Fréttablaðið - 02.03.2007, Qupperneq 74
2. mars 2007 FÖSTUDAGUR42
Helen Mirren þótti stórglæsilega-
klædd á nýafstaðinni Óskarsverð-
launahátíð, þar sem hún hlaut verð-
laun fyrir hlutverk sitt sem Elísabet
Englandsdrottning í The Queen.
Mirren ljóstraði því nýlega upp að
hún hefði verið nærfatalaus undir
gylltum kjólnum, sem Christian
Lacroix hannaði sérstaklega á hana.
Eins og leikkonan greindi spjall-
þáttadrottningunni Oprah Winfrey
frá var kjóllinn sniðinn á hana með
það að markmiði að hún gæti sleppt
hamlandi nærfatnaði. Leikkonan
greip um brjóst sín og sagði „Hann
passaði á mig eins og tvær engla-
hendur. Ég grét þegar ég fór í hann,
hann er listaverk.“
Buxnalaus á
Óskarnum
listaverkið Helen Mirren sagði kjól
Christian Lacroix hafa verið sniðinn á hana
með það að markmiði að hún gæti sleppt
nærfötum. fréttabLaðið/getty iMages
Sjö keppendur eru eftir í X-Factor
og enn kólnar sambandið á milli
dómaranna. Einar Bárðarson sendi
Jóhönnu heim eftir að söngkonan
klikkaði illa á texta lagsins With or
Without you og stráði síðan salti í
sárin með yfirlýsingum á netinu
um að söngkonan hefði getað náð
langt undir hans handleiðslu en
Jóhanna var í yngri hópnum henn-
ar Ellýar.
Páll Óskar Hjálmtýsson skilur
hins vegar ekkert í þjóðinni og vill
sjá meiri stuðning við stúlknadú-
ettinn Gís en þær hafa vermt tvö
neðstu sætin undanfarin tvö kvöld.
Baráttan harðnar
Hara Papa Don‘t Preach
uPPHafLegur fLytjanDi: MaDonna
HóPur: PaLLi
síManúMer: 900 9001
Gylfi Ástin dugir að eilífu
uPPHafLegur fLytjanDi: PÁLL óskar og unun
HóPur: eLLý
síManúMer: 900 9002
alan Lately
uPPHafLegur fLytjanDi: stevie WonDer
HóPur: einar bÁrðarson
síManúMer: 900 9003
GuðbjörG stop
uPPHafLegur fLytjanDi: jaMeLia
HóPur: eLLý
síManúMer: 900 9004
inGa the Winner takes it all
uPPHafLegur fLytjanDi: abba
HóPur: einar
síManúMer: 900 9005
jóGvan vertigo
uPPHafLegur fLytjanDi: u2
HóPur: einar
síManúMer: 900 9006
Gís Livin‘ on a Prayer
uPPHafLegur fLytjanDi: bon jovi
HóPur: PaLLi
síManúMer: 900 9007
„Eftir uppklappið var ekki laust við að spennu-
fall ríkti baksviðs, dasaðir leikarar og tækni-
menn gengu um eins og í leiðslu og hér og
hvar glitti í tár á hvarmi, enda hjarta og
sál bæði meyr og opin eftir átök kvölds-
ins.“ Svona lýsir leikarinn Ólafur Egill
Egilsson stemningunni baksviðs eftir
að Þjóðleikhúsið hafði frumsýnt upp-
færslu sína á Pétri Gaut í Barbican
Center á miðvikudagskvöldinu.
Leikstjórinn Baltasar Kormákur
var enda að vonum ánægður með
viðtökurnar, áhorfendur risu úr
sætum og klöppuðu leikhópnum
lof í lófa. „Þetta voru frábærar
viðtökur,“ sagði Baltasar, stoltur af
sínu fólki sem hefur lagt allt sitt að
veði svo að sýningin gengi fullkom-
lega upp. Og það virðist hún hafa
gert ef marka má frásagnir leikstjór-
ans og leikarans Ólafs Egils af viðbrögðum
áhorfenda.
