Fréttablaðið - 02.03.2007, Page 38
BLS. 2 | sirkus | 2. marS 2007
■ Heyrst hefur
Hagnaðist um milljarða og
keypti sér Porsche
Fjárfestingafélagið milestone, sem er í
eigu systkinanna Karls, Steingríms og
Ingunnar Wernersbarna og er til að
mynda annar stærsti hluthafi Glitnis,
hagnaðist um rúman 21 milljarð á
síðasta ári en félagið birti ársreikning
sinn fyrir árið 2006 fyrir skömmu. Þessu
þótti rétt að fagna og fór Ingunn í
síðustu viku og
festi kaup á
einum Porsche
Cayenne Turbo,
rétt rúmlega 500
hestafla kvikindi.
Sem er ekki
skrýtið þar sem
hún hefur viðurkennt í viðtali að ástin á
Porsche sé einn af hennar helstu
veikleikum.
Árshátíðarslagur í Hafnarfirði
Það verður nóg um að vera í Hafnarfirði
næstkomandi laugardag. Þá mun
lyfjarisinn actavis halda árshátíð sína í
íþróttahúsinu að Ásvöllum og Hafnar-
fjarðarbær heldur sína
árshátíð í Kaplakrika.
athyglisvert er að
skoða að Róbert
Wessman og
fyrirtæki hans actavis
heldur árshátíð sína á
heimavelli Hauka að
Ásvöllum jafnvel þótt
fyrirtækið sé helsti styrktaraðili
Íslandsmeistara FH í fótbolta en
Hafnarfjarðarbær heldur sína á heimavelli
FH-inga jafnvel þótt bæjarstjórinn Lúðvík
Geirsson sé fyrrverandi formaður
Hauka.
Elfar selur B5
athafnamaðurinn Elfar Aðalsteinsson
hefur selt hið vinsæla kaffihús sitt B5 í
Bankastræti. Staðurinn hefur notið
töluverðra vinsælda frá því að hann var
opnaður og var kaupverðið um 30
milljónir. Það var
enskur
viðskiptajöfur
sem keypti
kaffihúsið í
slagtogi við
Óskar
Einarsson sem
ku ekki vera
þekktur í íslenska
veitingabransan-
um.
N ei, nei, við erum ekki á leiðinni heim á næstunni,“ segir Ármann Þorvaldsson,
forstjóri Kaupþings í Bretlandi, en
hann og eiginkona hans, badminton-
stjarnan fyrrverandi Þórdís Edwald,
festu nýverið kaup á tæplega 350
fermetra einbýlishúsi á Dyngjuvegi í
Laugarásnum sem er með stórfeng-
legu útsýni yfir borgina. Ármann og
Þórdís borguðu 92 milljónir fyrir
húsið en seljendur eru Björg Kofoed-
Hansen, ekkja Agnars Kofoed-
Hansen, fyrrverandi lögreglustjóra í
Reykjavík og flugumferðarstjóra, og
dótturdóttir hennar, Irene Lyberop-
oulos. Ármann og Þórdís hafa
undanfarin ár búið í Bretlandi þar
sem Ármann hefur stýrt starfsemi
Kaupþings þar í landi og er nú
forstjóri bankans Singer & Friedland-
er, sem er í eigu Kaupþings.
Björg Kofoed-Hansen segir í
samtali við Sirkus að hún eigi eftir að
sakna hússins mikið en kannski
sérstaklega útsýnisins sem sé
stórbrotið. „Mér finnst það alla vega
æðislegt,“ segir Björg, sem er orðin 89
ára og ætlar að flytja í minni íbúð
áður en hún fer inn á elliheimili, eins
og hún orðar það sjálf.
Ármann vill ekkert tjá sig
um húsið eða fyrirætlanir
þeirra hjóna með það en
Björg Kofoed-Hansen segir
að húsið, sem var byggt árið
1950, sé að miklu leyti í
upprunalega ástandi. Það
má því búast við því að
húsið verði tekið í gegn í
heilu lagi þegar Ármann
og Þórdís fá það afhent
1. maí næstkomandi.
Fyrir eiga þau
Ármann og Þórdís
glæsilega íbúð í
Skuggahverfinu, nánar
tiltekið á Vatnsstíg 21. Sú
íbúð er tæplega 165
fermetrar á stærð og er á
11. hæð. Heimildir Sirkuss
herma að sú íbúð verði ekki
seld þrátt fyrir kaup hjónanna á
einbýlishúsinu á Dyngjuvegi.
