Fréttablaðið - 16.01.2007, Blaðsíða 48
Bókarkorn sem femínistinn Hurðaskellir var svo vinsam-
legur að gefa táningsdóttur
minni í skóinn heitir því skorin-
orða nafni „Það er staður í helvíti
fyrir konur sem hjálpa ekki hver
annarri“. Boðskapurinn er ótví-
ræður eins og nafnið og ágætt
eldsneyti í jafnréttishugsunina.
Niðurstöðurnar eru meðal ann-
ars að karlar og konur séu sam-
sek um viðhald ójöfnuðar kynj-
anna en höfundarnir styðjast við
eigin reynslu og vísindalegar
rannsóknir frá Svíþjóð. Því
miður er ekki ástæða til að ætla
að hlutirnir séu mikið skárri hér
á Íslandi.
dætra minna, systra,
vinkvenna, sjálfrar mín og þess
helmings mannkyns yfirhöfuð
sem ber skarðan hlut frá borði er
mér jafnrétti kynjanna ofarlega
í huga. Oft er ég samt sofandi
gagnvart flestu því ótölulega
smotteríi sem samanlagt setur
okkur allar skör lægra en karla.
Ójöfnuðurinn birtist nefnilega
svo víða að við tökum oft ekki
eftir honum. Flest okkar stuðla
að og viðhalda hefðbundnum
hlutverkum, því við vorum alin
upp við þau sjálf.
sem styður ríkjandi
ástand er mælanlegt þó sumt
virðist í fljótu bragði vera létt-
vægt. Foreldrar sem eiga bæði
stráka og stelpur halda því
gjarnan fram að áhugi barnanna
á hefðbundnum kynhlutverkum
hljóti að vera genetískur því svo
sannarlega hafi þau fengið
nákvæmlega sama uppeldið. Við
nánari skoðun kemur samt í ljós
að munur er á framkomu við
stráka og stelpur og skilaboðin
sem kynin fá um hegðun og
hugsun eru gjörólík. Fyrsti tónn-
inn er jafnvel sleginn meðan
krílin eru í vöggu, sveinbörn eru
hvött til athafna en meybörn
þykja best sofandi. Skilyrtu upp-
eldinu er haldið áfram á fjöl-
breytilega vegu í gegnum skóla-
kerfið og ekki síst í
atvinnulífinu.
drengja er hamp-
að en dugnaði og þægð stúlkna.
Sjálfstæð ákvarðanataka lýsir
röggsemi karlsins en kona skal
leita samþykkis hópsins áður en
hún tekur af skarið. Karlar
styðja karla til áhrifa en færri
konur hafa eða kunna við að nýta
tengslanet. Opinberir álitsgjafar
eru oftast karlar, í hópi fastra
penna Fréttablaðsins eru þeir
tuttugu á meðan konurnar eru
sjö. Ekkert breytist af sjálfu sér,
við getum öll hjálpast áfram að
við að viðhalda ástandinu.
Staður í helvíti
Nú með vetrardekkjum og dráttarbeisli
Responds to your lifeNýr Kia
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
8
1
4
6
KIA Sorento með ríkulegum staðalbúnaði
• hátt og lágt drif • 5 þrepa sjálfskipting
• ESP stöðugleikastýring • öflug 170 hestafla dísilvél
• ný og glæsileg innrétting • hraðastillir (Cruise Control)
• 16" álfelgur • þakbogar
• vindskeið og þokuljós • 3.500 kg dráttargeta
Sorento hefur slegið í gegn um allan heim og eignast dygga fylgismenn
á Íslandi. Það er ekki að ástæðulausu að Sorento er orðinn einn
vinsælasti jeppi landsins, enda líklega bestu jeppakaupin í dag.
Vetrardekk og dráttarbeisli fylgja með.
FULLBÚINN
ALVÖRUJEPPI
3.595.000 kr.
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU. Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is