Fréttablaðið - 02.03.2007, Qupperneq 50
„Á föstudagskvöldið ætla ég að bregða á
leik með Vinum vors og blóma fyrir FSU.
Ætli við strákarnir fáum okkur ekki
humar á veitingastaðnum Við fjöruborðið
áður. Á laugardaginn ætla ég út að hjóla
með gríslingunum mínum, ferðin endar
sennilega á
heitu kakói og
Pétri Pan.
Sunnudags-
morgunn fer í
andleg málefni
fyrir hádegi,
bakstur og að
lokum í að
undirbúa annasama viku.“
Bergsveinn Árilíusson söngvari
„Ég ætla að halda upp á afmæli ellefu
ára sonar míns í Keiluhöllinni. Reynslan
hefur sýnt mér að Keiluhöllin
í Öskjuhlíð er staðurinn
fyrir krakka til að
skemmta sér. Þar spila
þeir keilu, fá pitsu og
upplifa eintóma gleði.
Hef haldið afmælisveislu
þar áður og aldrei
upplifað aðra eins
hamingju bæði hjá
gestunum og
afmælisbarninu.
Klikkar ekki.“
Ellý Ármanns
þula
„Ég er eiginlega ekki búin að
ákveða hvað ég geri um helgina en
ég reikna með að borða góðan
mat og hitta fjölskyldu og vini. En
annars væri gaman ef eitthvað
óvænt kæmi upp.“
Ásthildur Helgadóttir
knattspyrnukona
„Um helgina ætla ég að byrja á að mæta
í vinnuna á laugardaginn, en þá er ég að
vinna í enska boltanum á SkjáSport.
Eftir vinnu ætla ég að skella mér upp í
sumarbústað og slaka á uppi í sveit. Fer
örugglega í göngutúr, ef það er gott
veður, elda góðan mat, spila og eitthvað
kósí. Það er svo gott að vera í sveitinni.“
Gunnhildur Helga Gunnarsdóttir
BLS. 14 | sirkus | 2. maRS 2007
n Hvað á að gera um helgina?
„Ég mæli með La Primavera veitingahúsi
sem býður ítalskan mat á heimsmæli-
kvarða. Nú þegar Food and Fun stendur
sem hæst er tilvalið að bregða sér af bæ
og prófa ítalskt eldhús hjá Leifi og
gestakokkinum sem þar verður. Nammi
namm.“
Steinunn Valdís Óskarsdóttir fyrrv.
borgarstjóri
„Ég mæli með Pétri Gaut, sýningu
Þjóðleikhússins, væri gaman að sjá hana
líka á ensku! Einnig mæli ég með
Berlínarborg, kvikmyndinni Babel,
alkemistanum eftir Paulo Coelho og
íslenskum hestaferðum. Enn fremur mæli
ég sterklega með því að gleðjast yfir því
smáa, hugsa fallega til náungans og að
finna hamingjuna innra með sér.“
Ólöf Rún Skúladóttir fréttamaður
„Ég mæli með að allir drífi sig í
Hafnarfjarðarleikhúsið að sjá abbababb.
Þetta er stórskemmtileg sýning, fjörug
og fyndin, og höfðar ekki síður til
fullorðinna. Frábær skemmtun.“
Tinna Hrafnsdóttir leikkona
„Ég mæli með tígrisrækjunum á
Thorvaldsen, ótrúlega ljúffengar og
góðar í munn og maga – mæli með því
að allir verði hættir að reykja fyrir
reykbann í sumar og að lokum mæli ég
með því að allir skelli sér á leikritið Bar
par sem sýnt er á Nasa.“
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir
leikkona
Þ að má kannski segja að Regína sé komin á gelgjuskeiðið og sé
frekar illa haldin,“ segir Sigurbjörg
Alma Ingólfsdóttir sem fer með eitt
af aðalhlutverkunum í söngleiknum
Sextán sem nemendamótsnefnd
Verslunarskóla Íslands stendur
fyrir. Sigurbjörg
Alma er
Íslendingum að
góðu kunn en
hún lék Regínu í
samnefndri
söngva- og
dansamynd.
„Regína var
frumsýnd fyrir
sex árum,“ segi
Sigurbjörg Alma
sem var tíu að
verða ellefu þegar
hún lék Regínu. Nú er hún hins vegar
að verða sautján og komin í
framhaldsskóla.
„ Í Regínu lék ég lék eiginlega á
móti leikaralandsliðinu; Baltasar
Kormáki, Halldóru Geirharðs og
Rúrik Haraldssyni sem er dáinn
núna. Það var rosalega gaman að
leika í myndinni og mikil reynsla fyrir
mig, sem hefur hjálpað mér mikið í
sýningunni núna.“
Eftir Regínu
fór minna fyrir
Siddý en áður.
Hún tók þó þátt í
hæfileikakeppn-
inni Skrekk en
svo lá leiðin í
Versló.
„Mig hafði
alltaf langað til
að fara í Versló,
alveg frá því að
ég var lítil. Það
voru margar vinkonur systur
minnar sem höfðu verið í skólanum
og eftir að ég hafði farið í kynningu
í skólanum var ég staðráðin í að
fara í hann,“ segir Siddý sem hreppti
strax eitt af stóru hlutverkunum í
Sextán.
