Fréttablaðið - 29.12.2006, Síða 26

Fréttablaðið - 29.12.2006, Síða 26
greinar@frettabladid.is Ekkert blað? 550 5600 Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu fengið Fréttablaðið. En til vonar og vara skaltu klippa þetta símanúmer út og hringja ef blaðið berst ekki. - mest lesið Þegar jólin nálgast, fara jólasveinarnir á kreik. Þegar kosningar nálgast, birtast þeir Stefán Ólafsson og Þorvaldur Gylfason. Fyrir þingkosningarnar 2003 héldu þeir því fram, að fátækt hefði aukist á Íslandi. Í ljós kom, að þeir áttu við hlut- deild tekjulægsta hópsins í heildartekjum, og þrátt fyrir hærri tekjur þessa hóps hafði þessi hlutdeild minnkað eitthvað, af því að heildartekjur höfðu aukist stórkostlega vegna fleiri tekjuhárra manna. „Fátækt“ í skilningi þeirra Stefáns og Þorvalds hafði aukist, af því að Björgólfur Guðmundsson og Jóhannes í Bónus voru orðnir miklu ríkari, þótt enginn hefði orðið fátækari í venjulegum skilningi orðsins, heldur allir orðið ríkari. Rökréttasta ráðið gegn slíkri „fátækt“ var auðvitað að hrekja ríka menn af landinu, svo að tekjuskipting yrði jafnari, jafnvel þótt allir yrðu fátækari fyrir vikið. Stefán kynnti líka fyrir síðustu kosningar skýrslu, sem Harpa Njálsdóttir hafði gert á fátækt. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar og fyrrver- andi borgarstjóri í Reykjavík, vitnaði síðan óspart í þau Stefán og Hörpu. En snarlega var hætt að tala um málið, þegar á það var bent, að Ingibjörg Sólrún hafði í borgarstjóratíð sinni skert stórlega kjör tekjulægsta hóps borgarbúa. Nú halda þeir Stefán og Þorvaldur því fram, að ójöfnuður hafi aukist á Íslandi. Þeir eiga við hið sama og fyrir fjórum árum, að hlutdeild tekjulægsta hópsins í heildartekjum hafi minnkað (þótt ráðstöfunartekjur þessa tekju- lægsta hóps hafi raunar aukist síðustu ár um 30%). En þeir þegja um ástæðuna. Hún er, að heildar- tekjurnar hafa hækkað mikið, vegna þess að fjármagnstekjur hafa myndast við hliðina á venjulegum launatekjum. Dr. Benedikt Jóhannesson stærð- fræðingur hefur reiknað út, að tekjuskipting á Íslandi sé tiltölulega jöfn og svipuð því, sem gerist á Norðurlöndum, sé ekki tekið tillit til fjármagnstekna. Með öðrum orðum hefði áhyggjuefni þeirra Stefáns og Þorvalds ekki orðið til, hefðu fjármagnstekjur ekki myndast. Þá hefðu þeir ekki getað talað í hneykslunartón um ójöfnuð. En fjármagnstekjur eru hér nýtt fyrirbrigði. Áður var slíkt fjármagn annaðhvort ekki til eða í höndum ríkisins. Engar tekjur eru af fjármagni, sem er ekki til, og tekjur af fjármagni í höndum ríkisins voru litlar og stundum minni en engar. Allir muna, þegar varð að leggja ríkisbönkunum til stórar fjárhæðir úr ríkissjóði. Fjármagn í höndum ríkisins var uppspretta feikilegs ójafnað- ar, því að aðgangur að því fór eftir stjórnmálaítökum. Menn skiptust í flokksgæðinga og venjulegt fólk, sem þurfti að bíða fyrir utan bankana í löngum röðum frá því snemma á morgn- ana eftir því einu að fá nei frá bankastjórum. Með því að færa fjármagnið úr höndum ríkisins tókst að stórauka jöfnuð á Íslandi. Nú skammta vextir lán, ekki fulltrúar stjórnmálaflokka. Fjármagn, sem var áður hálfdautt og engum til gagns, er nú sprelllifandi og ber mikinn ávöxt. Bankar greiða á þessu ári 12 milljarða í tekjuskatt. Fjár- magnstekjur nema á þessu ári að minnsta kosti 18 milljörðum. Hefðu þeir Stefán og Þorvaldur unnið það til að missa af þessum tekjum í ríkissjóð, svo að