Fréttablaðið - 02.03.2007, Qupperneq 40
BLS. 4 | sirkus | 2. marS 2007
Þ að hefur verið mjög mikið að gera hjá okkur á Indlandi. Við erum með í kringum þrjátíu
indversk módel á samningi hjá okkur
og álíka mörg „freelance“ módel,”
segir Andrea Brabin, einn eigenda
módelskrifstofunnar Eskimo sem
hefur verið að gera góða hluti á
Indlandi undanfarið. Fyrirsætur á
vegum Eskimo hafa prýtt forsíður
hinna ýmsu tímarita þar í landi, setið
fyrir í auglýsingum og leikið í
Bollywood-myndum svo fátt eitt sé
nefnt. „Svo erum við með sex til tólf
íslenskar fyrirsætur úti. Þær dvelja
úti frá tveimur mánuðum og alveg
upp í eitt og hálft ár.“
Íslenskar stúlkur í Bollywood
Að sögn Andreu eru íslensku
stelpurnar eftirsóttar á Indlandi.
„Þær þykja mjög duglegar og það er
gott að vinna með þeim. Síðan eiga
Íslendingar og Indverjar eitthvað
sameiginlegt. Það er erfitt að segja
hvað það er en okkur hefur liðið mjög
vel þarna úti – bæði fyrirsætunum og
okkur sem rekum skrifstofuna.“
Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir,
Tinna Bergsdóttir og Heiða Rún
Sigurðardóttir hafa slegið í
gegn sem fyrirsætur á
Indlandi.
„Sigríður Hrönn hefur t.d. fengið tvö
veigamikil hlutverk í bíómyndum á
Indlandi á síðastliðnum tveimur
árum. Svo erum við að lesa tvö
önnur handrit fyrir hana og erum að
meta hvort þetta séu rétt hlutverk
fyrir hana,“ segir Andrea sem vill þó
ekki meina að aðstandendur Eskimo
séu að verða ríkir af öllu bröltinu á
Indlandi. „Þó að vel gangi þá verður
enginn ríkur af því að reka módel-
skrifstofu eina og sér. En það er hins
vegar þannig að þegar þú kemst inn í
þennan „celebrity“ heim á Indlandi
þá opnast margar dyr að stórum
samningum. Það er til dæmis
samasem-merki á milli þess að vera
fyrirsæta og leikkona í Bollywood því
ef þér vegnar vel sem fyrirsæta færðu
oft tilboð um að leika í bíómynd-
um. Svo er það hins vegar
spurning hvort fólk geti leikið,“
segir Andrea og tekur dæmi af
fyrirsætunni Heiðu Rún sem hóf
leiklistarferilinn þar ytra. „Hún
byrjaði ferilinn á að leika í
auglýsingum á Indlandi. Nú er
hún á leið í leiklistarskóla í
London og með samning við
ICM umboðsskrifstofuna sem
er ein sú stærsta í heimi.“
Miklar breytingar á Indlandi
„Við förum út á tveggja til
þriggja mánaða fresti og það
eru gríðarlega hraðar
breytingar að verða á
Indlandi. Þar spretta
verslunarmiðstövar og
bíóhús upp eins og
gorkúlur og annað sem
hefur ekki þekkst þar
áður. Ég er mjög ánægð
með að við höfum farið
þar inn, og á hárréttum
tíma,“ segir Andrea. „Það eru
endalaus tækifæri á Indlandi en það
er margt að varast og fólk má heldur
ekki láta glepjast og höfum við lært
ýmislegt af okkar starfsemi þar í
landi undanfarin tvö ár.“
Andrea segir að hún og meðeig-
andi hennar í Eskimo, Ásta Kristjáns-
dóttir, hafi frá byrjun horft á stóru
myndina. „Við höfum frá byrjun séð
Eskimo sem miklu meira en
umboðsskrifstofu og höfum unnið
markvisst að því að gera nafnið þekkt
öllu því sem tengist tísku og glamúr
með það í huga að byggja upp
vörumerkið Eskimo. Síðastliðið ár
höfum við unnið að því að þróa
hugmyndir að fatalínu og snyrtivör-
um.“ segir Andrea. Fyrstu prufur af
fatalínu Eskimo undir nafninu E-
wear munu koma til Íslands á næstu
dögum.
andrea BraBin og kemur íSLenSkum fyrirSætum að í BoLLywood
Andrea Brabin og Unnur Birna láta fara
vel um sig á Indlandi. Að sögn Andreu
hefur Íslendingunum liðið vel þar enda
eiga þeir margt sameiginlegt með
Indverjum. SIrkUS/Úr eInkASAfnI
eSkIMóArnIr gerA
ÞAð gott á IndlAndI
Heiða rún Sigurðardóttir
er ein af íslensku
fyrirsætunum sem hafa
slegið í gegn á Indlandi.
