Fréttablaðið - 02.03.2007, Síða 12
12 2. mars 2007 FÖSTUDAGUR
bitið í japanska fánann Suðurkór-
eskur mótmælandi reyndi að rífa jap-
anska fánann í sundur með tönnunum
í gær á útifundi fyrir utan japanska
sendiráðið í Seúl. Í gær fögnuðu
Suður-Kóreumenn fullveldi landsins,
sem hófst með blóðugri uppreisn
gegn japönsku nýlendustjórninni hinn
1. mars árið 1919. fréttablaðið/aP
HúSnæðiSmál Félagsmálaráðu-
neytið hefur gefið út reglugerð
um breytt lánshlutfall og fjárhæð
lána hjá Íbúðalánasjóði. Breyt-
ingin felur í sér að lánshlutfall
almennra lána hækkar úr áttatíu
prósentum í níutíu prósent og
hámarksfjárhæð almennra lána
hækkar úr sautján milljónum í
átján milljónir króna. Breytingin
tók gildi 1. mars. Lánshlutfallið
og hámarksfjárhæðin eru færð í
sama horf og þau voru áður en
ríkisstjórnin greip til aðgerða í
efnahagsmálum í lok júnímánað-
ar 2006.
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra vildi ekki tjá sig um þessa
breytingu en Einar Oddur Kristj-
ánsson, varaformaður félags-
málanefndar Alþingis, segir að
félagsmálaráðherra hafi skýra
heimild samkvæmt lögum til að
afgreiða þetta með reglugerðar-
breytingu. Einar Oddur telur að
margir muni gagnrýna þessa
breytingu og halda því fram að
hún sé til marks um lausung í
opinberri stjórnsýslu.
„Ég vona að það verði lítil áhrif
af þessu en dreg enga dul á að ég
tel þessa aðgerð mjög óheppilega.
Hún verður til þess að koma inn
efasemdum um að menn standi af
nógu mikilli einurð að efnahags-
málum,“ segir Einar Oddur og
kveðst ekki vita „hvaða nauð rak
þá til að gera þetta en þeir gerðu
það og ég harma það. Ég tel þetta
óheppilegt. Þetta hefði betur
verið látið ógert.“
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, telur að félagsmálaráð-
herra hafi leikið „mikinn afleik“
með breytingum hjá Íbúðalána-
sjóði. Hækkun lánshlutfalls og
hámarksláns gangi þvert á
ákvörðun ríkisstjórnarinnar í
kjölfar kjarasamninga „og á eftir
að virka sem verðbólgufóður
engum til gagns“, segir hann.
Pétur Blöndal, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar Alþing-
is, segir að breytingin hafi ekki
komið á óvart, vitað hafi verið um
hana með dags fyrirvara. Hann
bendir á að greiningaraðilar hafi
spáð lækkun fasteignaverðs. Með
það í huga sé „ákvörðunin kannski
ekki alveg slæm. Hún gæti jafn-
vel dregið úr þeirri lækkun. Hins
vegar hygg ég að margir líti svo á
að þessi aðgerð hækki hugsan-
lega verðið og geti þar með aukið
þensluna,“ segir hann.
Katrín Ólafsdóttir hagfræð-
ingur telur breytinguna geta haft
þensluáhrif og kveikt í íbúða-
markaðnum.
Ekki náðist í Magnús Stefáns-
son félagsmálaráðherra í gær.
ghs@frettabladid.is
pétur blöndal
„Hækkar hugsan-
lega verðið,“ segir
Pétur blön-
dal, formaður
efnahags- og
viðskiptanefndar.
katrín Ólafs-
dÓttir telur
breytinguna geta
haft þenslu-
áhrif og kveikt í
íbúðamarkaðn-
um.
Vilhjálmur
Egilsson „Á
eftir að virka sem
verðbólgufóður,“
segir Vilhjálmur
Egilsson, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka atvinnu-
lífsins.
Einar oddur
kristjánsson
„ég harma
það,“ segir Einar
Oddur Kristjáns-
son, varaformað-
ur félagsmála-
nefndar.
Breytingar á Íbúða-
lánasjóði umdeildar
Félagsmálaráðuneytið hefur hækkað lánshlutfall og hámarkslán hjá Íbúðalána-
sjóði í samræmi við það sem var í haust. „Afleikur,“ segir framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, „sem á eftir að virka sem verðbólgufóður.“
5.990kr.SPARAÐU 5.990kr.SPARAÐU 5.990SPARAÐU
fjár
föstu
dagur til
3.490
9.480
5.990kr.SPARAÐU 5.990kr.SPARAÐU
lAnDbúnAðUR „Ég veit ekki til þess
að erfðabreytt fóður sé notað í
nautgripa- og sauðfjárrækt á
Íslandi,“ segir Baldvin Jónsson,
verkefnisstjóri hjá Bændasamtök-
unum og vísar þar með á bug
ummælum Jóhannesar Gunnars-
sonar, formanns Neytendasamtak-
anna, um að notkun erfðabreytts
fóðurs ógni útflutningi á íslensk-
um landbúnaðarafurðum.