Baltasar upplýsir jafnframt að for-
svarsmenn leikhússins hefðu ólmir vilj-
að bæta við sýningum en uppselt er á
allar sem fyrirhugaðar eru. „Þau vilja
bara bjóða okkur aftur út með þessa sýn-
ingu,“ segir leikstjórinn enda er Pétur
Gautur eða Peer Gynt eins og verkið
heitir á ensku það eina í leikhúsinu
sem ekki er hægt að fá miða á.
Mikil og stór veisla var síðan
haldin eftir frumsýningu þar sem
leikararnir gátu varpað öndinni
léttar eftir mikil átök. „Þarna var
mikið af góðu fólki, allar helstu stjörnurnar úr
leikhúslífinu í London,“ segir Baltasar en
Íslendingarnir gátu ekki verið lengi að enda er
dagskráin þétt og næsta sýning strax kvöldið
eftir. -fgg
Frábærar viðtökur á Pétri Gaut
Pétur Gautur Áhorfendur risu úr sætum og hylltu
þreytta en ánægða leikara.
baltasar kormákur stoltur af sínu
fólki sem lagt hefur hjarta og sál í
verkið.
Vakningadagar fjölbraut-
arskólans Flensborg hafa
staðið yfir í þessari viku.
Morfís-lið skólans skoraði
á þrjá gamla nemendur í
ræðukeppni en urðu að láta
í lægra haldi fyrir gömlu
kempunum.
Ræðulið hinna eldri var skipað
þremur þjóðþekktum einstakling-
um sem allir eru frægir fyrir að
vera með munninn fyrir neðan
nefið. Radíusbræðurnir Davíð Þór
Jónsson og Steinn Ármann Magúns-
son ásamt Einari Sveinbjörnssyni
voru síður en svo ryðgaðir í ræðu-
stólnum þótt nokkuð væri liðið
síðan að þeir stigu síðast í pontu.
Umræðurefnið var hvort breyta
ætti Vestmannaeyjum í fanga-
nýlendu og fengu þeir sem eldri
voru að vera á móti en hinir yngri
með. „Við snýttum þessum drengj-
um. Þeir töluðu um okkur sem
gamla liðið en hefðu betur sleppt
því. Þeir voru rassskelltir,“ segir
Steinn Ármann sem var nokkuð
rogginn eftir keppnina enda var
ekki fyrirfram búist
við því að þeir sem
eldri væru stæðu
uppi í hárinu á
yngri kynslóð-
inni. En það
fór á annan
veg. „Davíð var
bestur, Einar
gríðarlega rök-
fastur en ég var
fyndnastur,“
útskýrir Steinn sem
var þó bara rétt að
hitna þegar
ræðutíman-
um var
lokið
„Við létum þá bara vaða yfir
okkur,“ segir Freyr Árnason, lið-
stjóri ræðuliðs Flensborgarskólans
og oddviti nemendafélagsins. Hann
sagði að liðið sitt hefði nú tekið
þessari keppni frekar létt. „Ég
verð hins vegar að viðurkenna
ósigurinn,“ segir Freyr. „Við tókum
þetta ekki nógu alvarlega enda var
þetta ekki upp á líf og dauða,“
bætir hann við. „Þeir tóku þessu
hins vegar mjög alvarlega,“ bætir
Freyr við og hlær.
Oddvitinn segir að Vakninga-
dagarnir hafa gengið vonum fram-
ar en miklu balli var slegið upp í
gærkvöldi en þar léku Milljóna-
mæringarnir og Rottweilerhund-
arnir fyrir dansi. -fgg
Menntskælingar rassskelltir
Davíð Þór Þótti manna
snjallastur í ræðupúltinu.
einar sveinbjörnsson
veðurfræðingurinn góðkunni sýndi
mikla rökfestu á vakningadögunum.
steinn
ármann
tók ræðulið
flensborg-
arskólans í
bakaríið.
Skólavörðustígur 2.
Sími: 445-2020
www.birna.net