Fréttablaðið - 02.03.2007, Page 62
2. mars 2007 FÖSTUDAGUR30
Sendið okkur línu
Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og leggja orð í belg um mál
efni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu
er tekið á móti efni sem sent er frá Skoðanasíðunni á visir.is. Þar eru nánari
leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi
eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðrétt
inga og til að stytta efni.
umræðan
Uppeldismál
Síbyljan segir: Börn eru meira og minna í skólastofnunum
allan sinn vökutíma. Síbyljan
segir: Börnin eru afgangsstærð í
lífsgæðakapphlaupi foreldranna.
Síbyljan segir: Leik- og grunn-
skólakennarar bera sífellt meiri
ábyrgð á uppeldi og menntun
barna. En síbyljan segir ekki
satt.
Málþroski tekur sér hvorki
helgarfrí, jólafrí né sumarfrí.
Það er forvitnilegt að reikna út
hve stóran hluta af árlegum vöku-
tíma sínum fimm ára gamalt barn
er í leikskólanum og tíu ára og
fjórtán ára gamalt barn í grunn-
skóla (miðað við tilteknar for-
sendur varðandi svefn og fjölda
skóladaga). Fimm ára barnið er
tæplega 35% af vökutímanum í
leikskólanum. Tíu ára barnið er
tæplega 20% af vökutímanum í
grunnskóla og fjórtán ára barnið
er rúmlega 20%. Þetta eru blá-
kaldar staðreyndir. Það er því
einfaldlega ekki rétt þegar sagt
er að leik- og grunnskólabörn
verji megninu af vökutíma sínum
í skóla.
Foreldrar gegna mjög mikil-
vægu hlutverki í uppeldi og
menntun barna. Það dýrmætasta
sem foreldrar geta gefið börnum
sínum er tími og því skiptir miklu
máli hvernig fjölskyldan ver frí-
tíma barnanna. Það er öllum hollt
að spyrja sig: Hvaða veganesti
gefur frístundaiðkun og sam-
skipti fjölskyldunnar börnunum?
Er tímanum varið til þess að
stuðla að auknum mál-, vitsmuna-
, siðferðis-, félags- og líkams-
þroska barnanna?
Að sjálfsögðu ber starfsfólk
skóla einnig ábyrgð á uppeldi og
menntun æskunnar. Íslenskar
fjölskyldur eru heppnar að hér
eru afburðagóðir skólar jafnt á
leik- og grunnskólastigi. Í
íslenska skólakerfinu starfa fag-
menn sem gera sitt besta til þess
að börnin njóti sín og þroskist í
námi, starfi og leik. En verum
þess minnug að börnin okkar
verja minni tíma í skólum en
virðist við fyrstu sýn. Það er inni-
haldslaus frasi að börnin okkar
verji lunganum af vökutímanum
í skólum. Stærstan hluta vöku-
tímans eru börnin á ábyrgð og í
umsjón foreldra sinna. Við vitum
að foreldrar sinna uppeldishlut-
verki sínu af alúð og gera sitt
besta til þess að hlúa að menntun
og þroska barna sinna. Þið vitið
að ábyrgðin er ykkar. Látið engan
telja ykkur trú um annað.
Helgi er skólastjóri Sjálands-
skóla í Garðabæ og Sigrún er
leikskólastjóri á Hofi í Reykja-
vík.
Hver ber ábyrgð á börnunum?
Árleg Skóladvöl barna
5 ára barn í leikskóla* Tímar Hlutfall
Tímar í sólarhring á ári 8.760
Svefn á sólarhring 10 klst. 3.650
Árlegur vökutími 5.110
Leikskóli 222 dagar í 8 klst. 1.776 34,76%
Á ábyrgð og í umsjón foreldra 3.334 65,24%
* Barnið er alla virka daga í leikskólanum, að frádregnum 4 vikum í sumarleyfi og
4 skipulagsdögum. Barnið tekur tvo auka frídaga um jól. 1. maí og 17. júní eru á
virkum degi.
