Fréttablaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 18
2. mars 2007 FÖSTUDAGUR18
„Ég er nýkomin heim af alþjóðlegri skáldahátíð í
Níkaragva og er svona að ná mér niður á jörðina,“
segir skáldkonan Birgitta Jónsdóttir og bætir því við að
vikudvölin í Mið-Ameríku hafi verið ákaflega skemmti-
leg. „Sem skáld fær maður hálfgert menningarsjokk
við að koma þangað því í Níkaragva er ljóðið ennþá
hluti af alþýðumenningunni. Þarna leggur almenningur
það á sig að læra ljóð utan að og fimm ára börn sátu
hugfangin og hlustuðu á mig lesa. Það var sannkölluð
karnivalstemning á þessari hátíð og mikið líf í bænum.
Þarna var fólk í alls konar búningum og við skáldin
stóðum á blómum skrýddum vögnum og lásum ljóð,“
segir Birgitta og viðurkennir að hátíðin hafi fengið hana
til þess að hugsa mikið um stöðu ljóðsins á Vestur-
löndum. „Á skáldahátíðum á Vesturlöndum er allt svo
formlegt og háfleygt. Þar eru skáld að lesa fyrir skáld og
hámenntaða menningarvita. Skáld ættu að taka meiri
þátt í dægurmenningunni til þess að ná til almennings,“
segir Birgitta, sem ætlar að skella sér á fleiri
skáldahátíðir á árinu ef hún hefur tíma.
„Það er eiginlega allt of mikið að gera hjá
mér. Núna er ég að vinna fyrir Vinstri grænt
og líkar það mjög vel. Það styttist í kosningar
svo það er nóg af verkefnum. Ég er óttalegur
anarkisti í mér og það kom mér á óvart hvað
það er skemmtilegt að taka þátt í þessu
starfi. Meðfram þessu reyni ég svo að vinna
í tveimur bókum sem ég er með í vinnslu,“
segir Birgitta, sem vill þó ekkert gefa upp
um efni bókanna. „Það kemur bara í ljós.
En ég er nýbúin að gefa út ljóðabók á
ensku sem heitir Samtöl við drauga. Ég fékk
ítalskan teiknara, sem kallar sig The Hand, í
lið með mér og bjó til teiknimyndaljóð. Það
er svo gaman að leika sér með ljóðið og prófa
eitthvað nýtt,“ segir Birgitta.
Hvað er að frétta? BirgiTTA JóNSdóTTir SkÁld
Með menningarsjokk í Níkaragva
nær og fjær
„orðrétt“
Engum manni hefur enn
tekist að fara fótgangandi
og syndandi um alla veröld-
ina. Bretinn Karl Bushby
hefur undanfarin ár reynt
sitt besta og stefnir á að
ljúka ferðinni árið 2009
eftir tólf ára þrotlausa
göngu. Ingi R. Ingason,
kvikmyndagerðarmaður
og framleiðandi Kompáss,
slóst í för með honum í
fyrra. Hann gerði heimild-
armynd fyrir BBC um hluta
ferðarinnar og hefur hún
verið tilnefnd til Royal Tel-
evision Society-verðlaun-
anna, sem eru æðstu verð-
laun sem sjónvarpsfólki
getur hlotnast í Bretlandi. „Þetta eru náttúrlega fávitar,“ segir
Ingi þegar hann er spurður út í
kynni sín af Karli Bushby og með-
hjálpara hans Dimitri Kieffer. Hann
tekur þó strax fram að hann beri
mikla virðingu fyrir þessum mönn-
um en það þurfi einhverja undar-
lega blöndu af áræðni, fífldirfsku
og hugrekki til að leggja í þessa för.
Án þessara eiginleika hefði þessum
mönnum ekki tekist að fara svaml-
andi yfir Bering-sundið.
„Við fylgdum þeim út á ísinn en
þegar gamanið tók að kárna og ísinn
að bresta meira og meira í kringum
okkur ákvað BBC að sitt fólk skyldi
hitta þá síðar,“ segir Ingi. BBC-liðar
sömdu við göngugarpana að þeir
skyldu hafa samband í gegnum
gervihnattasíma daginn eftir, beðið
var eftir símtali með óþreyju en án
árangurs. „Við hófum þá leit að
þeim á þyrlu. Þyrluflugmaðurinn
var alvanur leit enda hafði hann
verið í Víetnam á árum áður en við
fundum ekkert nema spor sem lágu
ofan í vök. Það eina sem flugmaður-
inn hafði að segja við þann fund var
„Mér þykir það leitt,“ og því töldum
við þá af,“ segir Ingi.
Símtalið langþráða kom þó öllum
að óvörum daginn eftir. „Þeir höfðu
þá látið sig vaða ofan í krapið og
svamlað áfram.
Straumurinn þarna var svo
sterkur að þá hafði borið mikið
lengra en búist hafði verið við og
því höfðum við ekki fundið þá þó
við hefðum leitað vel úr lofti,“ segir
kvikmyndagerðarmaðurinn og
hrollur fer um hann þegar hann
minnist fjörutíu stiga gaddsins sem
var á þessum slóðum.
