Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 22
2. mars 2007 FÖSTUDAGUR22
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
Virðisaukaskatt-
ur á gistingu og
veitingar lækkaði
í sjö prósent í
gær. Birna B.
Berndsen er
verkefnastjóri
ráðstefnuþjón-
ustunnar Cong-
ress Reykjavík.
Samkvæmt
Alþjóða
efnahagstofn-
unni WEF er
Ísland vinsælt ferðamannaland.
En aukast vinsældirnar enn við
verðlækkanir?
Þetta er tvímælalaust skref í rétta
átt, þó hefði lækkun tolla á áfenga
drykki mátt fylgja í kjölfarið. Það er
eðlilegt að erlendir ferðamenn beri
saman verð á mat og drykk hér við
sitt heimaland, það gerum við sjálf
á ferðum okkar erlendis.
Mun lækkað gistiverð breyta
miklu?
Nei, gistiverðið skiptir ekki sköpum,
þar sem það er nú þegar sam-
keppnishæft við aðrar höfuðborgir
Evrópu. Verðlækkun er þó aldrei
annað en jákvæð fyrir kaupendur,
en bætt skipulag í ferðaþjónustu
og ímynd landsins skiptir ekki síður
máli.
SpURT & SvARAð
áhriF vErðlækkAnA á
FErðAþjónuStu
Skref í
rétta átt
BirnA B.
BErndSEn
Verkefnastjóri hjá
Congress Reykjavík.
hvað er vanskilaskrá?
Vanskilaskrá er tölvutækur gagnagrunnur sem inniheldur
upplýsingar um vanskil. Ýmsar stofnanir sem stunda
lánaviðskipti af einhverju tagi nota vanskilaskrá sem tæki
til að ákvarða lánstraust þeirra sem óska eftir lánafyrir-
greiðslu.
hvernig er hægt að lenda á vanskilaskrá?
Skuldir, kröfur eða gjöld sem ekki hafa verið greidd
til baka á tilgreindum tíma geta lent á vanskilaskrá.
Kröfurnar fara þó ekki samstundis á skrána ef
greiðslufall verður af hálfu skuldara. En því lengur
sem ekki er greitt af kröfu, þeim mun líklegra er að
kröfuhafi fari með málið í löginnheimtu.
Það fer svo eftir því á hvaða stigi krafan er
hvenær hún lendir á vanskilaskrá. Í stuttu máli
má því reikna með því að mál sé komið á
vanskilaskrá þegar það hefur komið til kasta
sýslumannsembætta eða héraðsdóms.
hvernig falla mál af vanskilaskrá?
Einfaldasta leiðin er að annað hvort greiða kröfuna eða senda
upplýsingar um uppgjörið til Lánstrausts hf. Ef það er ekki gerlegt
getur færslan verið á vanskilaskrá í allt að fjögur ár. Að þeim tíma
liðnum fellur hún sjálfvirkt af skrá. Í sumum tilfellum má komast
að þannig samkomulagi við kröfuhafa um greiðslu kröfunnar að
hann telji óhætt að láta afskrá viðkomandi mál af vanskilaskrá
áður en það er fulluppgert. Líkurnar á þannig afskráningu aukast
ef gengið er frá stærstum hluta kröfunnar sem fyrst.
hvaða áhrif hefur skráning á vanskilaskrá?
Skráning á vanskilaskrá getur heft möguleika lánaumsækj-
anda. Þeim getur annað hvort verið neitað um fyrirgreiðslu
eða þeir látnir afla sér trygginga og ábyrgða umfram það
sem óskað er af öðrum lánsumsækjendum. Ef viðkom-
andi aðili þarf ekki á nokkurri lánafyrirgreiðslu að halda
hefur skráning á vanskilaskrá þó takmörkuð áhrif.
heimild: lánstraust hf.
FBl-grEining: hVAð ER VANSKiLASKRá?
Fellur sjálfvirkt af skrá eftir fjögur ár> Meðalaldur íslenskra togara
Misnotkun á lyfseðilsskyld-
um lyfjum er að verða
meiri í heiminum en notkun
ólöglegra fíkniefna. Þetta
kemur fram í ársskýrslu
Alþjóðlega fíkniefnaeftir-
litsins (INBC) fyrir árið
2006. Þórarinn Tyrfingsson
segir að þróunin hér á landi
sé eins. Landlæknir segir
niðurstöðuna áhyggjuefni
en að átak gegn misnotkun
lyfseðilsskyldra lyfja hafi
staðið yfir hér á Íslandi
síðustu ár.