10 ára barn í grunnskóla* Tímar Hlutfall
Tímar í sólarhring á ári 8.760
Svefn á sólarhring 9 klst. 3.285
Árlegur vökutími 5.475
Grunnskóli 180 dagar í 6 klst. 1.080 19,73%
Á ábyrgð og í umsjón foreldra 4.395 80,27%
* Barnið er 180 virka daga í grunnskóla. Engir skertir dagar (í flestum tilvikum eru
þeir í reynd 4-10)
14 ára barn í grunnskóla* Tímar Hlutfall
Tímar í sólarhring á ári 8.760
Svefn á sólarhring 8 klst. 2.920
Árlegur vökutími 5.840
Grunnskóli 180 dagar í 6,5 klst. 1.170 20,03%
Á ábyrgð og í umsjón foreldra 4.670 79,97%
* Barnið er 180 virka daga í grunnskóla. Engir skertir dagar (í flestum tilvikum eru
þeir í reynd 8-10)
Helgi
grímSSon
Sigrún
SigurðardóTTir
umræðan
Kjaramál
Í nóvember á liðnu ári var haft eftir þér sem nýjum formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga að þú
vildir bæta samskipti sveitarfélaga og grunnskóla-
kennara. Þú vildir aðskilja launaviðræður frá umræð-
um um gæði og innihald skólastarfs, taka upp nánara
samstarf við skólana og eyða um leið þeim sárindum
sem urðu við síðustu kjarasamninga kennara.
Núna nokkrum mánuðum síðar hafa viðræður um
leiðréttingu launa grunnskólakennara með hliðsjón
af ákvæði í kjarasamningi siglt í strand en í þessu
ákvæði segir: „Aðilar skulu taka upp viðræður fyrir
1. september 2006 og meta hvort breytingar á skóla-
kerfinu eða almenn efnahags- og kjaraþróun gefi til-
efni til viðbragða og ákveða ráðstafanir sem þeir
verða sammála um.“
Grunnskólakennarar reyndu í heilt ár að fá fram
viðræður en ekkert gekk. Aðkoma ríkissáttasemjara
hafði ekkert að segja. Launanefnd sveitarfélaga
hefur boðið 0,75% hækkun ofan á umsamda 2,25%
hækkun 1.1. 2007 en verðbólga hefur verið 6.5% yfir
verðbólgumarkmiðum Seðlabankans í nóvember
2004 , fyrir tímabilið frá nóvember 2004 til nóvember
2006.
Í desember 2006 voru meðaldagvinnulaun grunn-
skólakennara um 30.000 kr. lægri en hjá leikskóla-
kennurum og hátt í 50.000 kr. lægri en hjá framhalds-
skólakennurum. Þessar viðmiðunarstéttir höfðu
hækkað langt umfram grunnskólakennara þó þær
séu örugglega ekkert ofsælar af sínu. Þá má og benda
á að launavísitala opinberra starfsmanna hefur
hækkað um 11,3% fyrstu 11 mánuði ársins 2006. Á
sama tíma hækkuðu laun grunnskólakennara um
2,5%.
Þetta er kannski dálítil talnasúpa en ekki þarf
annað en að skoða byrjunarlaun grunnskólakennara
til að sjá alvöru málsins en þann 1. janúar sl. námu
þau 198.741. Þetta eru laun fyrir nýútskrifaðan kenn-
ara eftir 3 ára háskólanám.
Það er gríðarleg óánægja hjá grunnskólakennur-
um með þessa þróun. Þessi óánægja snýst ekki síst
um að því er virðist algert tómlæti sveitarstjórnar-
manna sem bera fyrir sig sína eigin launanefnd og
segjast ekkert geta gert. Þessi óánægja er mikið
áhyggjuefni. Hún veldur því að los kemur á kennara
sem þá hverfa til annarra starfa hver sem betur
getur.
Það vantar ekkert upp á fínu samþykktirnar og
ályktanirnar sérstaklega fyrir kosningar þegar talað
er um menntamál. Þannig segir t.a.m. í skólastefnu
Kópavogsbæjar sem er eitt af stærri sveitarfélögum
landsins: „Almenn samstaða ríkir um mikilvægi góðs
menntakerfis fyrir farsæld einstaklingsins og sam-
félagsins í heild. Sýnt hefur verið fram á með óyggj-
andi rökum að vaxandi velmegun og lífsánægja
almennings hefur haldist í hendur við bætt tækifæri
til menntunar. Skólayfirvöld í Kópavogi leggja ríka
áherslu á að grunnskólar bæjarins séu í farar-
broddi...“
Það virðist ljóst af þessum orðum að þeir sem eiga
að sjá um að stuðla að vaxandi velmegun og lífs-
ánægju almennings sem og farsæld einstaklingsins
séu ekki mikils virði þegar kemur til launa.
