Fréttablaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 4
4 2. mars 2007 FÖSTUDAGUR
GenGið 01.03.2007
Gjaldmiðlar kaup sala
Heimild: seðlabanki Íslands
119,5324
GenGisvísitala krónunnar
66,11 66,43
129,74 130,38
87,40 87,88
11,727 11,795
10,796 10,860
9,427 9,483
0,5594 0,5626
99,58 100,18
Bandaríkjadalur
sterlingspund
evra
dönsk króna
Norsk króna
sænsk króna
japanskt jen
sdr
neyTenDAmál Samfylkingin vill lækka matvælaverð
og önnur útgjöld heimilanna enn frekar. Í ályktun
þingflokks Samfylkingar er lögð áhersla á að lækka
megi matvælaverð tvöfalt meira með því að fella
niður vörugjöld og lækka tolla í samráði við bændur.
„Við fögnum lækkun matvælaverðs en vekjum
athygli á því að ríkisstjórnin lofaði að lækkun á
matvælaverði næmi sextán prósentum. Nú er komið
fram að hún verður í besta falli í kringum tíu
prósent. Baráttunni fyrir bættum hag heimilanna er
því hvergi nærri lokið,“ segir Össur Skarphéðinsson,
þingflokksformaður Samfylkingar.
Hann segir flokkinn einnig vilja lækka útgjöld
heimilanna á öðrum sviðum. „Þessi ríkisstjórn hefur
sett Evrópumet varðandi vexti og heimsmet í
viðskiptahalla. Við viljum lagfæra þetta, bæta
hagstjórnina og lækka verðbólguna.“
Auk þess leggur þingflokkurinn til að stimpil- og
þinglýsingargjöld húsnæðislána verði afnumin og
skorar á viðskiptabankana að lækka lántöku- og
innheimtugjöld með það að markmiði að þau nemi
ekki hærri fjárhæð en sem nemur kostnaði bank-
anna. - sþs
samfylkingin ályktar um lækkun matvælaverðs og greiðslubyrði heimilanna:
Gætum lækkað tvöfalt meira
matvöruverslun meðal þess sem samfylking vill gera til að
lækka matvælaverð enn frekar er niðurfelling vörugjalda og
lækkun tolla í samráði við bændur.
DómSmál Hæstiréttur dæmdi
ummæli þess efnis að Bubbi
Morthens væri fallinn dauð og
ómerk í gær. Þar með staðfesti
hann dóm Héraðsdóms Reykjavík-
ur vegna fyrirsagnar á forsíðu
tímaritsins Hér og nú hinn 16. júní
2005.
Garðar Örn Úlfarsson, blaða-
maður og fyrrverandi ritstjóri Hér
og nú, var dæmdur til þess að
greiða Bubba 700 þúsund krónur í
miskabætur auk einnar milljónar í
málskostnað. Bótakrafa Bubba
hljóðaði upp á tuttugu milljónir
króna.
Á forsíðu blaðsins var mynd af
Bubba þar sem hann sat í bíl sínum
með sígarettu í munninum, með
fyrirsögninni „Bubbi fallinn!“. Í
frétt inni í blaðinu var sagt að
Bubbi væri fallinn á tóbaksbind-
indi.
Í dómi Hæstaréttar segir að
ekki hafi verið unnt að skilja for-
síðufyrirsögnina öðruvísi en svo að
fullyrt væri að Bubbi væri byrjað-
ur að neyta fíkniefna, enda væri
þorra þjóðarinnar kunnugt um
vímuefnaneyslu hans fyrr á árum.
Einnig sagði að Bubbi hefði
mátt vænta þess að friðhelgi einka-
lífs síns yrði virt, og sú friðhelgi
hefði verið brotin með birtingu
myndanna.
„Til þess að eitthvað megi fara
fyrir sjónir almennings þurfa
myndirnar að eiga erindi til
almennings,“ sagði Sigríður Rut
Júlíusdóttir hæstaréttarlögmaður
eftir dóminn. „Það að taka mynd af
umbjóðanda mínum inni í bílnum,
við einkalífsathöfn [að reykja síg-
arettu], átti ekki neitt erindi til
almennings.“
Gísli Hall, lögmaður Garðars,
segir niðurstöðuna koma sér á
óvart. „Miðað við þau dómafor-
dæmi sem við höfum og það sem
gengur og gerist í þjóðfélaginu
finnst mér Hæstiréttur ganga langt
í því að takmarka það sem á að
heita frjáls fjölmiðlun,“ segir
hann.
„Það er dapurlegt að dómarar
Hæstaréttar skuli velja að teygja
sig svona langt til að koma á fram-
færi skilaboðum um sinn persónu-
lega smekk,“ segir Garðar Örn,
sem nú starfar sem blaðamaður á
Fréttablaðinu. „Þessi niðurstaða
stenst naumast fyrir Mannrétt-
indadómstóli Evrópu því hér eru
lagðar línur um að hefta útgefend-
ur og blaðamenn á Íslandi með
alveg óviðunandi hætti.”
Ummæli um Bubba
dæmd dauð og ómerk
Ummæli um Bubba á forsíðu Hér og nú voru dæmd ómerk í Hæstarétti í gær.
