Fréttablaðið - 02.03.2007, Qupperneq 64
2. mars 2007 FÖSTUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
Auglýsingar sendist á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
merkisatburðir
1801 Spánn segir Portúgölum
stríð á hendur.
1836 Texas lýsir yfir sjálfstæði
frá Mexíkó.
1933 Kvikmyndin „King Kong”
frumsýnd í New York í
Bandaríkjunum.
1940 Fyrsta árásin á íslenskt
skip í seinni heimsstyrj-
öldinni þegar togarinn
Skutull frá Ísafirði verður
fyrir árás þýskrar herflug-
vélar við Bretland. Enginn
slasaðist.
1982 Bíóhöllin hóf starfsemi
í Reykjavík, þá stærsta
kvikmyndahús landsins.
1999 Áburðarverksmiðja
ríkisins seld Haraldi
Haraldssyni og fleirum
fyrir tæplega 1,3 milljarða
króna. Verksmiðjan var
staðgreidd.
Þennan dag árið 1969 var
Concorde-farþegaþotunni flogið
í fyrsta sinn. Farþegaþotan er sú
hraðfleygasta sem gerð hefur
verið, nær nálægt tvöföldum
hljóðhraða, en smíði hennar
var samstarfsverkefni Breta og
Frakka.
Jómfrúarflugið var eins og
smurt, en vélin tók á loft frá
Toulouse í Frakklandi og var í loftinu í 27 mínútur
áður en flugmaðurinn, Andre Turcat, ákvað að
lenda henni. „Fuglinn stóri er loksins kominn í
loftið og ber sig nokkuð vel,” sagði hann eftir
lendinguna. Í fyrsta fluginu fór vélin í um þriggja
kílómetra hæð (10.000 fet), en flaug ekki hraðar
en 480 kílómetra hraða á klukkustund. Hún átti
hins vegar eftir að fljúga á yfir tvö þúsund kíló-
metra hraða. Concorde-þotan rauf hljóðmúrinn í
fyrsta sinn 1. október sama ár.
Farþegaflug með Concorde
hófst svo 21. janúar árið 1976.
Þegar komið var fram með
Concorde-þotuna var olíuverð
í hámarki og sú staðreynd að
vélin gat ekki keppt í flugi yfir
Kyrrahafið vegna mikillar elds-
neytisnotkunar og smárra tanka
gerði hana óhagkvæma. Þá féll
heldur á ímynd Concorde-þot-
unnar þegar ein slík brotlenti nærri París 25. júlí
2000 með þeim afleiðingum að 113 biðu bana.
Um tveimur milljónum króna var eytt í að
bæta öryggi vélanna og þær aftur teknar í notkun
í nóvember 2001, en í apríl í fyrra tilkynntu svo
British Airways og Air France að notkun vélanna
yrði hætt. Félögin sögðu færri vilja fljúga með
Concorde en áður, auk þess sem viðhaldskostn-
aður væri mikill. Síðasta farþegaflug Concorde var
23. október 2004.
þetta gerðist: 2. MARS 1969
Jómfrúarflug Concorde-þotunnar
john irving rithöfundur er 65 ára
„Að skrifa skáldsögu er í raun leit
að fórnarlömbum. Þegar ég skrifa
leita ég að hinum slösuðu og
sögurnar afhjúpa þá.“
Irving á að baki bækur á borð við The World
According to Garp og Cider House Rules.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóð-
ir, amma, langamma og langalangamma,
Málfríður Sigurðardóttir,
Stillholti 9, Akranesi,
andaðist á Sjúkrahúsinu á Akranesi miðvikudaginn
28. febrúar. Útförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Ó. Guðmundsson
Sigurður Guðmundsson Hulda Guðbjörnsdóttir
Björgvin Guðmundsson Lidia Andreeva
Birgir Guðmundsson Ragnheiður Hafsteinsdóttir
Jón Þór Guðmundsson Ástríður Jónasdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Einarsson
Hjallaseli 55 (Seljahlíð), Reykjavík,
andaðist sunnudaginn 18. febrúar.
Útförin fer fram í dag frá Fossvogskirkju kl.13.
Ingveldur Jónasdóttir
María Jónsdóttir Axel Stefán Axelsson
Leifur Jónsson Bryndís Petersen
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Helga Hjálmarsdóttir
Lindasíðu 4, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri 25. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn 5.
mars kl. 14.00.
Bjartur Stefánsson Rósa Óskarsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Skafti Jónsson hefur
verið ráðinn umdæm-
isstjóri Þróunarsam-
vinnustofnunar
Íslands í Malaví og
tók við starfinu af
Margréti Einarsdótt-
ur á dögunum.
Skafti er sendi-
ráðunautur í utanrík-
isráðuneytinu en í
tímabundnu starfi hjá
ÞSSÍ sem umdæmis-
stjóri í Malaví og for-
stöðumaður sendi-
ráðsins í
höfuðborginni, Lilong-
we. „Ég hef verið svo
heppinn að fá að vera
hér í nokkrar vikur til að setja mig inn í starfið og kynnast
landi og þjóð,“ segir hann. „Ég tek við góðu búi og spennandi
og vaxandi verkefnum sem fólkið í Monkey Bay, þar sem við
vinnum mest, kann vel að meta.“
Malaví er eitt af fátækustu ríkjum heims en Skafti segir
það þó hafa komið sér skemmtilega á óvart hversu mikið er til
af fagmenntuðu starfsfólki í landinu. „Um daginn auglýstum
við eftir verkfræðingi til að leiða vatns- og skólpverkefnið
sem við erum að fara af stað með. Við fengum 37 umsóknir,
allar frá mjög hæfum og vel menntuðum Malövum. Í þessum
viðtölum sannfærðist ég um að það er rétt stefna hjá ÞSSÍ að
reiða sig í ríkari mæli á heimamenn í lykilstöðum. Það er þró-
unarstarf í sjálfu sér að gefa menntuðu heimafólki tækifæri
til að axla ábyrgð og nýta menntun sína, en slík tækifæri eru
því miður af skornum skammti.“
Skafti nýr umdæm-
isstjóri í Malaví
viðar víkingsson
kvikmyndagerðar-
maður er 56 ára.
