Fréttablaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 2. mars 2007 13
FjÖlmiðlAR Um 10.500 fréttafilmur frá fyrstu
tveimur áratugum Ríkissjónvarpsins, frá
1966 til 1984, eru varðveittar í safni RÚV.
Þær eru allt frá tuttugu sekúndum að lengd
og upp í tuttugu mínútur.
„Lítið af 16 millimetra filmunum hefur
glatast,“ segir Sverrir Kr. Bjarnason, sem
vinnur að þessu í Kvikmyndasafni Íslands.
Filmurnar þarf að líma saman á ný, segir
Sverrir, því þær voru klipptar til fyrir
útsendingu og eru upprunalegar límingar
þornaðar upp og detta í sundur við snertingu.
Því næst þarf að samhæfa hljóð og mynd, því
tónbandið er stakt. Að lokum eru filmurnar
sendar til Danmerkur til hreinsunar og settar
yfir á stafræn myndbönd.
Innan nokkurra ára verður því hægt um
vik fyrir almenning að fá næstum hvaða
fréttaefni sem er, frá þeim árum þegar RÚV
var eina sjónvarpsstöðin.
Reyndar er lítið sem ekkert til af sjálfum
kynningum fréttamanna, því þær fóru á dýr
myndbönd, sem mátti endurnýta.
Sverrir telur engar stórar gloppur vera í
safninu. Þó sé rétt sem fram hafi komið í
Fréttablaðinu að efni utan af landi hafi farið
forgörðum, enda hafi myndatökumenn þar
oft verið að stíga sín fyrstu spor á ferlinum.
Sverrir er tæplega hálfnaður með verkið og
er þessa dagana að ganga frá Geirfinnsmál-
inu.
Fyrstu fimm árin eru nú þegar tilbúin og
komin til landsins frá Danmörku.
- kóþ
Ríkisútvarpið vinnur að endurheimt gamalla verðmæta hjá Kvikmyndasafninu:
Tíu þúsund filmur á stafrænt form
Sverrir Kr. BjarnaSon Telur
það taka um þrjú og hálft ár að
koma því sem eftir stendur af
fréttafilmusafni RÚV á varanlegt
stafrænt form. FRéTTablaðið/anTon
ÚtvarpShÚSið Í safni Rík-
isútvarpsins leynist margur
fjársjóðurinn. nú er unnið að því
að koma 10.500 fréttafilmum á
handhægt og aðgengilegt form.
ÖRyGGiSmál Samgönguráðuneytið
hefur falið nefnd um öryggi í
siglingum að gera tillögu að
afmörkun öruggra siglingaleiða
skipa og/eða takmörkun á
siglingum skipa og vinna að því
að siglingaleiðir sem valdar
verða hljóti alþjóðlega viður-
kenningu.
Í fyrstu verður unnið að því
að taka upp leiðarstjórnun við
Suður- og Suðvesturland en í
framhaldi af því er ætlunin að
ráðstafanir til leiðarstjórnunar
verði gerðar annars staðar við
landið einnig.
Leiðarstjórnun hefur ekki
verið beitt hingað til hér við
land. Leiðarstjórnun er ætlað að
auka öryggi í siglingum, minnka
líkur á mengunarslysum og
draga úr hættu af völdum
mengunar frá sívaxandi skipa-
umferð um íslenskt hafsvæði.
- shá
Samgönguráðuneytið:
Leiðarstjórnun
skipa afráðin
olíuSKip Skipaumferð við landið er
talin munu marfaldast á næstu árum.
Sum skipin flytja mikið magn olíu.
KjARAmál Samband foreldrafé-
laga og foreldraráða í grunnskól-
um Reykjavíkur (SAMFOK)
lýsir yfir áhyggjum á stöðu
samningaviðræðna milli Félags
grunnskólakennara og launa-
nefndar sveitarfélaganna.
SAMFOK skorar á báða aðila
að gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að ná samkomulagi.
Viðræðurnar hafa staðið yfir í
vetur og snúast um endurskoð-
unarákvæði er varða leiðrétt-
ingu launa á grundvelli verð-
bólgu og almennrar
kjaraþróunar. - bej
Kjaradeila grunnskólakennara:
Foreldrar hafa
áhyggjur
ráðherra styrkir útvarp
Magnús Stefánsson félagsmálaráð-
herra hefur ákveðið að veittur verði
500 þúsund króna styrkur úr ríkissjóði
til útvarps sem rekið er í Hafnarfirði
fyrir nýbúa.
hafnarfjörður
hús sígur undir varnargarði
bæjarráð Fjallabyggðar vill að
ofanflóðasjóður fái óháðan aðila
til að meta hvort framkvæmdir við
snjóflóðavarnargarð á Siglufirði hafi
orsakað óeðlilegt jarðsig undir einu
íbúðarhúsi við Hólaveg.
Siglufjörður
SAmGÖnGUR Tillaga Vinstri græns
um gjaldfrjálsan strætó til
reynslu í upphafi næsta árs var
felld á bæjarstjórnarfundi í
Kópavogi á mánudag. Fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins greiddu atkvæði
gegn tillögunni, en Samfylkingar-
fulltrúar studdu tillögu vinstri
grænna.
Samkvæmt tillögunni átti
bæjarstjórnin að beina því til
stjórnar Strætó bs. að gerð yrði
tilraun til að hafa ókeypis í strætó
fyrstu þrjá mánuði næsta árs, og
metið hvaða áhrif sú breyting
hefði á notkun vagnanna. - sþs
Bæjarstjórn fellir tillögu VG:
Ekki ókeypis í
Kópavogsstrætó