Fyrrverandi ritstjóri greiðir 700 þúsund krónur í bætur. „Átti ekki erindi til almenn-
ings,“ segir lögmaður Bubba. „Langt gengið í takmörkun,“ segir lögmaður ritstjóra.
Formaður blaðamannafélags:
tvíræðni blaða-
manna bönnuð
arna schram, formaður blaða-
mannafélagsins, segist hafa
áhyggjur af þessum dómi.
„er Hæstiréttur að segja að
blaðamenn megi ekki leika
sér með tvíræðni? Telst maður
friðhelgur fyrir ljósmyndurum inni
í bíl? Hvernig metur Hæstiréttur
hvað á erindi til almennings og
hvað ekki?“
Hún segir að ekki verði betur
séð en að Hæstiréttur sé með
þessum dómi sínum að hefta
frelsi blaðamanna við störf sín og
það finnist henni dapurlegt. - mh
ÞýSkAlAnD, Ap Þjóðverji á
fimmtugsaldri hefur verið
handtekinn, grunaður um að hafa
nauðgað og myrt níu ára dreng
fyrir tæpri viku. Hann reyndi að
svipta sig lífi og liggur nú þungt
haldinn á sjúkrahúsi.
Drengurinn, Mitja Hofman, var
á leið heim til sín með sporvagni
þegar maðurinn, Uwe Kolbing,
settist við hliðina á honum.
Drengurinn fór með Kolbing úr
vagninum og spurðist ekki til hans
eftir það. Lík drengsins fannst á
laugardagsmorgun í garði sem
Kolbing sótti tíðum. Kolbing
fannst síðan stórslasaður eftir að
hafa stokkið fyrir sporvagn. - sþs
Handtaka í leipzig:
Barnaníðingur
stökk fyrir lest
DómUR Skoð-
AðUR Bubbi
morthens og
lögmaður hans,
sigríður rut Júlí-
usdóttir, skoða
dóm Héraðsdóms
reykjavíkur sem
féll í lok mars
á síðasta ári.
Dómurinn var
staðfestur af
Hæstarétti í gær.
UmhveRFiSmál Efnablandan sem
nú er dreift um götur borgarinn-
ar til að binda svifryk er tuttugu
prósenta magnesíumklórlausn og
því hættulaus. Efnið er náskylt
natríumklóríði og í matvælaiðn-
aði hefur magnesíumklóríð helst
verið notað til að lækka natríum-
innihald matvæla.
Saltblandan er sex sinnum
dýrari en venjulegt salt, sem
annars er dreift á götur borgar-
innar. Kostnaðurinn er rúmlega
42.000 krónur á tonnið. Á síðustu
fjórum sólarhringum hefur 25
tonnum af blöndunni verið dreift
með ágætum árangri því
mælingar sýna umtalsvert minna
svifryk en áður við svipaðar
aðstæður. -shá
svifryksmengun:
Rykbinding er
umhverfisvæn
rykBinDinG á sæBraut 25 tonnum af
efnablöndunni hefur verið dreift undan-
farna fjóra daga. fréTTaBlaðið/Gva
FjÖlmiðlAR Kristján Már Unnars-
son fréttamaður hefur verið
ráðinn varafréttastjóri Stöðvar 2.
Kristján Már tekur við starfinu
af Þóri Guðmundssyni sem hefur
tekið við starfi ritstjóra visir.is.
Sigmundur Ernir Rúnarsson er
sem áður fréttastjóri Stöðvar 2.
Kristján Már starfaði sem
fréttamaður á Stöð 2 frá 1988 en
hann hóf fjölmiðlaferil sinn á
Dagblaðinu árið 1980. - sþs
Breytingar hjá stöð 2:
Kristján Már
varafréttastjóri
heilbRiGðiSmál Samningur um
bólusetningaskrá sóttvarnalæknis
var undirritaður í gær af Siv
Friðleifsdóttur heilbrigðisráð-
herra, Haraldi Briem sóttvarna-
lækni og Garðari Má Birgissyni,
framvæmdastjóra TM Software.
Með bólusetningaskrá má fá
ýmsar tölulegar upplýsingar um
fjölda bólusetninga um land allt
og meta hættu á útbreiðslu
sjúkdóma, sem hægt er að koma í
veg fyrir með bólusetningu.
Einnig geta læknar flett upp
bólusetningum einstaklinga á
heilsugæslustöðvum. - kóþ
samstarf í heilbrigðismálum:
Bólusetningar
samræmdar
UmhveRFiSmál Þegar framkvæmd-
ir voru stöðvaðar í Heiðmörk á
dögunum, brugðu stjórnendur
Klæðningar ehf. á það ráð að
senda vélarnar og mannskapinn
til að efla þá vinnuhópa sem koma
að gerð lagnarinnar hinum megin
frá.
Nú vinna fleiri menn frá
Klæðningu að gerð lagnarinnar
við Vífilsstaðavatn í landi
Garðabæjar, en þar var áður
hópur til staðar. Um tvö aðskilin
verk og útboð mun vera að ræða,
en lagnirnar munu eiga að
tengjast. - kóþ
Heiðmerkurframkvæmdin:
Haldið áfram
hinum megin
GarðaBæJarlöGnin Hér er grafið við
veginn fyrir ofan vífilsstaðavatn, hjá
skógræktarsvæðinu við smalaholt.
fréTTaBlaðið/villi