Fréttablaðið - 02.03.2007, Qupperneq 80
48 2. mars 2007 FÖSTUDAGUR
FóTbolTi Höskuldur Eiríksson, fyr-
irliði Víkings, mun um helgina
halda til Noregs þar sem hann
æfir með úrvalsdeildarliðinu Vik-
ing í Stafangri í vikutíma. Þetta
hefur reyndar staðið til í lengri
tíma en þjálfaraskipti hjá liðinu í
haust urðu til þess að ekkert varð
úr því að Höskuldur færi þá.
Hann segir að enn eigi eftir að
ganga frá öllum smáatriðum en að
sér lítist vel á þetta.
„Þetta kom mjög óvænt upp á
þegar maður var loksins búinn að
afskrifa þetta. Þetta er gríðarlega
spennandi enda í fyrsta skipti sem
ég legg í álíka ævintýri,“ sagði
Höskuldur við Fréttablaðið í gær.
Hann segir að þetta komi ekki á
sem bestum tíma þar sem hann
varð faðir í vikunni.
„Stúlkan átti reyndar að koma
á mánudaginn þannig að það var
jákvætt að hún kom áður en ég fór
út,“ sagði Höskuldur. „En ég nýt
góðs stuðnings frá fjölskyldunni
til að leggja í þessa för.“
Egil Östenstad, yfirmaður
knattspyrnumála hjá Viking, virð-
ist gríðarlega hrifinn af Íslending-
um ef eitthvað er að marka störf
hans upp á síðkastið.
Á síðustu vikum hefur hann
fengið Hannes Þ. Sigurðsson til
félagsins og hefur lýst yfir áhuga
á að fá bæði Emil Hallfreðsson og
Rúrik Gíslason til liðsins. Fyrir er
ungmennalandsliðsmaðurinn
Birkir Bjarnason hjá Viking. Þjálf-
ari liðsins er hinn þýski Uwe
Rösler.
Ef Höskuldur gengur til liðs við
norska liðið verður það mikill
missir fyrir Víkinga enda hefur
Höskuldur verið lykilmaður hjá
liðinu síðustu ár. - esá
í baráttunni Höskuldur
berst hér við FH-inginn
Tryggva Guðmundsson
um boltann síðastliðið
sumar.
FréTTablaðið/sTeFán
Höskuldur Eiríksson fer til reynslu til Viking í Noregi í vikutíma:
Höskuldur frá Víkingi til Viking í Noregi
FóTbolTi Dómari í leik Real Betis
og Sevilla þurfti að blása leik
liðanna af í spænsku bikarkeppn-
inni í fyrrakvöld eftir að áhorf-
andi kastaði hlut í höfuð Juande
Ramos, þjálfara Sevilla. Ramos
missti meðvitund og var fluttur á
sjúkrahús. Þegar þangað var
komið var hann búinn að ná
meðvitund á ný. Mun hann hafa
verið meðvitundarlaus í um ellefu
mínútur.
Atvikið átti sér stað eftir að
Frederic Kanoute hafði komið
Sevilla yfir í leiknum. Leikurinn
fór fram á heimavelli Real Betis
en fyrri leik liðanna, á heimavelli
Sevilla, lauk með markalausu
jafntefli.
Del Nido var þó með báða
fætur á jörðinni er hann ræddi
við fjölmiðla um áðurnefnt atvik.
„Það þarf að benda á þann seka
og aðeins þann seka. Þetta hefði
getað gerst hvar sem er. Það er
ekki hægt að forðast svona hluti
ef nokkrir vitleysingar leynast
innan um þær þúsundir sem
koma á völlinn. Því miður gerðist
þetta hér,“ sagði Del Nido.
- esá
rotaður Juande ramos, þjálfari sevilla,
er fluttur meðvitundarlaus af heimavelli
real betis í fyrrakvöld. nordic pHoTos/aFp
Leikur Betis og Sevillaf:
Þjálfari Sevilla
rotaðist
FóTbolTi Wayne Rooney telur að
félagi sinn hjá Manchester
United, Portúgalinn Cristiano
Ronaldo, sé besti leikmaður
heims um þessar mundir. Hann
nýtur þess að leika við hlið
Ronaldo.
„Ég er himinlifandi yfir því að
hann spilar með okkur því þessa
stundina er hann besti leikmaður
heimsins,“ sagði Rooney. „Maður
vill spila með þeim bestu og það
er frábært að vera í sama liði og
Ronaldo.“
Þessir tveir mættust sem
andstæðingar á HM í Þýskalandi í
sumar og endaði það með því að
Rooney var rekinn af velli eftir
viðskipti þeirra á vellinum. Í
kjölfarið féll England úr leik á
HM.
Úr varð mikið fjölmiðlafár í
kjölfarið þar sem gert var því
skóna að Ronaldo væri á förum
frá Manchester United til Real
Madrid. Þær sögusagnir lifa
reyndar enn góðu lífi en Ronaldo
hefur sýnt og sannað á vellinum
að hann lætur allt slíkt sem vind
um eyru þjóta. - esá
góðir félagar Wayne rooney og
cristiano ronaldo fagna marki þess síð-
arnefnda gegn Fulham í síðasta mánuði.
nordic pHoTos/GeTTy
Wayne Rooney:
Ronaldo bestur
í heiminum
dagskrá: laugardagur 3. mars 2007 • ráðstefnustjóri: Tryggvi agnarsson
www.xf.is
Málefnaráðstefna Frjálslynda fl okksins