Fréttablaðið - 07.03.2007, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 07.03.2007, Qupperneq 19
Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is Diljá Magnea Oddsdóttir er sex ára nemandi í Breiða- gerðisskóla. Diljá byrjaði í skólanum síðasta haust og segir að það sé bara fínt í honum. „Ég er búin að læra að lesa og líka búin að læra að reikna,“ segir hún. Eftir skóla á daginn fer Diljá á frístundaheimili sem heit- ir Sólbúar. „Það er rosalega gaman því þar má leika sér úti um allt og stundum er sjónvarp sem við megum horfa á.“ Besta vinkona Diljár heitir Tara og hún er líka í Breiða- gerðisskóla. „Við sitjum samt ekki saman því hún er í öðrum hóp. Af því að það er gulur, rauður og grænn og blár og hún er í bláa og ég er í rauða og svo eru tvær stofur og guli og rauði eru saman í stofu og græni og blái eru saman í stofu.“ Diljá hefur í nógu að snúast þegar hún er ekki í skólanum því hún er í Barnakór Bústaðakirkju og svo æfir hún dans. „Ég er búin að æfa svolítið lengi og kann að dansa enskan vals og cha cha cha,“ segir hún. Diljá finnst líka gaman að horfa á dans í sjónvarpinu og henni finnst kjólarnir í dansinum mjög flottir. „Ég á bara svona sparikjóla sem ég dansa í. Stundum eru danssýningar og þá á ég að dansa og það er svo flott þegar stóru krakkarn- ir dansa.“ Þegar Diljá var minni átti hún heima um tíma í Dan- mörku og síðasta sumar fór hún í heimsókn þangað. „Ég fór í Tívolí og þar fór ég í rennibraut og svona sem að maður á að veiða fiska og svan sem er svona bátur. Þegar ég var svo- lítið lítil fór ég líka í Lególand og ég hef líka farið í annað tívolí sem ég mátti næstum því ekki fara í neitt því ég var svo lítil en ég fór samt í smá, pabbi þurfti bara að koma með.“ Diljá segir að henni finnist samt alltaf best að vera á Íslandi. „Það eru svo fáir í Danmörku og ég á fleiri vinkonur hér,“ segir hún og þó að hún geti alveg hugsað sér að skreppa til Danmerkur annað slagið er hún ákveðin í því að héðan í frá ætli hún að búa á Íslandi. Best á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.