Fréttablaðið - 29.12.2006, Qupperneq 82
Samkvæmt dönskum fjöl-
miðlum er líklegt að Kári Árnason
gangi til liðs við danska úrvals-
deildarliðið AGF í Árósum þegar
félagaskiptaglugginn opnar í jan-
úar. Sjálfur staðfesti hann við
Fréttablaðið í gær að hann ætti í
samningaviðræðum við ákveðið
félag en vildi ekki segja hvaða.
Hann æfði með enska úrvals-
deildarliðinu Charlton fyrir nokkr-
um dögum en býst ekki við að neitt
komi úr því.
„Ég hef ekkert heyrt í þeim.
Charlton er því væntanlega ekki
inni í myndinni eins og er,“ sagði
Kári. „Eins og er á ég í viðræðum
við eitt ákveðið lið en önnur lið eru
svo sem enn í myndinni.“
Fyrr í haust skoðaði Árni
aðstæður norska úrvalsdeildar-
liðsins Álasunds en hefur þegar
hafnað því að ganga til liðs við
það.
Extra Bladet í Danmörku
greindi frá því á dögunum að AaB
hafi gert Kára tilboð sem hafi
verið hafnað. Þess í stað sé talið
líklegt að hann gangi til liðs við
AGF.
Guðlaugur Tómasson, umboðs-
maður Kára, sagði í samtali við
blaðið að hann teldi sjálfur mikla
möguleika á því að hann kæmi til
með að spila í Danmörku.
„Hann er hrifinn af danska
leikstílnum og ef hann heldur
áfram að spila á Norðurlöndunum
verður það í Danmörku,“ er haft
eftir Guðlaugi.
Samkvæmt Extra Bladet er til-
boð á borðinu frá AGF sem hljóðar
upp á tíu milljónir króna í árslaun.
Kári mun vera að skoða það til-
boð.
Hann er þó enn samningsbund-
inn sænska úrvalsdeildarliðinu
Djurgården og verður það til árs-
ins 2008. Hann segir margar
ástæður fyrir því að hann vilji
fara frá liðinu, bæði persónulegar
og hvað varðar fótboltann sjálfan.
Sigurður Jónsson tók nýverið við
þjálfun liðsins en hann þjálfaði
Kára áður hjá Víkingi.
„Auðvitað togar það í mig að
spila aftur fyrir Sigga en ég var
búinn að ákveða að fara áður en
hann var ráðinn.“
Það er einnig talið skipta máli í
með ákvörðun Kára að kærasta
hans mun vera í námi í Árósum.
Kári á leið til AGF í Danmörku?
Erlendur mun vera með báðum liðum
Keith Vassell hefur
gengið til liðs við ÍR sem leikur í
Iceland Express-deild karla. Þetta
staðfesti Jón Arnar Ingvarsson,
þjálfari liðsins, við Fréttablaðið í
gær. Hann verður löglegur með
liðinu 18. janúar næstkomandi en
er þessa stundina staddur
erlendis í jólafríi.
Vassell tók við þjálfun Fjölnis
í haust en hætti skömmu eftir að
Bárður Eyþórsson hætti með ÍR.
Bárður fór að þjálfa Fjölni í hans
stað og nú er Vassell kominn til
ÍR.
Þá mun Haukum berast
liðstyrkur á nýju ári en Kevin
Smith hefur verið látinn fara frá
félaginu. Í hans stað kemur
Wayne Arnold og þá mun Predrag
Novakovic frá Serbíu einnig fara
til Hauka.
Vassell til ÍR
Garðar Jóhannsson mun
halda til Noregs 3. janúar
næstkomandi og væntanlega
skrifa undir samning við úrvals-
deildarliðið Fredrikstad. Þetta
staðfesti hann í samtali við
Fréttablaðið í gær.
Upphaflega fór hann til liðsins
í ágúst en þá hljóp snurða á
þráðinn er í ljós kom að félaga-
skiptin voru ólögleg. En nú hefur
það allt verið leyst.
„Ég er fyrst og fremst feginn
að þessu öllu sé lokið. Þetta hefur
verið langur og erfiður tími,“
sagði Garðar.
Félagi hans í Valsliðinu, Birkir
Már Sævarsson, mun að öllum
líkindum verða samferða Garðari
til Fredrikstad og æfa með liðinu
í vikutíma eða svo.
Garðar semur
við Fredrikstad
Keflvíkingar eiga von
á nýjum Bandaríkjamanni til liðs
við sig á nýju ári, en í fyrradag
sendu þeir Tim Ellis til síns
heima. Nýi leikmaðurinn heitir
Ismael Mohammad, 23 ára gamall
og lék áður með Georgia Tech-
háskólanum í Bandaríkjunum.
„Hann er ágætur framherji.
Ég hef séð leiki með honum og
mér líst ágætlega á hann. Það er
bara vonandi að hann henti liðinu.
Ég hef trú á því, hann er svona
liðsspilari,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflavík-
ur.