„Ég leik Alfí sem er leiðinlega
„bitchið“ í Versló sem er með sætasta
stráknum. Hún er moldrík og
hundleiðinleg við alla enda illa
haldin af unglingaveiki.
Siddý segir að henni sé töluvert
strítt á því að hafa leikið í Regínu,
jafnvel þótt langt sé um liðið frá því
myndin var sýnd. „Fólk þekkir mig
betur undir Regínu nafninu en
Siddýjar nafninu. Það er þó vonandi
að ég losni við Regínu nafnið í
framtíðinni - verð vonandi kölluð
mínu rétta nafni,“ segir Sigurbjörg
sem stefnir að því að starfa við söng
og leiklist í framtíðinni. „Ég hef verið
í námi í Söngskóla Reykjavíkur síðast
liðin fjögur ár og draumurinn nú er
að starfa við þetta í framtíðinni. Að
getað lifað af listinni.“
REGína komin Á
GElGjuSkEiðið
Siddý Það hefur verið í nógu að snúast hjá Siddý og félögum í Sextán enda nánast
uppselt á allar sýningar. krakkarnir hafa þó ekki fengið frí frá skólanum. „Það hefur
bara verið harkan sex við að læra heima á milli æfinga og sýninga,“ segir Siddý.
REGína
Sigurbjörg
alma lék
Regínu í
samnefndri
dans- og
söngvamynd
sem margrét
Örnólfsdóttir
gerði.
E f fólki finnst þetta
kynferðisleg áreitni
þá ættu þessar teprur
að fara að hugsa sinn
gang um það hvaða
skilning þær leggja í
það sem ég læt út úr
mér,“ segir Páll
Óskar Hjálmtýsson, dómari í sjónvarpsþættinum
X-factor.
Einar Bárðarson, kollegi Páls Óskars í X-Factor,
sakaði hann um kynferðislega áreitni í viðtali sem
birtist í Sirkus fyrir viku síðan. Í viðtalinu sagði
Einar: „Rétt eins og ef ég myndi tala um kvenkyns
keppendurna eins og Palli talar um strákana þá
væri ég náttúrlega í skýrslutöku hjá Stígamótum og
ég væri líklega á leið út úr Smáralind í handjárnum,“
sagði Einar í viðtalinu við Sirkus. „Palli er bara með
kynferðislega áreitni og öllum finnst það voðalega
sætt. Jógvan á í stórum vandræðum þarna uppi því
Palli lætur hann ekki í friði. Auðvitað á þetta að
vera voða fyndið en mér finnst þetta vera komið
gott.“
Páll Óskar þvertekur fyrir það að vera með
kynferðislega áreitni. Segist hafa sagt mun verri
hluti við Ellý, þriðja dómarann í X-Factor, enda hafi
þau eldað saman grátt silfur alla þættina.
„Ef ég man rétt sagði ég við Jógvan að hann væri
með svo þægilega söngrödd að ég gæti hugsað mér
að hlusta á hana heima hjá mér á sunnudögum og
svo getum við gert allt hitt á virkum dögum,“ rifjar
Páll Óskar upp og skilur ekki alveg hvert Einar
Bárðarson er að fara „Mér finnst það vera tvöföld
skilaboð hvernig Einar bregst við Jógvani miðað við
allt það sem ég hef látið flakka um Ellý. Ég er ekki
stoltur af því sem ég sagt um hana.“
Páll Óskar neitar því þó ekki að Jógvan sé
heillandi drengur. „Hann er fullorðinn karlmaður
og getur tekið þessu. Hann hefur húmor fyrir þessu
sjálfur,“ segir Palli. „Mér finnst Jógvan alveg rosalega
sætur og ef hann væri hommi væri ég búinn að
bjóða honum á deit. Það er bara staðreynd lífsins.
Jógvan hefur ákveðna gjöf sem hann er að gefa
áfram í þessum þáttum. Við höfum meira að segja
staðið í svipuðum sporum. Ég hef fengið athygli frá
kvenþjóðinni í mínu starfi og fæ hana enn þann dag
í dag. Og þær konur sem eru skotnar í mér mega
alveg vera það í friði. Staðreyndin er hins vegar sú
að Jógvan er „straight“ og það mun aldrei neitt fara
í gang á milli okkar að sama skapi og ég er „gay“ og
það mun aldrei fara neitt í gang á milli mín og kven-
kynsaðdáenda minna.“
Palli segir að Einar hafi brugðist illa við því að
missa Sigga kaftein út úr keppninni en það var
fyrsti keppandinn sem Einar missti. „Þessar ákúrur
hans um að ég og Ellý værum í samsæri gegn
honum eru svo fjarri lagi. Ég hef haft mikið álit á
honum en ég missti það næstum því eftir þetta. Ég
gæti ekki hugsað mér að vera með umboðsmann
sem bregst svona við minnsta mótlæti.“
PÁLL ÓSKaR SEGiR EiNaR BÁRðaRSoN VERa TEPRU
Ef jÓGVan VæRi Hommi
myndi éG BjÓða
Honum Á dEiT
jógvan væri búinn að fá tilboð um deit frá Palla ef hann
væri „gay“.
Páll Óskar Hjálmtýsson
segir Einar Bárðar vera
að bregðast illa við. Hann
hafi sjálfur misst tvo
keppendur og hafi þá tekið í
hönd kollega sinna.
n Við mælum með