi á efri hæðinni. Áki Pain spilar. ÓLIVER Opnar klukkan korter fyrir eitt. Hægt að panta borð á cafeoliver.is. Fjöldinn allur af skemmtiatriðum og plötusnúðum. PRIKIÐ Það verður rappfest á Prikinu. Danni Deluxe, Dóri DNA og Bent halda uppi stuðinu. Fullt af röppurum og kampavín á tilboði. BROADWAY Sálin spilar á stóra sviðinu og tekur alla slagarana. Í hliðarherbergjum verða plötusnúð- arnir DJ Víkingur, Addi Exos, Grétar G og DJ Björn Þór. SIRKUS29.12.06 Albert Hammond 101 „Eiturhress og skemmti- legur gæi sem er ekki á eiturlyfjum.“ Mastadon The Wolf Is Loose „Úlfurinn er algjörlega laus í þessu lagi, engin spurning.“ Wolfmother The White Unicorn „Þeir eru það besta sem komið hefur frá Ástralíu síðan Mark Viduka kom fyrst fram.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.