Fréttablaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 12
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Í gær var fyrsti dagur-
inn í árlegri pílagrímagöngu mús-
líma til Mekka, sem stendur fram
á mánudag. Pílagrímarnir gengu í
gær, eins og gert er á hverju ári,
þrettán kílómetra leið í gegnum
eyðimerkurdal frá Mekka til Mína,
allir íklæddir hvítum kyrtlum til
þess að minna á að allir menn eru
jafnir fyrir guði.
Búist er við að nærri þrjár
milljónir múslíma leggi leið sína
þangað í ár, þar af er tæpur helm-
ingur frá Sádi-Arabíu en aðrir eru
aðkomumenn víðs vegar að úr
heiminum.
Fjöldinn er svo gífurlegur að
oft stafar stórhætta af. Fyrir ári
létust meira en 260 manns í troðn-
ingnum og hafa stjórnvöld í Sádi-
Arabíu árum saman verið sökuð
um að gæta ekki nógu vel að
öryggi pílagrímanna.
Nú í ár hafa þau hins vegar
varið miklu fé til þess að bæta alla
aðstöðu við hina helgu staði til
þess að umferð hinna gangandi
pílagríma gangi greiðar fyrir sig.
Þá hafa meira en 30 þúsund lög-
reglumenn verið sendir á vett-
vang og ferðalangarnir eru sér-
staklega beðnir um að hafa engan
farangur með sér í gönguna, þar
sem troðningurinn á síðasta ári
hófst með því að nokkrir ferða-
menn hrösuðu um farangur í
mannfjöldanum.
Pílagrímaferð til Mekka er ein
af fimm frumskyldum múslíma.
Þeim ber að fara í slíka ferð að
minnsta kosti einu sinni á ævinni,
svo framarlega sem þeir hafa
heilsu til þess og efni á því.
Pílagrímarnir dvelja í Mekka
og nágrenni í nokkra daga og
fylgja þar hefðum sem eru í mjög
föstum skorðum. Í gær gengu þeir
í kringum Kaaba, svarta kassa-
laga steinbyggingu sem er helg-
asti staður íslams. Gengið er sjö
sinnum rangsælis í kringum
Kaaba, þrisvar hratt og síðan fjór-
um sinnum á eðlilegum göngu-
hraða.
Í dag halda þeir frá Mekka til
Mína þar sem þeir dveljast í stór-
um tjaldbúðum yfir nótt, og þaðan
liggur leiðin síðan til fjallsins
Arafat þar sem farið er með
bænir.
Mesta hættan fyrir pílagrím-
ana hefur orðið undir lok ferðar-
innar þegar þeir safnast saman
við þrjár steinsúlur í Mina til þess
að kasta í þær grjóti og eru þá
með táknrænum hætti að grýta
djöfulinn.
Nú í ár er andrúmsloftið mark-
að af áhyggjum múslíma af átök-
um í Írak, fyrir botni Miðjarðar-
hafs og nú síðast í Sómalíu. Spenna
milli súnní-múslíma og sjía er
mikil, einkum þó í Írak, en báðar
þessar meginfylkingar sameinast
í pílagrímaförinni.
Pílagrímar
streyma
til Mekka
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa á árinu bæði hert ör-
yggisgæslu og bætt mjög aðstöðu pílagríma í Mekka
til að koma í veg fyrir að fólk troðist undir.
Afmæli TM TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is / www.tryggingamidstodin.is
Skemmtun á Ingólfstorgi í dag
Í jólamánuðinum hafa fjölmargir landsmenn tekið snúning á skautasvelli TM
á Ingólfstorgi, en í dag, 29. desember, er síðasti dagurinn sem opið er á svellið.
Af því tilefni bjóðum við hjá TM upp á veglega skemmtidagskrá á Ingólfstorgi
í dag frá kl. 17:00 - 20:00.
Fjölbreytt skemmtiatriði, m.a.:
Jazzhljómsveitin „Johnny and the rest“, Baggalútur, Skoppa og Skrítla, Ídýfurnar o.fl.
Heitt Swiss Miss kakó og piparkökur í boði.
Góða skemmtun.
TM – sterkir á svellinu!
50
ÁRA
TM
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
M
I
35
53
0
12
/0
6
Katrín Edda Svansdóttir
- sölumaður í þjónustuveri RVR
V
62
22
B
Skrifstofuvörur
á janúartilboði
Bréfabindi A4,
5cm og 8cm kjölur.
148kr.
Mopak ljósritunarpappír,
5x500 blöð í ks.
1.240kr. ks.
Á tilboði
í janúar 2007
Bréfabindi, ljósritunar-pappír, merkipennar,
töflutússar og
veggklukka
Merkipennar,
898kr. pk.
bláir, svartir, rauðir
og grænir, 12 stk í pk.
Við minnum ríkisstofnanir og sveitarfélög á eftirtalda rammasamninga:
RK 02.15: Ritföng og skrifstofuvörur. RK 02.01: Ljósritunarpappír.
„Það hrygg-
ir mig ef Kínverjar breyta
reglum sínum á þann veg
að einhleypir geti ekki
lengur ættleidd börn
þaðan,“ segir Þórunn
Sveinbjarnardóttir,
alþingismaður og móðir
ættleiddrar stúlku. Hún
segir þetta ekki síst
hryggilegt vegna barn-
anna sem þurfa á betri
aðbúnaði að halda.
Samkvæmt heimildum breska
ríkisútvarpsins munu
Kínverjar herða reglur
um skilyrði til ættleiðing-
ar á næsta ári og útiloka
einhleypa frá ættleiðing-
um þarlendra barna.
Þórunn segir að hún
hafi beðið í 2-3 ár eftir að
fá dóttur sína en nú er
biðtími einhleypra orðinn
sjö ár og hefur því lengst
um 4-5 ár á nokkrum
árum.
Segir að biðtími
einhleypra lengist