Fréttablaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 38
Hverjir voru hvar um jólin
29.12.062 FÖSTUDAGUR [7°] LAUGARDAGUR [6°] SUNNUDAGUR [2°]
Útgáfufélag 365 prentmiðlar Útgefandi Helgi Hermannsson, ábm. Ritstjórn Andri Ólafsson, andri@minnsirkus.is, Breki Logason,
breki@minnsirkus.is, Dröfn Ösp Snorradóttir, drofn@minnsirkus.is, Heimir Hermannsson, heimir@minnsirkus.is, Helga Ólafsdóttir,
helga@minnsirkus.is Yfirmaðursirkusmiðla Árni Þór Vigfússon arni@minnsirkus.is Sirkusblaðið Skaftahlíð 24 105 Rvk, sími 550
5000 Sölustjóri Gréta Karen Grétarsdóttir 550 5864 gretakaren@frett.is
SIRKUS
1. Þú ætlar ekki að
drekka matarolíu til þess
að undirbúa magann.
2. Það er enginn matur á
gamlárskvöld, bara sérrí.
3. Þú ert bara með Rúv+.
4. Þú fékkst kassa af rauðvíni í jólagjöf.
5. Þú læsist inni á lagernum hjá
ÁTVR.
6. Þú dettur í það í fyrsta skiptið
á gamlárs.
ATRIÐI SEM BENDA TIL ÞESS AÐ...
...þú verðir dauður fyrir Skaup
„Ég hlakka ótrúlega til að koma aftur til
Íslands,“ sagði Jonas Basshunter þegar
Sirkus spjallaði við hann í vikunni en hann
kemur til Íslands í dag, verður fram yfir
áramót og heldur fimm tónleika víðs
vegar um landið.
Jonas segist himinlifandi yfir
viðtökunum sem hann fékk þegar
hann hélt tónleika hér á landi fyrir
skömmu og ætlar að endur-
gjalda aðdáendum sínum
stuðninginn með óvæntum
glaðningi á tónleikunum. Jonas
vill ekki gefa upp hver glaðn-
ingurinn sé en gefur í skyn að
um nýjan danssmell sé að
ræða. Þegar á Jonas fyrir tvo
smelli sem gert hafa allt
vitlaust á árinu. Í bæði
jákvæðri og neikvæðri
merkingu þess orðs. Því
annað hvort elskar fólk
Basshunter og lögin hans
eða hatar. Boten Anna er til
dæmis líklega það lag sem flestir hafa fengið
á heilann á árinu 2006.
Það þurfti ekki beinlínis að pína Jonas til að
koma aftur hingað til lands því ónefnd íslensk
stúlka hefur fangað hug hans. Það er ekki
laust við það að kallinn æsist allur upp þegar
hann er spurður út í viðskipti sín við þessa
huldukonu.
„Ég kynntist stelpu hérna á Íslandi þegar ég
var á landinu. Við höfum verið í töluverðu
sambandi síðan og ég ætla að hitta hana
þegar ég kem. Ég ætla ekki að segja hvað
hún heitir en segi þó að mér finnst hún
frábær.“
Jonas er að vinna í því að fá fjölskyldu sína
með til landsins og gera tónleikaferðina að
eins konar fjölskylduferð.
„Mig langar til að fara með þeim í hvalaskoð-
un. Ég hef aldrei séð hval og það yrði frábær
upplifun. Ég vona að mér gefist tækifæri til
að gera þetta á meðan ég dvel á Íslandi.“
Þeim sem hafa áhuga á að sjá Basshunter á
tónleikum er bent á flass.is en þar verður
hægt að kaupa miða á herlegheitin.
BASSHUNTERINN SNÝR AFTUR OG ÆTLAR NÚ Í HVALASKOÐUN
Á íslenska kærustu
Basshunterinn
Mættur aftur og er nú kominn með
íslenska kærustu.
Flestir nota jólahátíð-
ina til þess að
slappa af og lesa
kannski eins og
eina góða bók.
Aðrir líta á þetta
sem fínan vettvang til
skemmtana. Þeir sem á
skólabekk sitja sleppa sér eftir
langan próflestur um jólin.
Þessa jóladaga sáust einhverjir
frægir á djamminu. Endurkoma
Eiðs Smára frá Barcelona er það sem stendur upp úr
en hann sást á Oliver. Þar sáust einnig Ásgeir
Kolbeins, Árni Þór Vigfússon og Jóhann Guðlaugsson
fyrrverandi Svarta kortsmaður. Handboltamenn-
irnir Vignir Svavarsson og Haraldur Þorvarðar-
son, markahæsti línumaðurinn í deildinni,
voru elstu mennirnir inni á Hverfisbarnum.
Ottó Tynes var skítblankur á Ölstofunni á
meðan Dóri DNA og rappvinir hans rúlluðu á
milli Thorvaldsen og Priksins. Thelma Þormars-
dóttir ofurmódel var með
vinkonum sínum á Sirkus. Einn
besti plötusnúður bæjarins
Ghozt sást ásamt Brunhein
félaga sínum á Pravda í góðum
fíling. Ljósmyndarinn Nína Björk
sást einnig á Vegamótum um
jólin.
Á rið 2006 var ágætt ár. Ég heyrði af endurskoðanda í Reykjavík sem
fékk tannpínu á
árinu. Var hann
að drepast og
hringdi í
tannlækninn
sinn. Sá var
frekar upptek-
inn og sagðist
ekki eiga tíma í
bráð en bað
hann að harka
þetta af sér.
Næsta dag hringir tannsi í hádeginu og
spyr endurskoðandann hvort hann geti
ekki komið um þrjúleytið.
Með píku-
hár á milli
tannanna
R ambaði endurskoðandinn út í bíl klukkutíma fyrir tímann en þurfti þá að keyra heim til sín í Grafar-
voginn til þess að skipta um föt. Þetta var
jú nokkur aðgerð. Þegar heim er komið
var eiginkonan að baka smákökur inni í
eldhúsi. Á meðan endurskoðandinn skiptir
um föt í snatri segist konan vilja fá
eitthvað frá manninum. Hann hafði ekkert
fengið síðust þrjá mánuði og varð frekar
pirraður. „Ekki akkúrat núna, ég er á
hraðferð.”
I nnan skamms er hann byrjaður að sleikja frúna uppi á eldhúsborði því hún hótaði frosti næstu þrjá mánuði
ef ekkert gerðist. Endurskoðandinn dreif
þetta af og kláraði svo að klæða sig í
jogginggallann. Á ljósunum uppi á
Höfðabakkabrúnni er honum svo litið í
spegilinn og sér þar píkuhár á milli
tannanna. Hann reynir að taka það í burtu
en það kemur grænt ljós og hárið verður
eftir á milli tannanna.
Ð e lónlí blú bojs hljómuðu á tannlæknastofunni þegar endurskoðandinn hlammaði sér í
stólinn. Hann opnar munninn og þá
springa tannlæknirinn og klinkan úr hlátri.
Strákurinn er fljótur að átta sig á aðstæð-
um og spyr hvort það sé píkuhárið á milli
tannanna sem kætir. Tannlæknirinn verður
hissa á svipinni en svarar: „Nei, þú ert
bara með kúk á hökunni.“ Gleðilegt ár og
hafið það gott um áramótin.
Breki Logason