Ármann hefur vakið mikla athygli
undanfarin ár fyrir stórglæsilegar
nýársveislur sínar í London. Í fyrra
fékk hann Tom Jones til að taka
nokkur lög fyrir gesti sína en í ár gerði
hann enn betur og bauð upp á sjálfa
Duran Duran.
oskar@frettabladid.is
FRAMTÍÐARHEIMILI Í LAUGARÁSNUM Það mun væntanlega ekki væsa um Ármann og Þórdísi á Dyngjuveg-
inum þegar þau ákveða að flytja heim frá Bretlandi. SIRKUSMYND/GVA
ATHVARF Í
SKUGGA-
HVERFINU
Ármann og
Þórdís eiga
glæsilega íbúð
á 10. hæð í
þessu fallega
húsi við
Vatnsstíg. Svo
skemmtilega vill
til að Kaupþing á
hina íbúðina á
hæðinni.
FLOTTUR Ármann Þorvaldsson keypti hús í Laugarásnum fyrir 92
milljónir og lét sig síðan ekki muna um að punga út nokkrum tugum
milljóna fyrir Duran Duran í árlegri nýársveislu sinni.
Þ etta er besti gítar sem ég hef átt. Það er bara þannig,“ segir Bubbi
Morthens um nýja sérsmíðaða
Martin-kassagítarinn sem hann
keypti fyrir skömmu. Martin-
gítararnir þykja þeir bestu í heimi en
gítarinn hans Bubba er einstakur.
„Þetta er Rollsinn í gítarnum – eins
og að fá handsmíðaðan bíl. Það var
engin maskína sem smíðaði gítarinn,“
segir Bubbi sem á fyrir þrjá aðra
Martin-kassagítara, einn Gibson og
einn Ovation.
En nýi gítarinn er einstakur. Bubba
hafði lengi langað í hann og lét svo
tilleiðast. Og þá var engu til sparað.
Gítarinn var byggður upp frá grunni.
Viðurinn sérvalinn og þurrkaður í
þrjátíu ár áður en hafist var handa
við að sníða í hljóðfærið og það
sérstaklega fyrir Bubba. Og það má
líka lesa á gítarnum: „Handcrafted
for Bubba Morthens by Martin“
stendur inni í hljóðfærinu og á
hálsinum með perlumóðu innleggi:
„Bubbi“.
„Nýi gítarinn er alveg ofboðslega
góður – hann er einstakur. Ég held
meira að segja að þetta sé eini
gítarinn í Skandinavíu og jafnvel sá
eini í þessum flokki í Evrópu,“ segir
tónlistarmaðurinn stoltur enda
kostaði gítarinn sitt. „Hann kostaði
marga hundrað þúsund kalla. Það
kostar sitt að eiga gott hljóðfæri,“
segir Bubbi en samkvæmt heimildum
Sirkuss kostaði gítarinn í kringum
eina milljón.
Andrés Helgason, eigandi
Tónastöðvarinnar, sem var milli-
göngumaður Bubba um gítarinn,
leynir ekki aðdáun sinni á hljóð-
færinu. „Þetta er æðislegur gítar.
Gjörsamlega geggjaður,“ segir Andrés
sem hefur haft milligöngu um kaup á
fleiri gítörum þótt þeir séu ekki í
sama flokki og gítarinn hans Bubba.
„Það hefur færst í vöxt að íslenskir
tónlistarmenn láti smíða fyrir sig
gítara og það er mjög ánægjulegt að
geta boðið upp á svona þjónustu,“
segir Andrés í Tónastöðinni.
Handcrafted for Bubbi Morthens
Gítarinn var
smíðaður hjá
Martin-
fyrirtækinu
sem er með
aðsetur í
Nasaret í
Pensylvaníu í
Bandaríkjun-
um.
Bubbi Morthens hefur
spilað stoltur á gítarinn
enda sérsmíðaður fyrir
hann af besta gítarfram-
leiðanda heims.
milljónir
BanKamaðurInn Ármann ÞorvaLdSSon
KauPIr FramTÍðarHÚSnÆðI Á ÍSLandI
Borgaði 92
fyrir villu í Laugarási