Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 44
BLS. 8 | sirkus | 2. marS 2007
Sparileg en þægileg
„Föt Birtu eru í miklu
uppáhaldi hjá mér og mér
finnst gaman að fötum sem
enginn annar á eins. Fötin
eru glæsileg og svala minni
glysgirni með glitrandi
pallíettum og steinum. Þau
eru líka þægileg og ég gat
notað mikið af þeim yfir
alla meðgönguna þótt þau
séu sparileg. Ég hef oft
komið fram í fötum frá
henni auk þess sem ég gifti
mig í kjól frá Birtu.“
Selma Björnsdóttir
söngkona
Fékk mikla athygli
vegna kjólsins
„Ég klæddist kjól frá Birtu
þegar ég fór á kvikmynda-
hátíðina Shooting Star árið
2003. Ég fékk mjög mikla
athygli frá stelpunum frá
hinum löndunum sem urðu
alveg sjúkar þegar þær sáu
kjólinn sem var svona
prinsessu-pæjukjóll. Eftir
það hef ég verið dugleg að
kaupa kjóla og allskyns
önnur föt frá henni og er
mjög ánægð með þau.“
Nína Dögg Filippusdóttir
leikkona
Birta er í uppáhaldi
„Birta er mitt uppáhald og ég
hef gengið í fötum frá henni í
mörg ár. Hún hannaði til
dæmis brúðkaupskjólinn
minn og gerði það alveg ótrú-
lega vel svo ég treysti henni
fyrir öllu. Hún er svo
vandvirk í öllum smáatriðum
og hugmyndarík og kemur
með sniðugar lausnir. Þú
færð ekki svona kjóla hvar
sem er og því er gaman að
geta farið ti hennar og fengið
flotta kjóla.“
Elma Lísa Gunnarsdóttir
leikkona
É g hef haft áhuga á tísku frá því ég var lítil og var farin að sauma á mömmu úr gömlum
gardínum þegar ég var tíu ára,“ segir
Birta Björnsdóttir í júniform en
hönnun Birtu hefur heldur betur
slegið í gegn eftir að sjónvarpskonan
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
birtist í kjólum hennar í Söngva-
keppni Sjónvarpsins. Kjólarnir, sem
voru vinsælir fyrir, voru á allra vörum
eftir keppnina svo lögin sjálf urðu
hreinlega að lúta í lægra haldi. Svo
mikið er að gera hjá Birtu þessa daga
að hún hefur engan veginn undan að
hanna föt á íslenskar konur sem
æstar eru í þessa flottu kjóla.
Kostir og gallar að vinna ein
Birta og vinkona hennar, Andrea
Magnúsdóttir, stofnuðu fatahönnun-
armerkið júniform fyrir um fimm
árum. Andrea hefur nú snúið sér að
öðru og hefur Birta því séð um
júniform einsömul í eitt og hálft ár.
„Við Andrea byrjuðum í þessu með
engin plön og meira til að leika okkur
og hafa gaman af. Við vorum tvær
ólærðar stelpur að leika okkur að
sauma bómullarboli og lita efni.
Síðan hefur þetta mikið þróast,“ segir
Birta en þær stöllur seldu í nokkrar
verslanir í Reykjavík til að byrja með.
„Fljótlega urðum við leiðar á því að
sauma heima enda voru efnin út um
allt, saumavélarnar alltaf uppi á
borðum og títuprjónar að festast í
skóm kærastanna okkar. Þess vegna
leituðum við okkur að húsnæði og
fundum það hér á Hverfisgötunni. Í
fyrstu ætluðum við aðeins að hafa
hér vinnustofu en þar sem áhuginn
var mikill breyttist húsnæðið
fljótlega í verslun.“ Birta segist hafa
verið hálf einmana eftir að Andrea
yfirgaf hana enda vön að vinna með
öðrum. „Í fyrstu fannst mér þetta
alveg ómögulegt en það að vinna ein
hefur líka sína kosti. Mér fannst
óþægilegt að geta ekki rætt hönnun-
ina og fengið „feedback“ frá henni en
í dag er ég vön að vera ein og finnst
það fínt þótt það hafi kannski verið
skemmtilegra að hafa einhvern með
sér í þessu. Ég er núna með góða
stelpu í vinnu hjá mér og við vinnum
mikið saman og gengur sú samvinna
mjög vel.“
Gerði sér ekki grein fyrir
sprengingunni
Birta segist aldrei hafa getað trúað
sprengingunni sem átti sér stað eftir
að Ragnhildur Steinunn birtist í
kjólum hennar. „Þetta er búið að vera
ótrúlegt og tvisvar hef ég þurft að
loka versluninni þar sem hún hefur
einfaldlega verið tóm. Ragnhildur
Steinunn er glæsileg kona en ég gerði
mér ekki grein fyrir hversu mikil áhrif
hún hefði. Ef ég hefði getað ímyndað
mér viðbrögðin hefði ég undirbúið
mig betur,“ segir Birta sem er farin
alvarlega að leita sér að framleiðslu-
aðilum á erlendri grundu. „Ég er að
fá saumakonur og saumastofur til að
sauma fyrir mig auk þess sem ég er
alltaf að, en það er bara dropi í hafið
miðað við eftirspurnina. Ólíkt öðrum
merkjum er nánast hver flík einstök
og mikill tími á bak við hana og því
hentar það illa til fjöldaframleiðslu,
þess vegna þarf ekki mikið til að
tæma mína litlu búð.“
Kvenlegir og klæðilegir
Það er engin furða að kjólar Birtu
hafi vakið svo mikla athygli eins og
raun ber vitni því um glæsilega og
öðruvísi kjóla er að ræða. Birta segir
nokkrar konur hafa beðið um eins
kjóla og sáust í söngvakeppninni en
slíkir kjólar eru aðeins gerðir í einu
eintaki. „Ég hanna undir tveimur
merkjum, júniform sem eru nokkur
eintök af hverri flík og júnik þar sem
engin flík er eins. Mér finnst
skemmtilegast að leika mér með
óvenjuleg snið, hanna út fyrir
rammann og stöðugt vera að finna
eitthvað nýtt. Ég reyni að halda
fötunum kvenlegum og klæðilegum
og hef voðalega gaman af því að
vinna með óhefðbundin efni.
