Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 72
2. mars 2007 FÖSTUDAGUR40
tonlist@frettabladid.is
tónninn gefinn
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Smekkmennirnir og til-
vonandi Íslandsvinirnir
í frönsku hljómsveitinni
Air senda frá sér nýja
plötu eftir helgina. Pocket
Symphony er þeirra fimmta
plata. Trausti Júlíusson for-
vitnaðist um gerð hennar.
Þrjú ár eru liðin síðan síðasta Air
plata, Talkie Walkie, kom út, en
það þýðir ekki að þeir Jean-Benoit
Dunckel og Nicolas Godin hafi
setið auðum höndum. Síðasta
haust kom út platan 5:55 sem þeir
gerðu með dóttur Serge Gains-
bourg, Charlotte. Þeir félagar sáu
alfarið um tónlistina á henni.
Fyrsta sólóplata Jean-Benoit sem
hann gerði undir nafninu Darkel
kom líka út seint á síðasta ári, en
hún var unnin á sama tíma og 5:55,
nema á nótinni.
Neil Hannon, Jarvis Cocker og
Nigel Godrich
Pocket Symphony var tekin upp
undir stjórn Nigels Godrich, en
þetta er í fjórða skipti sem þeir
Jean-Benoit og Nicolas vinna með
honum. Hópurinn sem vann að
Charlotte Gainsbourg plötunni
kemur reyndar líka við sögu á
nýju plötunni. Bæði Jarvis Cocker
og Neil Hannon sem sömdu texta
fyrir plötu Charlotte eru hér líka,
Jarvis semur textann við lagið
One Hell Of A Party sem hann
syngur og Neil syngur og semur
textann við Somewhere Between
Walking And Sleeping. Aðrir gest-
ir á plötunni eru nígeríski trommu-
leikarinn og The Good, The Bad
And The Queen-meðlimurinn Tony
Allen og Joey Waronker sem m.a.
hefur lamið húðirnar með Beck.
Pocket Symphony er í þessum
mjúka og stemningarfulla stíl sem
einkenndi fyrstu plötu Air, Moon
Safari. Eitt af því sem aðgreinir
þessar tvær plötur eru japönsku
strengjahljóðfærin koto og sham-
isen (japanskt banjó og japönsk
harpa), en Nicolas tók sér heilt ár
í að læra á þau með kennara sem
hann fann í gegnum japanska
sendiráðið í París. Þessi japanski
hljómur setur svip á plötuna, en er
sérstaklega áberandi í One Hell
Of A Party. Þeir Jean-Benoit og
Nicolas segjast hafa viljað fjar-
lægjast þennan dæmigerða popp-
hljóm á plötunni. „Ég býst við því
að við séum undir áhrifum frá
nútíma-tónskáldum eins og Philip
Glass og sígildum tónskáldum frá
fyrri hluta 20. aldarinnar eins og
Ravel og Erik Satie,“ segir Jean-
Benoit í nýlegu viðtali. Bætir hann
því við að þeir félagar semji
þannig að þeir setjist niður og
impróviseri saman.
Væntanlegir til Íslands
Nafn plötunnar Pocket Symphony
er vísun í þá löngun þeirra Air-
manna að gera plötu sem væri
hugsuð sem heild. Það eru líka
færri sungin lög á henni heldur en
á síðustu plötum. Umslag plötunn-
ar sem er unnið af myndlistar-
manninum Xavier Veilhan sem
undirstrikar þá tilvísun í klassíka
tónlist sem nafnið er. Lógóið er í
sama stíl og er á mörgum klassísk-
um útgáfum og það eru myndir af
hvítum styttum af þeim félögum
sem minna á marmarastyttur af
klassískum tónskáldum. Platan er
samt ekki eitt samfellt verk, held-
ur safn popplaga sem mynda eina
heild.
Ástarævintýri þeirra Jean-
Benoit og Nicolas hafa að því er
virðist mikil áhrif á tónlist Air.
Lagið Redhead Girl er t.d. samið
til núverandi unnustu Nicolas sem
hann kallar gyðjuna sína: „Nema
hún er ekki rauðhærð. Þetta er
mjög hugmyndafræðilegt,“ segir
hann. Og lagið Left Bank samdi
hann „á hótelherbergi eftir vel
heppnaða helgi með stelpu. Og á
mánudagsmorgninum hvarf hún
án þess að segja orð…“
Air er væntanleg til Íslands á
vegum frönsku menningarhátíð-
arinnar Pourquoi-pas? Hljóm-
sveitin vildi ólm koma á sjálfa
hátíðina, en vegna anna í kringum
útgáfu Pocket Symphony kemst
hún ekki fyrr en í sumar.
