Fréttablaðið - 29.12.2006, Page 4
Atlantsolía - Vesturvör 29 - Sími 591 3100
atlantsolia@atlantsolia.is
Engar tapaðar
kvittanir
Nú er hægt að tengja Dælulykilinn
við netfang þannig að um
klukkustund eftir dælingu
kemur sjálfkrafa pdf- kvittun
með tölvupósti.
Kvittun í tölvupósti
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
6
0
7
0
6
RSK
Skráning í síma: 591-3100
Faglega ábyrgð á starf-
semi meðferðarheimilisins Byrg-
isins bera Guðmundur Jónsson og
læknarnir Ólafur Ólafsson og
Magnús Skúlason.
Þetta kemur fram í skriflegu
svari Guðmundar Jónssonar og
Jóns A. Einarssonar, fyrir hönd
stjórnar sjálfseignarstofnunar
Byrgisins, við sjö spurningum
Magnúsar Stefánssonar félags-
málaráðherra sem lagðar voru
fyrir stjórnina 19. desember.
Fréttablaðið hefur spurningarnar
og svörin undir höndum.
Svörin voru
meðal þess sem
rætt var um á
fundi í félags-
málaráðuneyt-
inu í gær er full-
trúar frá
ráðuneytinu,
Reykjavíkur-
borg, lögregl-
unni í Reykjavík,
embætti land-
læknis og Fast-
eignum ríkis-
sjóðs sátu fundinn.
Ráðherra spurði sérstaklega að
því hver væri ástæða þess að yfir-
lýsing um greiðslu á styrk frá
félagsmálaráðuneytinu til Byrgis-
ins, dagsett 21. október 2003, væri
„ekki undirrituð af hálfu styrk-
þega?“ Stjórnin svarar því til að
samninganefnd félagsmálaráðu-
neytisins hafi ákveðið einhliða
hvernig samningur, um hversu
marga skjólstæðinga Byrgið
skyldi veita húsaskjól, myndi
hljóða. Á þeim forsendum hefði
verið óþarft að undirrita samning-
inn.
Ráðherra spyr einnig að því
hvernig stjórn Byrgisins svari
„þeim ásökunum sem fram hafa
komið í fjölmiðlum varðandi starf-
semi Byrgisins og til hvaða
aðgerða“ hún hyggist grípa af því
tilefni. Guðmundur og Jón mót-
mæla því að Byrgið hafi í óleyfi
rekið afeitrunardeild en nefna þó
að fólk sem kemur í meðferð í
Byrgið dvelji á „aðhlynningar-
deild“ í 10 daga áður en hefðbund-
in meðferð hefst. Tóku þeir ekki
frekari afstöðu til annarra álita-
efna en greindu frá að Guðmund-
ur hefði verið kærður til lögreglu
og það mál væri til rannsóknar.
Guðmundur hefur tímabundið
hætt störfum sem forstöðumaður
en Jón gegnir nú stöðu forstöðu-
manns.
Í svari Guðmundar og Jóns
fyrir hönd stjórnarinnar kemur
fram að Leifur A. Ísaksson hafi
sagt sig úr stjórn Byrgisins 21.
desember eftir að umfjöllun um
Guðmund og kynferðislegt sam-
band hans við skjólstæðinga
Byrgisins komst í hámæli eftir
umfjöllun í fréttaskýringaþættin-
um Kompási á Stöð 2.
Ráðherra spyr einnig hver sé
„mælanlegur árangur af starf-
semi Byrgisins“ frá 1. janúar 2004
til desember 2006. „Árangurs-
skýrsla vegna framangreinds tíma
hefur ekki verið gerð,“ segir í
svari Guðmundar og Jóns.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
Fréttablaðsins hefur ekki náðst í
Guðmund Jónsson undanfarna
daga. Hilmar Baldursson, lögmað-
ur hans, hefur ekki getað haft
milligöngu um að Guðmundur tjái
sig um málefni Byrgisins við
Fréttablaðið eins og óskað hefur
verið eftir.