Næsta haust verður hægt að segja upp kjarasamn-
ingi grunnskólakennara sem yrðu þá að öllu óbreyttu
lausir um áramót. Sé tekið mið af undanfarandi við-
ræðum (eða viðræðuleysi) er ekkert á þessari stundu
sem bendir til annars en að sami leikurinn endurtaki
sig þ.e. verkfall, óánægja og flótti úr stéttinni sem
þegar er vaxandi.
Kennarar eru yfirleitt hugsjónafólk sem vill hag
nemenda sinna sem mestan. Það virðist því miður
ekki hægt að segja það sama um sveitarstjórnarmenn
sem með framgöngu sinni virðast vera að koma þeim
skilaboðum á framfæri að grunnskólakennar séu lít-
ils virði og þar með það starf sem þeir vinna því þar
verður varla skilið á milli.
Kæri Halldór, í framhaldi þessa langar okkur að
spyrja þig nokkurra spurninga sem við vonumst til
að þú svarir.
1. Hvernig hyggst þú og þín samtök eyða þeim sár-
indum sem urðu við síðustu kjarasamninga kenn-
ara?
2. Ert þú ánægður með að launanefnd sveitarfé-
laga skuli ekki ljá máls á leiðréttingu launa miðað við
verðbólgu og kjaraþróun þrátt fyrir ákvæði þar um
?
3. Hvers vegna er hægt að semja við aðra svipaða
eða sambærilega hópa um launabætur en ekki þegar
kemur að grunnskólakennurum? (Ekki bera fyrir þig
kostnaðarhækkanir sem ekkert hafa með laun grunn-
skólakennara að gera).
4. Hvernig áætla sveitarstjórnarmenn að laða að
ungt hæfileikafólk til kennslu þegar byrjunarlaunin
ná ekki 200 þús. kr. á mánuði?
5. Er menntun barnanna okkar lítils virði?
Almennur kennarafundur Digranesskóla.
Opið bréf til formanns
Sambands íslenskra sveitarfélaga
umræðan
Málefni innflytjenda
Frjálslyndi flokkurinn hefur setið undir
ótrúlegum ásökunum
síðustu vikurnar vegna
málefna innflytjenda.
Okkur hefur verið borið
ýmislegt á brýn. Mér er
til efs að nokkur íslensk-
ur stjórnmálaflokkur
hafi legið undir eins
ósanngjörnum og ósvífnum árás-
um og talsmenn Frjálslynda
flokksins hafa mátt þola.
Stefna Frjálslyndra hefur verið
sú rödd skynseminnar að vilja
hafa stjórn á því hverjir koma til
landsins. Kannað sé hvort um sé
að ræða fólk sem hafi eitthvað
misjafnt í pokahorninu, og síðan
að taka ekki við fleirum en íslenskt
velferðarsamfélag ræður við.
Sömuleiðis hefur það verið
stefna Frjálslynda flokksins að
taka þannig á móti gestum að þeir
geti aðlagast íslensku samfélagi
og að þeim sem taka þátt á vinnu-
markaði bjóðist kjör í samræmi
við kjarasamninga og að ekki séu
ástunduð félagsleg undirboð.
Hver hafa viðbrögð samfélags-
ins verið? Almenningur hefur
tekið undir með okkur í Frjáls-
lynda flokknum og sagt þetta
nauðsynlega umræðu sem verði
að fara fram og að nauðsynlegt sé
að bregðast við ástandinu.
Hver hafa viðbrögð pólitískra
andstæðinga verið? Þau hafa verið
allt önnur. Forsvarsmenn annarra
flokka hafa oft látið hafa eftir sér
hin ótrúlegustu ummæli. Þeir hafa
haft hátt um meinta andúð Frjáls-
lyndra í garð barna af erlendum
uppruna og fleira í þeim dúr.
Lengst hafa Framsóknarmenn
gengið í ósvífnum ásökunum.
Sjálfur varð ég fyrir því að kona í
ábyrgðarstöðu í Framsóknar-
flokknum laug upp á mig ummæl-
um sem ég átti að hafa látið mér
um munn fara á fundi í Mennta-
skólanum við Sund.