Vasahljómkviða frá Japan
Air Fimmta platan, Pocket Symphony, kemur út á mánudaginn.
Árið 2006 var ár nýliðanna í íslensku tónlistarlífi. Frumburðir lista-
manna á borð við Lay Low, Reykjavík!, Skúla Sverrisson, Pétur Ben
sópuðu að sér verðlaunum og tilnefningum sem bestu plötur ársins,
afar verðskuldað verð ég að segja. Eins og tónlistarlandslagið lítur út
um þessar mundir kæmi það hins vegar ekki að óvart þó að sagan
endurtæki sig í ár og að 2007 yrði ár nýliðanna. Fyrir viku síðan lagði
Ólöf Arnalds línurnar. Platan hennar, Við og við, stóðst allar þær
væntingar sem gerðar voru til hennar og jafnvel meira til. Yndislega
ljúfsár plata og persónutöfrar Ólafar einfaldlega heltaka mann.
Þrjár afar frambærilegar MH-sveitir stefna síðan á útgáfu á þessu
ári. Fyrst ber að nefna Sprengjuhöllina sem hefur gert allt vitlaust með
lagi sínu Tímarnir okkar. Partístuðrokk piltanna er víst til þess að
skapa skemmtilegan anda í sumar. Annað lag sem er nýbyrjað að
hljóma í útvarpinu og netverjar halda vart vatni yfir er Margt að ugga
með Hjaltalín. Gríðarlega fagmannlegt gáfumannapopp með sakleysi-
legum blæ. Þriðja sveitin er Retro Stefson. Minnst hefur kannski
heyrst frá þeirri sveit en af myspace-síðu sveitarinnar má vel sjá að
hér er gríðarlega efnileg sveit stigin fram á sjónarsviðið.
Skemmtilegt verður líka að fylgjast með þróun elektró-bylgjunnar
sem var svo áberandi á síðustu Airwaves-hátíð. Neu-Rave bylgjan virðist
lent á klakanum og þar ber fyrst að nefna Últra Mega Teknóbandið
Stefán sem er orðin ein albesta tónleikasveit landsins. Þessir ungu piltar
koma vonandi þeim ógnarkrafti sem þar birtist yfir á plast. Bloodgroup
er síðan önnur sveit sem vert er að fylgjast með. Sveitin hljómar vel og
virkar sannfærandi. Aðrar nýjar elektró-sveitir sem má líta hýru auga til
eru til dæmis Steed Lord, Johnny Sexual og FM Belfast.
Að lokum nefni ég fjögur nöfn til sögunnar. Seabear hefur verið til í
einum of langan tíma til þess að hafa ekki gefið út plötu, ef utan er
skilin ein EP-plata. Sveitin gefur hins vegar út á þessu ári plötu á
vegum Morr Music í Berlín sem án nokkurs vafa slær í gegn. Coral er
önnur sveit sem hefur verið lengi með plötu í vinnslu og því forvitni-
legt að sjá útkomuna. Strákarnir hafa verið að taka upp hjá Valgeiri
Sigurðssyni en sá mæti maður ætlar einnig að gefa út frumburð sinn á
árinu, loksins, loksins. Diagon er síðan efnileg sveit og sannar með
laginu Pastel Palace að hún hefur upp á margt að bjóða.
Aftur ár nýliðanna?
Rokksveitin Dr. Spock hefur gefið út smáskífuna
The Incredible Tooth of Dr. Zoega. Hefur hún
að geyma fjögur lög, þar á meðal hið vinsæla
Skítapakk.
Skífan er ein af þremur sem Dr. Spock ætlar
að gefa út á árinu. Sú næsta er fyrir-
huguð á þjóðhátíðardegi Íslendinga,
17. júní, og sú síðasta skömmu fyrir
Airwaves-hátíðina. „Við köllum þetta
LP, eða litlar plötur. Okkur langaði að
prófa eitthvað annað en þetta gamla
góða. Síðan er næst á dagskrá að fara í
sumarbústað og sósa sig upp með
kjöti og alkóhóli og klára eitthvað fyrir
næstu plötur,“ segir söngvarinn Finni.
Hann segir að vinsældir Skíta-
pakks hafi síður en svo komið sér á
óvart. „Okkur tókst að granda heilli
útvarpsstöð sökum vinsældanna,“
segir hann og á þar við X-FM, þar
sem lagið sat á toppnum í sex vikur. „Við höfum
alltaf verið vinsælir og alltaf verið rosalega
stórir á Reykjavíkursvæðinu.“ Vinsældir hafa
náð út fyrir landsteinana því á dögunum var
sveitin næstum búin að skrifa undir
plötusamning erlendis þegar allt fór í
baklás vegna hvalveiða Íslendinga. Af
því tilefni ætla þeir félagar á
næstunni að opna heima-
síðu tileinkaða hvalaklámi.