tölur Efnahagssamvinnu- og þróunar- stofnunarinnar í París um tekjuskiptingu á Íslandi hefðu litið betur út frá sjónarmiði jafnaðarmanna? Jöfnuður hefur aukist hér á fleiri sviðum. Hér er ekkert atvinnuleysi, en það er mikið úti í Evrópu. Þar er mikill ójöfnuður milli launþega og atvinnuleys- ingja, og beita launþegar óspart ríki og verkalýðsfélögum til að koma í veg fyrir sveigjanlegri vinnumarkað, sem væri atvinnu- leysingjunum í hag. Aukinn jöfnuður á Íslandi hlýst líka af því, að ríkið hefur greitt upp skuldir sínar. Annars hefði verið hér ójöfnuður milli núlifandi kynslóðar og komandi kynslóða. Óhófleg skuldasöfnun ríkisins merkir, að skattgreiðendur hér og nú taka til láns af skattgreiðend- um síðari tíma án samþykkis þeirra. Síðast, en ekki síst, hefur jöfnuður aukist vegna þess, að fleiri greiða nú tekjuskatt en áður, en skiptast ekki í skattleys- ingja og skattgreiðendur, þiggjendur og veitendur. Margir úr tekjulægsta hópnum höfðu áður svo lágar tekjur, að þeir greiddu ekki skatta. Nú hafa tekjur þeirra hækkað nóg til þess, að þeir greiða skatta. Þetta kalla þeir Stefán og Þorvaldur, að skattbyrði þeirra hafi þyngst. Þetta kalla ég, að þeir séu orðnir aflögufærir. Einkavæðing hefur sjaldnast gengið áfallalaust. Þó er misjafnt hve klaufsk yfirvöldin eru við markaðsvæðingu opin- berrar starfsemi. Nýjasta dæmið er fyrir- tækið Matís ohf. Það er stofnað upp úr Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Mat- vælarannsóknum á Keldnaholti og rann- sóknarstofu Umhverfisstofnunar. Hluta- bréf er eitt eins og fyrri daginn enda hlutaféð allt í eigu ríkisins og starfsmenn því strangt til tekið eftir sem áður í þjónustu ríkis- ins. Það eina sem kemur til með að breytast eru réttindi starfsmanna þegar til lengri tíma er litið. Við sambærilegar aðstæður hafa stéttarfélögin reynt að lágmarka skaðann og iðulega hefur tekist að ná rammasamkomulagi um ýmsa grunnþætti. Í því sambandi má nefna Flugstöð Leifs Eiríkssonar og í burðarliðnum er samkomulag SFR við hlutafé- lagavætt RARIK. Eitt hefur reyndar alltaf staðið út af en það eru lífeyrismál starfsmanna því fram til þessa hafa hlutafélagavæddar stofnanir neitað ný- ráðnum starfsmönnum um aðild að A-deild Lífeyr- issjóðs starfsmanna ríkisins enda þótt félagsmönn- um í BSRB, BHM og KÍ sé heimill aðgangur að deildinni lögum og reglum samkvæmt. Enda þótt óskiljanleg kergja sé í flest- um stjórnum hlutafélagavæddra fyrir- tækja gagnvart starfsmönnum og stétt- arfélögum virðist stjórn Matís ohf. ætla að slá flest fyrri met. Félagið neitar nefnilega að gera rammasamkomulag sem vísar inn í framtíðina við stéttarfé- lög hins nýja fyrirtækis. Friðrik Friðriks- son, formaður stjórnar Matís ohf., lýsti því yfir á fundi með starfsmönnum skömmu fyrir hátíðar að ekki stæði til að leggjast yfir kjarasamningagerð með stéttarfélögum. Þess í stað hafa starfs- menn verið króaðir af einn og einn þar sem þeim hefur verið boðið að skrifa undir ráðning- arsamninga sem forsvarsmenn stéttarfélaganna segja vera afar loðna. Friðrik Friðriksson getur státað af því að vera fyrsti formaður Frjálshyggju- félagsins. Það félag varð til á níunda áratug síðustu aldar og var eitt helsta áhugamál félagsmanna að grafa undan verkalýðshreyfingunni. Getur verið að Friðrik Friðriksson hafi nú loksins komist í aðstöðu til að láta hugsjónir sínar rætast? Hvað segir hand- hafi hlutabréfsins í Matís ohf., Einar