Í ársskýrslu Alþjóðlega fíkniefna-
eftirlitsins (INBC) kemur fram að í
mörgum löndum Evrópu, Afríku
og Suður-Asíu er misnotkun á lyf-
seðilsskyldum lyfjum orðin meiri
en notkun ólöglegra fíkniefna eins
og kókaíns, heróíns og e-taflna. Í
Bandaríkjunum eru næstum því
tvöfalt fleiri sem misnota lyfseð-
ilsskyld lyf en fyrir rúmum áratug.
Árið 1993 voru þeir tæpar átta
milljónir en eru rúmlega fimmtán
milljónir árið 2003.
Mikil aukning á Íslandi
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi, segir að sama þróun hafi
verið hér á landi síðastliðin ár.
Tæp fjörutíu prósent af sjúkling-
unum á Vogi árið 2005 greindust
með fíkn í lyfseðilsskyld lyf. Þór-
arinn segir að fyrir þrjátíu árum
hafi Íslendingar nær einungis mis-
notað róandi ávanalyf af lyfseðils-
skyldu lyfjunum. „Misnotkun á
örvandi lyfjum eins og rítalíni og
amfetamíni hefur aukist mikið á
liðnum árum. Þessi lyf eru notuð
miklu meira utan sjúkrahúsa en
áður því eftirlit hins opinbera með
ávísun þessara lyfja hefur minnk-
að,“ segir Þórarinn.
átak gegn misnotkun á lyfseðils-
skyldum lyfjum
Matthías Halldórsson landlæknir
segir að aukin misnotkun á lyfseð-
ilsskyldum lyfjum sé áhyggjuefni
alls staðar í heiminum. Hann segir
að heilbrigðisyfirvöld á Íslandi
hafi farið í átak gegn misnotkun
slíkra lyfja fyrir tveimur árum.
Tilkoma lyfjagagnagrunnsins hafi
auðveldað yfirvöldum að fylgjast
með þessari misnotkun.
Landlæknir segir að nokkrir
neytendur fíkniefna sem hann hafi
rætt við að undanförnu hafi sagt
honum að nú sé erfiðara að verða
sér úti um ávanabindandi lyfseð-
ilsskyld lyf en áður. „Þetta fólk
segir mér að það sé erfitt að fá
ávanabindandi lyfseðilsskyld lyf
hjá læknum á Íslandi að ástæðu-
lausu,“ segir Matthías. Hann segir
að eftirlit með ávísun lyfseðla
fyrir ákveðin lyf hafi aukist, meðal
annars svefnlyfsins róhýpnóls.
Matthías telur að heilbrigðisyfir-
völd séu á réttri leið með að reyna
að koma í veg fyrir misnotkun
slíkra lyfja.
ólögleg framleiðsla lyfseðils-
skyldra lyfja
Alþjóðlega fíkniefnaeftirlitið telur
að samfara aukinni eftirspurn
eftir lyfseðilsskyldum lyfjum hafi
ólögleg framleiðsla slíkra lyfja
aukist. Framleiðendur efnagreina
lyfseðilsskyld lyf og búa til eftir-
líkingar sem þeir selja á svörtum
markaði eða í gegnum internetið.
Matthías Halldórsson segist
ekki þekkja mörg dæmi þess að
lyfseðilsskyld hafi verið fram-
leidd hér á landi en að ekki þurfi
að búa yfir mikilli þekkingu til að
framleiða mörg lyf, meðal annars
amfetamín.
Aukin neysla róhýpnóls
Höfundar ársskýrslunnar leggja
áherslu á að ólögleg framleiðsla
og sala á lyfinu fentaníli, sem svip-
ar til heróíns, hafi leitt af sér
aukningu á dauðsföllum vegna
lyfjamisnotkunar í Bandaríkjun-
um. Í Skandinavíu hefur aukin eft-
irspurn eftir róhýpnóli leitt til
aukinnar ólöglegrar framleiðslu
og sölu á lyfinu.
Hér á landi hefur verið greint
frá því í fjölmiðlum að nauðgarar
hafi notað róhýpnól til að slæva
fórnarlömb sín. Þórarinn Tyrf-
ingsson segir að Íslendingar hafi
misnotað róhýpnól um árabil.