Dr. Spock fagnar nýju smá-
skífunni í Stúdentakjallaranum í
kvöld. Miðaverð er 1.500
og innifalið er eintak af
skífunni og einn kaldur. - fb
Alltaf verið vinsælir
Dr. Spock Rokksveitin
vinsæla gefur út nýja
smáskífu í dag.
The Klaxons - Myths of the Near
Future
HHHHH
„Frumraun Klaxons er stórkostlegur
árekstur hljóðheima. Grípandi, beitt
og tilraunakennd rokkplata sem á án
efa eftir að setja þessa sveit í fremstu
röð nýrra breskra sveita.” BÖS
> plata vikunnar
> Í SPILARANUM
Mika - Life in Cartoon Motion
gus gus - Forever
the Stranglers - Suite XVI
Arcade fire - Neon Bible
Dionysos - Monsters in Love
MikA guS guS
BrennSlAn AlBert ÁStÞórSSon
„Rokkið er í uppáhaldi hjá mér en það verður ætíð að
vera stutt í húmorinn. Rokk í bland við rugl! Þessi diskur
myndi seljast í bílförmum,“ segir Albert Ástþórsson,
söngvari Canora, um brennsluna sína.
1. roots - Sepultura „Þetta er klassík! Tekið af einni af
bestu þungarokksplötu sögunnar að mínu mati.“
2. tico tico - Shooby taylor „Besti textahöfundur allra
tíma. Shooby Taylor var ekki kallaður The Human Horn
fyrir ekki neitt.“
3. new Skin - incubus „Mitt uppáhalds Incubus-lag.
Þarna voru þeir ungir og graðir en sem betur fer þrosk-
uðust þeir eins og gott vín, þessir drengir.
4. Sex farm - Spinal tap „Bara titillinn ætti að vera nóg
til að koma því inn á öll „mixteip“ í heimi! Snilldarlag.“
5. Davidian - Machine Head „Bíð spenntur eftir nýju
plötunni „The Blackening”. Fyrsta lagið á fyrstu plöt-
unni. Þeir voru ekki lengi að heilla mann, Rob Flynn og
félagar.“
6. eitthvað með Bowtie Barstow „Þessi maður kemur
manni alltaf í gott skap! Gæti verið falskasti maður frá
upphafi.“
7. Hey Johnny park - foo fighters „Þetta lag er einfald-
lega frábært eins og restin af plötunni „The Colour and
the Shape“ sem er ein af uppáhalds plötunum mínum.“
8. the end of Heartache - killswitch engage „Ekki
alltaf sem þú sérð sveitta rokkara og litlar stelpur syngja
saman á tónleikum.“
9. the Air-conditioned nightmare - Mr. Bungle „Ég hef
stundum haldið því fram að Mike Patton sé týndi sonur
Frank Zappa. Já, það fer ekki öllum vel að blanda húmor
við tónlist.“
10. the crystal Ship - the Doors „Ef maður á að enda
diskinn á rólegu nótunum, þá er ekkert lag sem slær
þessa snilld út.“
rokk í BlAnD við rugl
AlBert ÁStÞórSSon Albert blandar saman rokki og rugli í
brennslunni sinni. FRÉTTABLAðIð/ANTON
Vi
nn
in
ga
r v
er
Ða
af
he
nd
ir
hj
á B
T S
m
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i. M
eÐ
þ
ví
aÐ
ta
ka
þ
át
t e
rtu
ko
m
in
n
í S
M
S k
lú
bb
. 1
49
kr
/s
ke
yt
iÐ
. *
A
Ða
lvi
nn
in
gu
r e
r d
re
gi
n
úr
ö
llu
m
in
ns
en
du
m
SM
S s
ke
yt
um
.
12. HVER VINNUR!
FULLT AF AUKAVINNINGUM: PSP TÖLVUR · SONY ERICSSON FARSÍMAR · PS2 TÖLVUR · TÖLVULEIKIR
BÍÓMIÐAR Á TEENAGE MUTANT NINJA TURTLES · DVD MYNDIR · FULLT FULLT AF PEPSI OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS BTC PS3 Á NÚMERIÐ 1900
SVARAÐU EINNI SPURNINGU UM
PLAYSTATION OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
AÐALVINNINGURINN
PS3 + 23”SONY LCD + LEIKIR FYRIR PS3
SPILAÐU Í BESTU GÆÐUM!