K. Guðfinns- son sjávarútvegsráðherra? Varla er hann án ábyrgð- ar í þessu máli? Höfundur er formaður BSRB. Andstaða við stéttarfélög Jöfnuður hefur aukist! E nn á ný er flugstjórnarmálum á Íslandi stefnt í óefni af völdum flugumferðarstjóra. Þeir hafa oft á undanförn- um árum haft uppi miklar kjarakröfur, og virðist hafa orðið töluvert ágengt í krafti stöðu sinnar við að sinna mikilvægum störfum við flugumferðarstjórn á mjög stóru svæði á hafinu í kringum Ísland. Það eru reyndar ekki aðeins flugumferðarstjórar hér á landi sem hafa sett flug á ákveðnum svæðum í uppnám, því kollegar þeirra hafa oft á tíðum valdið miklum truflunum á flugumferð með aðgerðum sínum víða um heim. Þetta virðist fylgja flugum- ferðarstjórum hverrar þjóðar sem þeir eru. Grunnorsökin að uppnámi flugumferðarstjóra að þessu sinni er breytt rekstrarfyrirkomulag flugstjórnarmála hér á landi. Stofnað var fyrr á árinu sérstakt félag um flugumferðarþjón- ustuna hér, eins og dæmi um annars staðar. Þetta félag á að taka formlega til starfa á nýársdag, en það blæs ekki byrlega fyrir um rekstur þess á fyrstu starfsdögum. Fyrirsjáanlegt er að truflanir verða á flugstjórn á íslenska flugstjórnarsvæðinu, en vonandi hefur sú truflun ekki alvarlega atburði í för með sér. Langstærstur hluti starfsmanna Flugmálastjórnar hefur ákveð- ið að færa sig yfir til hins nýja félags, sem verður svokallað opinbert hlutafélag líkt og stefnt er að með Ríkisútvarpið. Það er eðlilegt að starfsmenn, sem lengi hafa verið opinberir starfs- menn, beri ugg í brjósti þegar rekstrarfyrirkomulagi stofnana þeirra er breytt, og á það ekki síst við um eldri starfsmenn og ekki síst hvað varðar lífeyrissjóðsmál allra starfsmanna þess- ara stofnana. Samkvæmt yfirlýsingum ráðamanna, hefur líf- eyrisréttur flugumferðarstjóra verið tryggður, þannig að þeir eiga ekki að tapa neinu á því sviði. Þeir einir meðal starfsmanna Flugmálastjórnar hafa hins vegar notað tækifærið til að knýja á um breytt og betri kjör, þrátt fyrir að þeir séu með gildan kjara- samning sem ekki rennur út fyrr en árið 2008. Flugmálayfirvöld máttu vita að flugumferðarstjórar yrðu ekkert lamb að leika sér við þegar kæmi að breyttu rekstrarfyr- irkomulagi, og því hefðu þau átt að vera við því búin að þurfa að fara samningaleiðina í þessu máli. Stífni á þeim vængnum í samskiptum við óbilgjarna flugumferðarstjóra gæti orðið okkur dýrkeypt. Forvígismenn í flugi hér á landi unnu kraftaverk með því að byggja upp íslenska flugstjórnarsvæðið, en nú eru blikur á lofti varðandi það. Það er mjög slæmt afspurnar fyrir okkur að þessi deila sé nú komin í mikinn hnút. Hætta er á að aðrar þjóðir taki nú yfir hluta af stjórn á svæðinu með nýju ári, og það gæti því orðið erfitt að heimta þann hlut aftur. Flugfélög sem stunda flug milli meginlands Evrópu og Ameríku verða fljót að láta í sér heyra, ef þau geta ekki notað hagkvæmustu leiðir yfir hafið, og flugumferðarstjóradeilan á Íslandi fer að hafa áhrif á eldsneyt- iskostnað og flugtímann á milli mikilvægra áfangastaða þeirra. Það er því mikið í húfi fyrir okkur að geta haldið uppi eðlilegri starfsemi á íslenska flugstjórnarsvæðinu, en það virðist hins vegar stefna í minni og lakari þjónustu vegna þess að flugum- ferðarstjórar ætla sér að ná verulegum kjarabótum út á breyt- ingar á rekstri flugumferðarþjónustunnar hér. Flugstjórnarmál enn í uppnámi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.