Hann segir að ekki hafi orðið
merkjanleg aukning á misnotkun
á róhýpnóli hjá sjúklingum á
Vogi.
grefur undan baráttu við fíknefni
Philip O. Emafo, forseti Alþjóðlega
fíkniefnaeftirlitsins, segir að aukið
framboð og misnotkun lyfsseðils-
skyldra lyfja geti grafið undan
þeirri baráttu sem háð hafi verið
gegn fíkniefnum á alþjóðavett-
vangi síðastliðna fjóra áratugi.
Emafo segir að mörg lyfseðils-
skyld lyf séu það sterk að hættan á
að neytendur þeirra taki of stóran
skammt af þeim geti verið meiri en
hættan á því að neytendur ólög-
legra fíkniefna geri slíkt hið sama.
Ásgeir Karlsson, fyrrverandi
yfirmaður fíkniefnadeildar Lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
segir að misnotkun á lyfseðils-
skyldum lyfjum komi sjaldnast til
kasta lögreglunnar því hún flokk-
ist sem brot á lyfjalögum en ekki
fíkniefnalögum. Hann segir að
þess vegna geti verið mjög erfitt
að taka á slíkum málum.
Matthías Halldórsson segir að
ef heilbrigðisyfirvöld gruni fólk
um misnotkun á lyfseðilsskyldum
lyfjum, meðal annars ef fólk falsi
lyfsseðla eða reyni að kaupa lyf í
annarra nafni, bendi þau lögregl-
unni á að rannsaka málið.
grípa þarf til aðgerða
Í skýrslu Alþjóðlega fíkniefnaeft-
irlitsins er komist að þeirri niður-
stöðu að lönd heimsins eigi að
standa saman í því að fylgjast með
og deila upplýsingum um útbreiðslu
lyfseðilsskyldra lyfja sem fram-
leidd eru á ólöglegan hátt. Ástæðan
er meðal annars sú að ekki eru til
neinar upplýsingar um umfang
þessarar ólöglegu framleiðslu og
dreifingar á lyfseðilsskyldum lyfj-
um.
Það er álit höfunda skýrslunnar
að framboð og eftirspurn hafi auk-
ist gríðarlega og því þurfi lönd
heimsins að sameinast í því að
stemma stigu við þeirri þróun því
meðal annars sé auðvelt að kaupa
slík lyf á internetinu.
Misnotkun á lyfseðilsskyldum
lyfjum hefur aukist gríðarlega
fRéttASKÝRiNg
IngI Freyr VIlhjálmsson
ingifreyr@frettabladid.is
Í APótEki Misnotkun á lyfseðilsskyldum lyfjum hefur aukist en landlæknir segir að
heilsbrigðisyfirvöld hafi farið í átak til að bregðast við því.
MAtthÍAS
hAlldórSSOn
Landlæknir
segir niðurstöðu
skýrslunnar
áhyggjuefni en
íslensk heilbrigð-
isyfirvöld hafi
verið í átaki gegn
misnotkun á
lyfseðilsskyldum
lyfjum síðustu ár.
þórArinn tyrF-
ingSSOn Yfir-
læknirinn á Vogi
segir misnotkun
lyfseðilsskyldra
lyfja hafi aukist
hér á landi,
meðal annars
vegna þess að
neysla rítalíns sé
meiri en áður.
Sótt Í rÍtAlÍn Og
AMFEtAMÍn
tæp fjörutíu prósent af sjúklingum
Vogs árið 2005 greindust með fíkn
í lyfseðilsskyld lyf. Þórarinn tyrfing-
insson, yfirlæknir á Vogi, segir mis-
notkun á örvandi lyfjum eins og
rítalíni og amfetamíni aukist mikið
á liðnum árum. Þórarinn segir
þróunina á Íslandi vera hina sömu
og erlendis, en í mörgum löndum
Evrópu, Afríku og Suður-Asíu er
misnotkun á lyfseðilsskyldum
lyfjum orðin algengari en notkun
ólöglegra fíkniefna.
Ólögleg framleiðsla lyfseðils-
skyldra lyfja hefur aukist mikið
í heiminum og segir forseti
Alþjóðlega fíkniefnaeftirlitsins að
slíkt geti grafið undan baráttunni
við fíkniefni.
V
in
ni
ng
ar
v
er
ða
a
fh
en
di
r
hj
á
BT
S
m
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t
er
tu
k
om
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
ti
ð.
Aukavinningar eru:
Sims 2 Seasons leikir · Aðrir Sims leikir
PS2 stýripinnar · PS2 minniskort · DVD myndir
Fullt af öðrum tölvuleikjum og margt fleira.
2000 2002 2004 2006 heimild: hagstofa Íslands
21 22
24 25