Carlos ari ferrer
sóknarprestur er
46 ára.
þorsteinn j.
vilhjálmsson
fjölmiðlamaður er
43 ára.
ilmur María
stefánsdóttir
myndlistarkona er
38 ára.
stefanía thors
leikkona er 36 ára.
Kolbrún anna
Björnsdóttir leik-
kona er 33 ára.
sKafti í Malaví Skafti Jónsson og hr.
Gumbala, skólastjóri Namazizi-skólans í
Malaví. MYNd/KRiSTÍN ÞoRSTEiNSdóTTiR
afMæli
Elskulegur eiginmaður og stjúpfaðir,
Guðjón B. Guðjónsson
Seljalandi,
lést á heimili sínu þann 12. febrúar sl. Jarðarförin
hefur þegar farið fram í kyrrþey, að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til þeirra sem veittu umhyggju og alúð
við andlát og útför hans.
Guðrún J. Gunnarsdóttir
Hafsteinn Daníel Þorsteinsson
Katrín Björg Hannesdóttir
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
Þorsteins D. Marelssonar
rithöfundar, Unufelli 27.
Sérstaklega viljum við þakka hjúkrunarþjónustunni
Karitas og Sigurði Björnssyni fyrir alla þeirra hjálp í
veikindum Þorsteins.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hólmfríður Geirdal
Hljómsveitin Sssól, eða Síðan skein sól
eins og hún hét á fyrstu starfsárum
sínum, fagnar 20 ára afmæli um þessar
mundir. Í tilefni þess ætlar hún að halda
órafmagnaða tónleika í Borgarleikhús-
inu 18. apríl auk þess sem ný plata er í
farvatninu.
Helgi Björnsson, söngvari sveitar-
innar, man vel eftir kvöldinu þegar
Síðan skein sól kom fyrst fram. „Það
var í lok mars 1987, við spiluðum í Hlað-
varpanum, þar sem Tapas barinn er lík-
lega til húsa í dag.
Þetta var í pínulitlum sal og fyrir
utan kyngdi niður snjónum, þannig að
þetta voru bara notalegir og skemmti-
legir tónleikar.“
Ekki er ofsagt að Sssól sé ein vinsæl-
asta poppsveit landsins fyrr og síðar og
hefur átt ófáa smelli í gegnum tíðina.
Auk Helga skipa sveitina Eyjólfur
Jóhannsson gítarleikari, Jakob Smári
Magnússon bassaleikari, Hafþór Guð-
mundsson trymbill, Hrafn Thoroddsen
hljómborðsleikari og Stefán Már Magn-
ússon gítarleik-
ari. Helgi, Eyj-
ólfur og Jakob
hafa verið í
bandinu frá upp-
hafi og segir
Helgi þá hafa
strax smollið vel
saman. „Við
komum úr ólík-
um áttum; Eyjó
og Jakob höfðu
verið í Tappa tík-
arrass og ég í
Grafík en við
náðum vel
saman. Við
vorum líka
óhræddir við að prófa eitthvað nýtt og
spiluðum frá hjartanu, vorum óragir
við það.“
Helgi hlakkar mikið til órafmögnuðu
tónleikanna, sem ber upp á síðasta vetr-
ardag. „Mörg laga okkar henta mjög vel
fyrir órafmagnaða útsetningu og voru
samin þannig. Í seinni tíð fórum við að
spila meira á böllum en til að byrja með,
fyrstu tvö árin eða svo, spiluðum við
nánast eingöngu á tónleikum. Við fórum
heilan túr um landið og spiluðum óraf-
magnað, löngu áður en „Unplugged“
tónleikarnir komust í tísku á MTV. Plat-
an Ég stend á skýi var samið órafmagn-
að og ég hlakka mikið til að spila titil-
lagið órafmagnað, auk laga á borð við
Engil og Úlf.“
Sssól hefur legið í dvala undanfarin
fimm ár en Helgi segir að hljómsveitin
hafi aldrei hætt. „Við ákváðum að draga
okkur í hlé þangað til við ættum nýtt
efni og höfum svo verið hver í sínu
horni úti um hvippinn og hvappinn.
Núna eigum við slatta af nýju efni sem
á bara eftir að taka upp og það er spurn-
ing hvenær við finnum tíma til að gera
það. Vonandi getum við fylgt tónleikun-
um eftir með nýrri plðtu, því sem hljóm-
sveit eigum við nóg eftir. Það má
kannski segja að geymirinn gangi fyrir
sólarorku.“ bergsteinn@frettabladid.is
SÍðAN SKEiN Sól: á tuttugu ára afmæli í ár
Gengur fyrir sólarorku
síðan sKein sól Eyjólfur Jóhannesson, Helgi Björnsson og Jakob Smári Magnússon skipuðu
sveitina frá upphafi og ingólfur Sigurðsson barði húðirnar fyrstu árin.
helgi Björnsson
Hlakkar til órafmögnuðu
tónleikanna 18. apríl
enda henta mörg lag-
anna slíkri útsetningu.
FRéTTABlAðið/VilHElM