Óneitanlega fer gífurlegur tími í það
að finna þessi efni. Ég hef verið að
versla þessi efni alls staðar að úr
heiminum, stundum alla leið frá
Japan, á mörkuðum, gömlum
efnalagerum, mikið í gegnum netið
og þegar fjölskyldan fer í frí erlendis
hef ég augun alltaf opin.“
Hannar á fallegustu konur
landsins
Birta er lærður förðunarfræðingur
en færði sig smám saman yfir í
fatahönnunina eftir að hafa kennt og
starfað sem skólastjóri í förðunar-
skóla No name um árabil. Reglulega
skoðar hún tískublöð en innblástur
fær hún einnig úr umhverfinu, frá
efnunum og hjá vinkonum sínum.
Aðspurð um uppáhalds fatahönnuði
fer það algjörlega eftir tímabilum.
„Gríski hönnuðurinn Sophia
Kokosalaki hefur lengi verið í
uppáhaldi hjá mér.Á síðasta ári
fannst mér Balenciaga standa upp úr
og Ann Demeulemeester er að gera
það gott í ár.“ Birta hefur hannað
kjóla á margar fallegustu konur
landsins auk þess sem Hollywood-
stjarnan Julia Stiles féll fyrir hönnun
hennar er hún kíkti í verslunina um
árið. Stiles keypti kjól og peysu í
júniform þegar hún var stödd hér á
landi við tökur á kvikmyndinni Little
Trip to Heaven. Birta hefur þó aldrei
séð leikkonuna í fötunum í tímarit-
um eða sjónvarpi en viðurkennir að
það hefði verið skemmtilegt.
Erfitt að sameina bisnessinn og
móðurhlutverkið
Birta og maðurinn hennar
eignuðust sitt fyrsta barn fyrir
tveimur árum en sonurinn heitir því
fallega nafni Stormur Björn. Birta
viðurkennir að það hafi verið
talsverður höfuðverkur að sameina
fyrirtækjareksturinn móðurhlutverk-
inu og sér í lagi núna þegar svo mikið
sé að gera. „Ég er alltaf með hugann
við vinnuna og get oft ekki sofnað þar
sem það er svo mikið að gerast í
hausnum á mér. Það er skemmtilegt
að hafa áhuga á vinnunni sinni en ég
viðurkenni alveg að ég væri stundum
til í að vinna við eitthvað sem ég
þyrfti ekki að taka með mér heim á
kvöldin. Sonurinn er svo ungur og
auðvitað vil ég eyða sem mestum
tíma með honum. Áreitið getur verið
mikið og ég er oft heldur orkulaus
þegar ég kem heim á kvöldin. Ég er
þakklát velgengninni en álagið má
ekki vera of mikið.“
Með ýmislegt á prjónunum
Þrátt fyrir að Birta hafi gaman af
því að reka sitt eigið fyrirtæki segist
hún léleg við að taka sénsa. „Ég held
að ég sé frekar léleg bisnesskona,“
segir hún hlæjandi en bætir við að
henni þyki gaman að vera með
puttana í þessu. „Í rauninni trúði ég
aldrei að ég gæti lifað á hönnuninni
og því er þetta algjör draumur,“ segir
hún og bætir við að möguleikarnir og
leiðirnar séu margar og fjölbreyttar.
„Það væri gaman að koma vörunni á
markað erlendis og það er ýmislegt á
döfinni,“ segir hún leyndardómsfull á
svipinn.
Hannar minnst handa sjálfri sér
Birta segir Íslendinga framarlega
í tísku og að íslensk hönnun sé á
uppleið. „Við erum mjög framarlega
í tísku en landið er lítið og þótt
margir reyni að vera öðruvísi
endum við því miður oft á því að
vera öll voðalega svipuð. Það er
hins vegar mikil gróska í gangi og
mikið af ungum hönnuðum að
spretta upp,“ segir hún. Aðspurð
hvort hún verði ekki að eiga suma
kjólana sem hún saumi segist hún
hálf dofin fyrir framleiðslunni. „Ég
er stundum búin að vinna svo
mikið með efnin og sniðin að mér
finnst ég hafa verið hundrað
sinnum í flíkinni þó ég hafi aldrei
farið í hana. Samt verð ég þó að
segja að það er gaman að geta
hannað sínar flíkur sjálf og geng ég
mest megnis í minni eigin hönnun,“
segir Birta glöð í bragði að lokum.
indiana@frettabladid.is
Grunnurinn laGður
MEð GöMluM GardínuM
Birta Björnsdóttir
hefur haft áhuga á tísku frá
unga aldri. Hönnun Birtu hefur
lengi verið vinsæl á meðal
íslenskra kvenna en eftir að
sjónvarpstjarnan ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir klæddist
kjólum Birtu í söngvakeppni
sjónvarpsins hefur orðið
sprenging.
Birta segir að erfitt sé að sameina fyrirtækjarekstur og móðurhlutverkið en hún eignaðist sitt fyrsta barn, Storm Björn, fyrir tveimur árum. Birta telur íslendinga vera
framarlega í fatahönnun en hún hefur hannað föt á fallegustu konur landsins sem og leikkonuna Juliu Stiles. SirKuSMynd/Valli.