Nýr kani á leið
til Keflavíkur
Í gærkvöldi
var kjöri íþróttamanns ársins lýst
á Grand Hotel og varð handknatt-
leiksmaðurinn Guðjón Valur Sig-
urðsson fyrir valinu í ár. Hann
hlaut 405 stig af 460 mögulegum
og var 72 stigum á undan næsta
manni, Eiði Smára Guðjohnsen
knattspyrnumanni. Eiður var kjör-
inn íþróttamaður ársins síðustu
tvö ár.
Sá sem var handhafi sæmdar-
heitisins síðustu tvö ár á undan
Eiði, Ólafur Stefánsson handknatt-
leiksmaður, lenti í þriðja sæti
kjörsins.
Guðjón Valur var að vonum
ánægður með tilnefninguna. „Ég
er að alveg rosalega ánægður og
gríðarlega stoltur að hafa fengið
þessa viðurkenningu. Það er alltaf
gaman þegar verk manns eru við-
urkennd og eftir manni er tekið.
Þetta breytir engu sérstöku hjá
mér, ekki æfingunum eða hand-
boltanum úti, en það eru fyrst og
fremst forréttindi að fá að tilheyra
svona glæsilegum tíu manna hópi
og hvað þá að fá að vinna þetta,“
sagði Guðjón Valur og sagði að
þetta að hafi komið sér í opna
skjöldu.
„Ég verð að segja alveg eins og
að viðurkenna að þetta kom mér
gríðarlega á óvart. Það eru frá-
bærir íþróttamenn í þessum hóp.
Ég þarf auðvitað ekki að nefna
alla en t.d. Eiður, Ólafur, Auðunn
og Ásthildur, þetta eru einfaldlega
frábærir íþróttamenn.“
Guðjón Valur var ekki viss
hvort hægt væri að toppa þetta ár.
„Það yrði erfitt en við skulum
vona það. Þessi titill er ekkert sem
hægt er að stefna að, þetta er ein-
faldlega gríðarlegur heiður. Árið
er að vísu ekki búið, ég flýg út á
morgun til að spila síðasta leikinn
á laugardaginn og það er bara von-
andi að maður nái að enda þetta ár
með sigri.“
Árið hefur verið viðburðaríkt
hjá Guðjóni en hann var ekki vafa
á því hvaða atburður hafi staðið
uppúr. „Sigrarnir gegn Svíum
voru alveg einstök upplifun. Ég
hef aldrei upplifað það með lands-
liðinu áður að það hafi verið troð-
full Laugardalshöll og svona rosa-
lega stemmning. Þetta er það sem
við óskum okkur alltaf og þetta
var held ég toppurinn á árinu hjá
mér.“
Hverju þakkar Guðjón Valur
þann árangur sem hann hefur náði
í handboltanum? “Ég kem frá
mjög góðu og heilbrigðu heimili
þar sem mér voru tamdar lífsregl-
urnar snemma. Ég hef líka verið
mjög heppinn með félög. Ég byrj-
aði hjá Gróttu og var með mjög
færa þjálfara sem lögðu mikla
vinnu í mig og nenntu að hlusta á
bullið í manni. Ég hef líka verið að
spila með liðum þar sem er mjög
skemmtilegur mórall og einnig
spilað með mjög góðum leikmönn-
um sem bæta mann sjálfan. Það
held ég að skipti miklu máli því í
hópíþróttum þá nær maður engum
árangri svona einn og yfirgefinn,”
sagði Guðjón Valur.
Heimsmeistarakeppnin í hand-
bolta hefst í næsta mánuði og Guð-
jón Valur sagði að óneitanlega
væru leikmenn farnir að huga að
þeirri keppni.
“Maður er farinn að huga
aðeins að því en það fyrsta hjá
mér að klára núna síðasta leikinn
á laugardaginn og komast heill frá
honum. En mér líkar aldrei við að
giska á sæti. Við þurfum einfald-
lega að setja stefnina á að vinna
þann leik sem við erum að spila og
sjá hvar við endum.”
Guðjón Valur fékk að gjöf 500
þúsund krónur við verðlauna
afhendinguna í gær og hann sagð-
ist ætla að gefa þá peninga til
Styrktarsjóð Umhyggju, sem er
sjóður þar sem foreldrar lang-
veikra barna geta leitað sér aðstoð-
ar. Frábært framtak hjá frábær-
um íþróttamanni.
Guðjón Valur tók við nýrri
styttu sem fylgir sæmdarheitinu
en sú gamla var afhent í síðasta
skipti í fyrra og hefur nú verið
falin Þjóðminjasafni Íslands til
varðveislu. Það eru Samtök
íþróttafréttamanna sem standa að
kjörinu og nýttu allir 23 meðlimir
samtakanna kjörrétt sinn að þessu
sinni. SÍ fagnaði 50 ára afmæli á
árinu sem er að líða.
Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleiksmaður með Gummersbach í Þýskalandi, var í gær kjörinn íþrótta-
maður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna. Eiður Smári Guðjohnsen varð annar í kjörinu.