Í Ríkisútvarpinu fyrr í þessum
mánuði flutti Sæunn Stefánsdóttir
makalausan pistil, en hún er þing-
maður Framsóknarflokksins og
sömuleiðis formaður útlendinga-
ráðs. Hún sakaði formann Frjáls-
lynda flokksins um að
ganga alla leið í andúð
sinni gegn erlendu fólki
og ala á ótta fólks í land-
inu við útlendinga.
Nákvæmlega ekkert í
ræðu Guðjóns Arnars
gaf þingmanninum til-
efni til að leggja út af
ræðunni á þennan veg.
Þegar óskað var eftir
því að hún fyndi þess-
um meiningum ein-
hvern stað, og ef ekki -
þá biðjast afsökunar, þráaðist hún
við og hélt áfram að afflytja skyn-
samlega ræðu Guðjóns Arnars
Kristjánssonar. Ekki var hún ein
um það heldur tóku undir það bæði
þingmenn og ráðherrar Fram-
sóknarflokksins.
Fleiri í Framsókn hafa tekið
þátt í þessum lygakór. Nefna má
Marsibil Sæmundsdóttir sem er
formaður mannréttindanefndar
Reykjavíkurborgar. Hún leyfir
sér á opinberum vettvangi á blogg-
síðu sinni þann 26. þ. m., að láta
þau skilaboð frá sér fara að það
væru sérstaklega dapurleg tíðindi
þegar spurðist út hverjir myndu
leiða framboðslista flokksins í
Reykjavík í vor. Útlit væri fyrir að
Reykvíkingar þyrftu að hlusta á
fordómafulla frambjóðendur
halda á lofti stefnu fasista í inn-
flytjendamálum!
Hvernig væri að formaður
mannréttindanefndar Reykjavík-
urborgar væri látinn rökstyðja
þessar ósönnu dylgjur með ein-
hverjum hætti? Hvar eru fjölmiðl-
ar landsins sem eiga að veita
aðhald og spyrja gagnrýninna
spurninga? Sérstaklega væri það
viðeigandi eins og í þessu máli
þegar formaður mannréttinda-
nefndar á í hlut. Það gerist samt
alls ekki, heldur virðist sem fjöl-
miðlar spili frekar undir vitleys-
unni en hitt, - að ég tala nú ekki um
dálka- og leiðarahöfunda.
Nýlega tók einn blaðamaður
Morgunblaðsins, Kristján Jóns-
son, þátt í þessu undirspili og sagði
á sinni bloggsíðu að Frjálslyndi
flokkurinn væri mælikvarði á
grugg í þjóðarsálinni og að flokk-
urinn höfðaði til minnipokakennd-
ar þar sem allt væri nothæft. Já,
það gerði þessi umræddi blaða-
maður erlendra frétta í Morgun-
blaðinu án þess að finna þessum
skrifum sínum neinn stað í því
sem einhver í Frjálslynda flokkn-
um hefur sagt eða átt að hafa sagt.
Þannig er nú um gagnrýna blaða-
mennsku á þeim bænum.
Höfundur er alþingismaður.
Ásakanir í garð
Frjálslynda flokksins
Sigurjón ÞórðarSon
Hvernig væri að formaður
mannréttindanefndar Reykja-
víkurborgar væri látinn rök-
styðja þessar ósönnu dylgjur
með einhverjum hætti?
Það er gríðarleg óánægja hjá grunnskólakenn-
urum með þessa þróun. Þessi óánægja snýst
ekki síst um að því er virðist algert tómlæti
sveitarstjórnarmanna sem bera fyrir sig sína
eigin launanefnd.
OPIÐ HÚS
HJÁ SVFR
Föstudaginn 2. mars
ALLIR VELKOMNIR - HÚSIÐ OPNAR KL. 20.00
Dagskrá:
::: Áhrif veiða og sleppa á laxastofna og veiðitölur
Guðni Guðbergsson frá veiðimálastofnun
::: Veiðistaðalýsing – Flugu- og maðveiðistaðir
Elliðaánna
::: Hilmar Hansson – Rússlandsveiði í Yokonga
::: Myndagetraunin sívinsæla
::: Happahylurinn gjöfuli