Með Súpermantattú
á upphandleggnum
M argir þekkja Jón Þór Ólason undir heitinu hinn íslenski Clark Kent enda
sláandi líkur hliðarsjálfi Súperman, eða
Stálmannsins eins og hann hefur verið
nefndur á íslensku. Færri vita hins vegar að
Jón Þór skartar merki Stálmannsins á
upphandleggnum og hefur gert um árabil.
Glöggir gestir World Class í Laugum tóku eftir
húðflúrinu á upphandleggnum en Jón Þór
lyfti lóðum þar um tíma. Jón Þór vildi sem
minnst tjá sig um húðflúrið
þegar blaðamaður Sirkuss
leitaði til hans. Neitaði í
raun alfarið að tjá sig um
það.
Þótt Jón Þór sé sláandi
líkur Clark Kent starfar
hann ekki sem blaða-
maður eins og sá
síðarnefndi heldur
sem lögfræðingur hjá ríkissaksóknara. Jón
Þór starfaði einnig um skeið sem lögfræðing-
ur hjá dómsmálaráðuneytinu og kom fram
fyrir hönd V-dagsins fyrir nokkru. Jón Þór á
ekki langt að sækja hæfileikana enda sonur
fréttahauksins Óla Tynes sem flutt hefur
fréttir á Stöð 2 um árabil og stjórnaði sínum
eigin þætti á hinni sálugu
sjónvarpsstöð NFS. Clark
Kent og Stálmaðurinn eru
hins vegar afkvæmi þeirra
Jerry Siegel og Joe Shuster
sem hafa skrifað og skreytt
nokkrar sögur um þá félaga.
Jón Þór ólason
lögfræðingur er
sláandi líkur Clark
kent, hliðarsjálfi
Stálmannsins.
ekki spillir fyrir að
hann ber merki
Stálmannsins á
upphandleggnum.
lúðrahátíð í kvöld
Það verður allsherjar veisla hjá starfs-
fólki í auglýsingageiranum í dag og í
kvöld þegar ímark-verðlaunin verða
afhent með pomp og prakt á Hótel
nordica. Íslenska auglýsingastofan
fékk flestar tilnefningar til lúðra en svo
eru verðlaunin sem veitt eru nefnd, í ár,
eða nítján talsins. Þar á eftir kemur
auglýsingastofan
Jónsson og
lemacks með
fjórtán tilnefningar.
mikil spenna er
annars í öllum
flokkum nema í
flokki útvarpsaug-
lýsinga en þar hefur
Jónsson & Lemacks þegar tryggt sér
einn lúður enda hreppti stofan allar
tilnefningarnar fimm í þeim flokki.
eigendur stofunnar, Viggó Jónsson,
Agnar tr. leMack og Hilmar Þ.
Hilmarsson, eru því eins og gefur að
skilja í skýjunum yfir tilnefningunni enda
aðeins tvö ár síðan stofan var opnuð.
Sýnt frá fæðingu
Sjónvarpsþátturinn fyrstu skrefin hefur
aftur hafið göngu sína á Skjá einum.
Þættirnir vöktu nokkra athygli fyrir ári
síðan, ekki síst hjá verðandi foreldrum,
og var meðal annars tilnefndur til eddu-
verðlaunanna. Hin margreynda
fjölmiðlakona guðrún gunnarsdóttir
stýrði þáttunum í fyrra en hún hefur
söðlað um og stýrir nú helgarútvarpinu
ásamt felix Bergssyni leikara.
Sigurlaug M. Jónasdóttir hefur tekið
við stjórninni af guðrúnu en hún er einnig
margreynd fjölmiðlakona. Sigurlaug á
ekki langt að sækja
hæfileikana enda dóttir
Jónasar Jónassonar
útvarpsmanns. fyrstu
skrefin hófu göngu
sína í fyrradag en
seinna í
þáttaröðinni
verður sýnt frá
fæðingu.
Hrafninn með bönkunum
Ingvi Hrafn Jónsson er kominn á fullt
með sjónvarpsstöðina sína Ísland
nýjasta nýtt sem send er út á netinu,
Breiðbandinu, adSL Símans og gegnum
stafræna lykla 365. ingvi Hrafn á í
samstarfi við fyrirtækið mentis um að
senda út efni í sjónvarpstæki landans en
fyrirtækið er í eigu glitnis og tölvumið-
stöðva sparisjóðanna. mentis sendir út
efni undir heitinu fjármálasjónvarpið en
eins og nafnið gefur til kynna beinir
sjónvarpsstöðin sjónum sínum að
fjármálamarkaðinum. Hugmyndin með
samstarfi ingva Hrafns og mentis er
að á milli upplýsinga um fjármál verði
innslög frá íslands nýjasta
nýtt og má bóka að þar
verði allt látið flakka
enda ingvi Hrafn
þekktur fyrir allt annað
en að liggja á
skoðunum sínum.
tinna Bergs og Sigríður Hrönn hafa
slegið í gegn á Indlandi.
■ Heyrst hefur