Fréttablaðið - 16.01.2007, Blaðsíða 20
Tónlist sjöunda áratugarins
dunar þrjá morgna í viku í
Hress þar sem hressar konur
dilla sér í takt við tónana.
Þær mæta hressar í Hress þrjá
morgna vikunnar og hreyfa sig af
innlifun við tónlist frá fyrri ára-
tugum. Edda Björgvins hefur orð
fyrir hópnum.
„Við eigum það sameiginlegt
nokkrar kellur að eiga rosalega
erfitt með að fara í venjulega
líkamsrækt. Þolum ekki lóð og
erum dauðhræddar við einkaþjálf-
ara og tækjasali. Við höfðum reynt
að fara í göngutúra og sund og ein-
hvern veginn ekki hangið í því. En
allar hlæjum við mikið og hristum
okkur þegar við heyrum sixtís-
tónlist, gömlu lögin, þú veist.
Svo fengum við þessa brilljant
hugmynd af því Linda í Hress er
svo hress og af því hluti hópsins er
í Hafnarfirðinum að spyrja hana
hvort við mættum ekki mæta
þrisvar í viku á morgnana milli
hálf átta og átta með sixtístónlist-
ina okkar. Það varð úr og allir sem
eru hjá henni í tímum plús vinkon-
ur okkar fá að vera með.
Við byrjuðum á þessu í haust.
Þetta er bara hálftími í einu og
ekki í eitt skipti hefur mér dottið í
hug að ég væri of þreytt eða hefði
ekki tíma til að mæta. Ég er bara
mætt án þess að vita af.
Við gerum ekkert annað en að
stilla Herman‘s Hermits í botn og
Dave Clark Five og hrista okkur
eins og okkur sé borgað fyrir. Það
er ógeðslega gaman og það skrítna
er að við höfum aldrei upplifað
eins magnaða hreyfingu, aldrei
brennt jafn miklu og aldrei teygt
jafn vel. Það er svo skrítið að
þegar maður fer í stuð við ein-
hverja tónlist sem maður elskar
þá fer maður óvart að teygja á
ýmsum vöðvum algerlega ómeð-
vitað, þannig að upp rifjast öll þau
spor sem maður hefur lært í gegn-
um tíðina. Fyrir utan hreyfinguna
fer maður í vímu því endorfín-
framleiðslan í líkamanum snar-
eykst við það að dansa og syngja.
Maður verður eins og að hafa
skellt í sig tveimur tvöföldum,
með fast bros á andlitinu og í
ofboðslega góðu skapi. Alveg sama
hvernig maður mætir, maður fer
alltaf himinglaður út. Þetta er eins
og að lenda á góðri árshátíð.“
Eins og á góðri árshátíð
Laugardalshöll fitpilates.is
Stinnur rass, sléttur magi
í hádeginu