Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 48
Minnir hann á einhvern?
Hinn bráðskemmtilegi þáttur Ugly Betty
hefur loksins hafið sýningar á Íslandi.
Þátturinn fjallar um nördalega stelpu sem
fær starf sem aðstoðarkona ritstjóra
tískublaðs í New York. Þættirnir hafa farið
sigurför vestanhafs og America Ferrera,
aðalleikkona þáttarins, hefur unnið hver
verðlaunin á fætur öðrum. En það
fyndasta við þáttinn er það að einn
aðalleikarinn í þættinum, ritstjórinn sjálfur
minnir óneitanlega mikið á Frey
Eyjólfsson, útvarpsmann á Rás 2, og ekki
er það leiðum að líkjast því báðir eru þeir
stórmyndarlegir. Það er Eric Mabius sem
fer með hlutverk ritstjórans. Endilega
tékkið á þættinum og gerið síðan upp
hug ykkar.
Segðu að þetta
sé ekki satt!
Natalie Portman og
Gael García Bernal
sáust koma saman út
af hóteli í Berlín á
dögunum. Það eina
sem hægt er að
segja við þessu er
nei! Af hverju eru þau
byrjuð að hittast
aftur? Hann er orðinn
Íslandsvinur og
margar íslenskar
stelpur eflaust búnar
að láta sig dreyma
um að kynnast
kappanum næst
þegar hann kemur til
landsins. Lífið getur
verið svo óréttlátt.
Eddie Murphy er
hálfviti
Djöfull hlýtur Melanie
Brown, betur þekkt sem
Scary Spice, að líða illa.
Eddie Murphy dömpaði
henni um leið og hún varð
ófrísk eftir hann og svo
neitar hann að hafa verið
með henni. Kappinn var
varla hættur með Mel
er hann byrjaði að
hitta aðra konu. Nú
situr Mel litla uppi ein
og ófrísk. VIð vitum öll
að Eddie var að ljúga
og er algjör hálfviti.
Framinn gengur voða
vel hjá honum núna
um þessar mundir.
Vonandi heldur
honum áfram að
ganga vel svo að
BLS. 12 | sirkus | 2. MARS 2007
Freyr Eyjólfsson, útvarpsmaðurinn knái,
þykir sláandi líkur Eric Mabius.
Eric Mabius Leikur
ritstjóra tímaritsins
Mode í þættinum
Natalie Portman og Gael García Bernal
koma út af hóteli í Berlín á dögunum.
Mörg íslensk hjörtu verða kramin með
þessari mynd.
Melanie Brown er komin sex
mánuði á leið.
TjiLLað Leikkonan Kristen Dunst og
bróðir hennar létu fara vel um sig í
Vanity Fair-veislunni.
SúPErKoNur Nicole Kidman, Meryl Streep, Mary j. Blige og oprah tóku
sig vel út saman.
BráðMyNDarLEGir William Dafoe og
adrien Brody slógu á létta strengi á
Óskarskvöldinu.
Þú ErT SNiLLiNGur Madonna hrósar
leikaranum Forest Whitaker fyrir
frammistöðu sína í kvikmyndinni The
Last King of Scotland. En hann hefur
sópað að sér hverjum verðlaununum á
fætur öðrum fyrir frammistöðu sína.
KoSS á KæraSTaNN Petra Nemcova
kyssir kærasta sinn, james Blunt.
uMVaFðir DroTTNiNGuNNi Helen
Mirren var svo sannarlega í stuði, enda
aðaldama kvöldsins. jamie Foxx og
Vince Vaughn virtust þó eitthvað súrir.
aðaLDjaMMið
í HoLLyWooD
K vikmyndaáhugamenn bíða eftir Óskarnum allan ársins hring á
meðan Hollywoodáhuga-
menn bíða eftir myndum úr
skemmtilegustu partíum
ársins í Hollywood sem eru
einmitt haldin strax á eftir
Óskarsverðlaunahátíðinni.
Sirkus tók saman nokkur
skemmtileg móment.
ryan Phillippe Skellti sér í nokkur eftirpartí
ásamt vini sínum Breckin Meyer. Það er ekki
hægt að segja það sama um ryan og reese.
Mikil fagnaðarlæti brutust út í
Austur-Evrópu þegar tilkynnt var að
samningar hefði náðst um úrslit í
Eurovision næstu árin. Samningavið-
ræður milli austantjaldsþjóðanna hafa
staðið í nokkur ár og var
aðalþrætuefnið hvaða land ætti að
vinna fyrst. Loksins var ákveðið að
draga og kom nafn Slóveníu fyrst upp
úr hattinum. Því næst var varpað
hlutkesti til að skera úr um hvort ætti
að fara rang- eða réttsælis hringinn um
Austur-Evrópu og varð réttsælis ofan á.
Þau tíðindi glöddu Króata sem munu
fagna sigri í Eurovision 2008 en
Ungverjar sitja eftir með sárt ennið.
Þeir munu ekki vinna fyrr en árið 2298,
síðastir Austur-Evrópuþjóða.
Slóvenar krýndir
sigurvegarar
Eurovision 2007
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
7
5
9
6
SKO býður jafngóða GSM-þjónustu og hin símafyrirtækin, innanlands
og erlendis. Eini munurinn er lægra verð! Það kostar EKKERT að færa
GSM-símanúmerið til SKO. Þú skráir þig í þjónustuna á www.sko.is.
Hringt í SKO GSM-síma Hringt í aðra GSM- og heimasíma í alla GSM-síma á Íslandi
„Ég var að borga alltof mikið fyrir símnotkun og var eiginlega
kominn í hálfgerðan vítahring. Eftir að ég skráði mig í SKO
hefur allt breyst. Núna á ég alltaf smá pening afgangs um
mánaðarmótin og ef ég tel allt árið þá er ég að spara heilan
helling. Svo losnar maður líka við að fá þessa reikninga heim.
Stór plús.“
„Fáránlega
ódýrt!“
Ungur háskólanemi segist
hálf undrandi á sím-
reikningum sínum eftir
að hann skipti yfir í SKO.
Háskólanemar í SKO eru ánægðir með lífið.