Það verður ekki jafn napurt á
verðlaunaafhendingunni sem fer
fram 13. þessa mánaðar enda er
sjálfur Karl Bretaprins verndari
verðlaunanna. Ingi segist þó ekki
munu hitta prinsinn. „Ég kemst
ekki til Bretlands á þessum tíma
því ég verð í Mongólíu þegar
afhendinginn fer fram.“
karen@frettabladid.is
Karl í krapinu tilnefndur
BusHBy Leitað Á myndinni má sjá Morland Sanders, fréttamann BBC, kvikmynda-
gerðamannin inga r. ingason og þyrluflugmann þeirra. Saman leituðu þeir að
göngugörpunum Bushby og kieffer og töldu þá af. MyNd/úr EiNkASAfNi
ÍsBjarnarHauskúpa ingi segir betra
að vara sig á ísbjörnum þegar maður er
á ferð á ísbreiðum. MyNd/úr EiNkASAfNi
matur félagarnir Bushby og kieffer
veiða sér dýr til matar á ferðum sínum.
kvikmyndagerðarmönnum BBC þótti
uxinn heldur ókræsilegur.
MyNd/úr EiNkASAfNi
Dúðaður á Ísnum Það sést lítið af inga á þessari mynd enda fer um hann hrollur
þegar hann minnist gaddsins við Beringsund. fyrir kvikmyndagerðina á ísnum hefur
hann fengið tilnefningu til royal Television Society-verðlaunanna.
MyNd/úr EiNkASAfNi
Pétur Gunnarsson, faðir nemanda
í Öskjuhlíðarskóla, afhenti skólan-
um nítján spánnýjar tölvur og tvo
prentara síðastliðinn miðvikudag.
Pétur hringdi að eigin frum-
kvæði í ýmis fyrirtæki og bað þau
að styrkja skólann um eina tölvu
hvert. Vel var tekið í beiðni
Péturs, sem hóf söfnunina upp úr
áramótum.
Dagný Annasdóttir skólastjóri
var að vonum ánægð með framtak-
ið og sagði þetta mikla bragarbót.
„Það var mikill skortur og
tölvurnar orðnar gamlar. Þær
nýtast gífurlega vel í kennslu fyrir
fötluð börn og nú er tölva í hverri
einustu stofu hjá okkur.“ - kóþ
Framtak til fyrirmyndar:
Gaf nítján nýjar tölvur
frá afHenDingunni Pétur gunnarsson tók upp á því að hringja í fyrirtæki og safn-
aði nítján tölvum og tveimur prenturum á stuttum tíma. frÉTTABlAðið/HEiðA
Nú er ég hissa
„Þetta rýrir verulega láns-
traust aðila.“
HÁkoN STEfÁNSSoN, frAM-
kVæMdASTJóri lÁNSTrAuSTS,
úTSkýrir fyrir BlAðAMANNi
HVAðA ÁHrif ÞAð HEfur Að
lENdA Á VANSkilASkrÁ.
morgunblaðið 1. mars
Gæti svo sem verið
„ég man ekki til þess að við
höfum verið í lánastarfsemi.“
liNdA JóHANNSdóTTir, fyrr-
VErANdi fJÁrMÁlASTJóri BAugS,
MAN Ekki AlVEg HVAð HúN VAr
Að BAukA í ViNNuNNi.
fréttablaðið 1. mars
Lotus Professional
pappírsvörur
R
V
62
27
A
Rekstrarvörur
1982–200725ára
Halldór Sigdórsson
Þjónn, aðstoðarverslunarstjóri hjá RV
Á tilboði í
mars 2007
LinStyle servíettur og dúkar,
JustOne servíettur og
servíettubox
LinStyle servíettur
40x40cm, 50stk
794 kr.
2.388 kr.
JustOne startpakki
servíettubox og 600
servíettur
Virðisaukaskattur
hefur verið lækk-
aður úr fjórtán
prósentum niður
í sjö prósent, en
breytingin tók
gildi hinn 1. mars
síðastliðinn. í
kjölfarið munu
fylgja breytingar á
vörugjöldum og
tollum í ýmsum
matvöruflokk-
um. Heildaráhrif aðgerðanna eru
umtalsverð lækkun neysluvísitölu á
næsta ári, auk þess sem kaupmáttur
heimilanna eykst. Með lækkuninni
ætti matvælaverð á íslandi að vera
orðið sambærilegt við meðalverð á
hinum Norðurlöndunum.
Tryggvi Páll friðriksson í gallerí fold,
einn helsti uppboðshaldari íslands,
telur þessar breytingar eingöngu vera
af hinu góða. Sjálfur hafði hann ekki
farið í matvöruverslun þegar sam-
band var haft við hann í gær. Hins
vegar tók hann eftir því að verðið
á kókdósinni sem hann keypti sér í
sjoppu þann daginn hafði lækkað.
Hann sér enga ástæðu til þess að ótt-
ast það að eigendur matvöruverslun-
ar muni hækka vörurnar aftur. „Þær
halda örugglega, við neytendurnir
höfum eftirlit með því,“ segir hann.
„Ef við verðum vör við annað hættum
við einfaldlega að kaupa viðkomandi
vöru.“
SjónARhóll
Lækkun virðisaukaskatts
Kókið lækkar
tryggvi páLL
friðriksson
uppboðshaldari
og listmunasali.