Íslendingar hafa markaðssett
mjólkurvörur og lambakjöt í
Bandaríkjunum og hefur versl-
anakeðjan Whole Foods Market
helst sýnt afurðunum áhuga en
þar er áhersla lögð á að bjóða upp
á vörur sem eru framleiddar án
tengsla við erfðatækni. Baldvin
telur ástæðu til að vara sauðfjár-
og nautgriparæktendur við notk-
un á erfðabreyttu fóðri til að
íslenskar afurðir geti haldið sér-
stöðu sinni. Telur hann líklegt að
kjúklinga- og svínaræktendur beri
ábyrgð á auknum innflutningi á
erfðabreyttu fóðri hingað til
lands.
„Ísland var eitt fárra landa í
veröldinni sem bönnuðu á sínum
tíma notkun á hormónum við rækt-
un. Það gerði íslenskar afurðir enn
eftirsóknarverðari síðar meir, þar
sem hormónarnir hafa reynst illa.
Bændur ættu einnig að vera á
varðbergi gagnvart erfðabreyttu
fóðri,“ segir Baldvin en bendir á
að fulltrúar Whole Foods Market
hafi ekki séð neitt athugavert við
íslenskar framleiðsluaðferðir
hingað til heldur þvert á móti hrif-
ist mjög af þeim. - kdk
Vísar því á bug að útflutningi á íslenskum landbúnaðarvörum sé ógnað:
Bændur ættu að vera á verði
íslEnskt kjöt baldvin Jónsson kveðst
ekki vita til þess að bændur hér noti
erfðabreytt fóður.
moSkvA, AP Sergei Lavrov,
utanríkisráðherra Rússlands,
varar Bandaríkjamenn við því að
ráðast inn í Íran. Jafnframt
gagnrýndi hann harðlega í
blaðaviðtali það sem hann sagði
einhliða viðbrögð Bandaríkja-
manna við erfiðum alþjóðamálum.
Lavrov sagði Rússa hafa
áhyggjur af nýlegum ummælum
Dicks Cheney, varaforseta
Bandaríkjanna, sem sagði „alla
möguleika opna“ til að koma í veg
fyrir kjarnorkuvæðingu Írans.
Rússar hafa ítrekað sagst
algerlega andvígir hörðum
aðgerðum gegn Íran. - gb
Utanríkisráðherra Rússlands:
Gagnrýnir ein-
hliða aðgerðir
DÓmSmál Tæplega þrítugur maður
hefur verið dæmdur í Héraðs-
dómi Suðurlands í sextán mánaða
fangelsi fyrir samfellda brota-
hrinu frá því í mars og fram í
september á síðasta ári.
Honum var gefið að sök að hafa
valdið skemmdum á bifreið með
því að bera eld að „Molotov-
kokteil“ sem hann hafði komið
fyrir undir vinstri hlið hennar.
Jafnframt að hafa hótað eiganda
bifreiðarinnar ofbeldi og lífláti.
Þá veitti hann einhvern tíma á síð-
asta ári viðtöku 190 töflum með
anabólískri verkan, sem hann
mátti vita að voru ólöglega inn-
fluttar. Auk þessa var maðurinn
tvívegis tekinn með ýmis fíkni-
efni í fórum sínum á síðasta ári.
Hann var sakfelldur fyrir vörslu,
dreifingu og ætlaða sölu á tæp-
lega 300 grömmum af kannabis-
efnum, tæplega 23 grömmum af
amfetamíni, rúmlega 18 grömm-
um af kókaíni og nokkrum e-töfl-
um.
Með brotunum sem sakfellt
var fyrir nú rauf maðurinn skil-
orðsdóm frá því í júlí 2003 og var
sá dómur dæmdur með þessu
máli. Auk fangelsisdómsins var
maðurinn sviptur ökurétti ævi-
langt og honum gert að greiða ríf-
lega 655 þúsund krónur í máls-
kostnað. - jss
sElfoss Héraðsdómur Suðurlands á
Selfossi dæmdi manninn til refsingar.
Sextán mánaða fangelsi fyrir samfellda brotahrinu:
Hótaði bíleiganda
ofbeldi og lífláti