Guðmundur, Ólafur og
Magnús bera faglega ábyrgð
Stjórn Byrgisins telur ótvírætt að ríkisendurskoðun og félagsmálaráðuneytið hafi átt að hafa eftirlit með
starfsemi Byrgisins. Forstöðumaður og læknar bera ábyrgð á faglegu starfi samkvæmt svari til ráðuneytis.
Suður-kóreska
ríkisstjórnin hefur boðið körlum
fé, lofi þeir í staðinn að kaupa
ekki þjónustu vændiskvenna eftir
árslokaveislur fyrirtækja.
Ákvörðunin er liður í tilraun
stjórnvalda til að breyta veislu-
hefðum landsmanna, en ötullega
er nú barist gegn vændi og
mansali.
Um 1.300 fyrirtæki tóku þátt í
aðgerðinni og fengu karlkyns
starfsmenn til að skrifa nafn sitt
á lista, þar sem þeir lofa ofan-
greindu. Það fyrirtæki sem hefur
flesta þátttakendur hlýtur sem
svarar 360.000 íslenskum krónum
í verðlaun.
Fé fyrir að forð-
ast kaup á blíðu
Rússneskur karl-
maður tilkynnti starfsfólki
flugvélar sem hann var farþegi í
að hann væri með sprengju og
neyddi flugstjórann til að lenda á
Ruzyne-flugvellinum í Prag í
gærmorgun.
Vélin var á leið frá Moskvu til
Genfar þegar atvikið varð, en
maðurinn heimtaði að vélinni yrði
flogið til Afríku.
Starfsfólki vélarinnar tókst að
róa manninn niður um borð í
vélinni. Hann særðist lítillega í
átökunum, en lögregla gaf ekki
upp hver meiðsl hans voru.
Tékknesk stjórnvöld sögðu að
þau teldu ekki að um hryðju-
verkamann hefði verið að ræða.
Ekki lá ljóst fyrir hvort maðurinn
hefði verið drukkinn þegar hann
reyndi flugránið.
Misheppnað
flugrán yfir
Tékklandi
Vopnað rán var fram-
ið í verslun 11-11 í Gilsbúð í Garða-
bæ í fyrrakvöld. Maðurinn, sem var
með hulið andlit, í kuldagalla og
með lambhúshettu, réðst inn í versl-
unina um klukkan ellefu. Starfs-
maður verslunarinnar tilkynnti lög-
reglu um málið og sagði hann
dökkklæddan mann hafa komið
hlaupandi að honum og slegið hann
í andlitið þannig að hann datt í gólf-
ið. Maðurinn var vopnaður járn-
stöng sem hann ógnaði tveimur
starfsmönnum með en beitti ekki að
öðru leyti. Hann hrifsaði til sín pen-
inga úr peningakassanum, kvöldsöl-
una sem nam tugum þúsunda, og
hvarf svo út í myrkrið.
Enginn viðskiptavinur var í
versluninni og ræninginn, sem var
einn á ferð, vann starfsfólkinu ekki
mein að öðru leyti.
Lögreglan í Hafnarfirði handtók
fjóra menn, sem eru átján og nítján
ára, í tengslum við rannsókn máls-
ins síðdegis í gær.
Lögreglan yfirheyrði mennina
til skiptis í gærdag og fram á kvöld.
Mennirnir voru ekki samvinnuþýð-
ir og vildu lítið segja við lögregl-
una.
Ekki var kominn botn í málið á
níunda tímanum í gær en lögreglan
bjóst við því að mennirnir myndu
tjá sig um málið fyrr en síðar.
Að sögn lögreglunnar hafa allir
mennirnir komið við sögu lögregl-
unnar áður, en þó aldrei fyrir jafn
gróf brot. Lögreglan segir að einn
mannanna sé á sakaskrá fyrir fíkni-
efnabrot.